Árbók VFÍ - 01.06.1992, Blaðsíða 27
Skýrsla formanns 25
Skipuð hefur verið eftirlitsnefnd með talsmannakerfinu, en nauðsynlegt er að fylgjast vel
með að þær upplýsingar sem talsmannamöppur geyma í dag úreldist ekki.
Þórarinn Magnússon og Oddur B. Bjömsson skipa eftirlitsnefndina.
Nánari upplýsingar um talsmannakerfi fylgja skýrslu þessari, sjá kafla 13.
9.14 Tengiliöir á vinnustööum
Á 50 vinnustöðum verkfræðinga eru skráðir tengiliðir VFI. Tengiliðirnir koma á framfæri til
félaga upplýsingum um fundi, ráðstefnur og aðrar samkomur á vegum félagins. Skoðana-
könnunin 1991 leiddi í ljós að félagsmenn vissu í mörgum tilfellum ekki hvaða hlutverki tengi-
liðakerfið gegndi né heldur hver tengiliður vinnustaðarins var. Til að bæta úr því skyldi stefnt
að tveimur fundum árlega, þeim fyrri að hausti þar sem vetrardagskrá yrði kynnt og þeim
síðari, einum til tveimur mánuðum fyrir aðalfund og auglýsa þar eftir nýjum stjórnarmönnum,
koma lagabreytingum á framfæri svo og öðrum hugmyndum sem upp koma. Ekki hefur orðið
af þessum síðari fundi á starfsárinu.
9.15 Heiöursfélagar og heiöursveitingar
Heiðursfélagar. Eini heiðursfélaginn var lengi vel Einar B. Pálsson byggingarverkfræðingur.
Á árshátíð VFI þann l. febrúar sl. var heiðursfélögum fjölgað, eins og fyrr er greinl.
Heiðursfélagar njóta ýmissa réttinda umfram aðra félagsmenn þ.m.t. sitjandi stjórn hverju
sinni. Heiðursfélögum er boðið sem heiöursgestum á hátíðarstundir félagsins og þeir eru gjald-
fríir. Heiðursfélögum er afhent heiðursmerki þ.e. gullmerki félagsins og skrautritað skjal, þar
sem skráðir eru þeir verðleikar sem heiðrað er fyrir. Einnig er afhentur myntklumpur með
áletruðu nafni heiðursfélaga og VFÍ.
Heiðursmerki. Heiðursmerki er gullmerki sem allient eru á árshófi þeirn mönnum sem skarað
hafa fram úr á einhvern hátt og á þann hátt unnið til umbunar. Umbun þessi nær þó ekki lengra
en til þessarar einu tilteknu kvöldstundar, sem merkishafi er hylltur.
9.16 Siöanefnd VFÍ
I stóru félagi sem VFI er eðlilegt að ágreiningur komi upp milli félagsmanna. Siðareglur fél-
agsins segja til um góða hegðun verkfræðinga, en verði misbrestur þar á hefur engin sáttanefnd
verið til staðar, sem aðstoðar menn við að ná fram friðsamlegum lausnum. Þann 2. október sl.
var ákveðið að koma á fót siðanefnd VFI, til að taka á þeim málum sem upp kunna að koma.
Siðanefnd var falið að móta sér starfsreglur, í samræmi við núgildandi siðareglur félagsins og
endurmóta þær ef þurfa þykir og skila inn skriflegum tillögum til stjórnar VFÍ. Sjá aftast í
kafla 1.2.
9.17 Myndavörður VFÍ
Mikið er til af gömlum merkum myndum frá ýmsum framkvæmdum t.d. við vita og hafnar-
gerð, myndir af fyrrverandi stjórnarmönnum o.fl. Nokkrar myndanna eru merktar, en flestar
eru það ekki. Því er brýnt að skrá atburði og þekkt nöfn og ganga þannig frá myndunum að þær
megi handfjatla og fræða okkur um gamla tímann. Einar B. Pálsson og Hinrik Guðmundsson
hafa lagfært myndasafnið verulega.
9.18 Samstarfsnefnd VFÍ og Almannavarna
Enn er í undirbúningi samstarf milli VFÍ og Almannavarna ríkisins, þess eðlis að komið verði
upp e.k. sérfræðinganeti á vegum VFÍ til að meta aðstæður eftir náttúruhamfarir. Sólveig Þor-
valdsdóttir verkfræðingur, búsett í USA, hefur aflað félaginu fróðlegra upplýsinga og sótti