Árbók VFÍ - 01.06.1992, Blaðsíða 81
Félög tengd VFI 79
Lífeyrisgreiðslur hækkuðu um 19,9%
á milli ára. Lífeyrisþegum fjölgaði um
fimm á árinu og var greiddur lífeyrir til
45 sjóðfélaga. Frá áramótunum ’91/’92
hefur lífeyrisþegum fjölgað um þrjá.
Lífeyrisgreiðslur skiptast eins og fram
kemur í töflu 2. Eins og sjá má vex hlut-
deild ellilífeyris í lífeyrisgreiðslum frá ári
til árs.
A árinu 1991 var greitt 1% af iðgjöld-
um í skatt til umsjónamefndar eftirlauna,
en á þessu ári eru greidd-
ar eftirstöðvar þeirrar á-
lagningar og er þá þess-
um greiðslum lokið.
Rekstrargjöld að frá-
dregnum rekstrartekjum
aukast um 51,2% á milli
ára og eru 6,4% af ið-
gjöldum og 0,8% af meðaleign sjóðsins.
Rekstrargjöld hækka talsvert milli ára, og valda því margir samverkandi þættir. Nefna má
mannabreytingar á árinu, það að fjölgað var um eitt stöðugildi svo og að sjóðfélögum fjölgaði
mikið á árinu.
Ráðstöfunarfé jókst um 39,4% milli ára.
Ávöxtun sjóðsins var 13,5% samkvæmt reikniaðferð Guðmundar Guðmundssonar trygg-
ingafræðings eða 5,9 stigum yfir hækkun lánskjaravísitölu.
Til samanburðar má nefna hækkun; lánskjaravísitölu jan.’91 - jan.’92, 7,6%, byggingar-
vísitölu jan.’91 - jan.’92, 6,1%, og framfærsluvísitölu jan.’91 - jan.’92, 7,1%.
Ávöxtun samkvæmt þessari aðferð samsvarar því 5,5% raunávöxtun. Mat Bjarna Guð-
mundssonar tryggingarfræðings er að meðalávöxtun skuldabréfaeignar sjóðsins sé 4,5%.
3.2 Útlán
Skuldabréfaeign sjóðsins var 2.132,1 m.kr. í árslok en var 1.677,1 m.kr. í ársbyrjun 1990 og
hafði því aukist um 454,6 m.kr. eða um 27%.
Á árinu 1991 voru keypt skuldabréf sjóðfélaga fyrir 164 m.kr., eða 39,6% ráðstöfunarfjár.
Keypt voru skuldabréf fjárfestingarlánasjóða fyrir 223 m.kr., eða 53,9% ráðstöfunarfjár og
önnur skuldabréf fyrir 20 m.kr., eða 4,9% ráðstöfunarfjár.
1 desember síðastliðnum keypti lífeyrissjóðurinn fyrsta hlutabréfið á tæp 500 þúsund.
Eins og áður voru veitt lán til sjóðfélaga vor og haust. Samþykkt voru 96 lán til sjóðfélaga á
þessu starfsári á móti 81 láni á fyrra starfsári.
Lífeyrissjóðurinn hefur keypt skuldabréf af nokkrunt vinnuveitendum til jöfnunar á ið-
gjaldaskuldum, til að tryggja hag sjóðfélaga.
1991 1990 1989 1988 1987
Ellilífeyrir kr. 10.690.381 66% 60% 57% 54% 50%
Örorkulífeyrir kr. 1.295.514 8% 13% 10% 3% 8%
Makalífeyrir kr 3.865.423 24% 25% 31% 40% 37%
Barnalífeyrir kr. 375.733 2% 2% 2% 3% 5%
'I’afla 2 Skipting lífeyrisgreiðslna.
39,9% (38,0%) í verðtryggðum lánum
fjárfestingalánasjóöa.
50,6% (53,2%) í verðtryggöum lánum
til sjóðfélaga.
0,1% (0,1%) í óverðtryggðum lánum
til sjóðfélaga.
1,0% ( 0,2%) í öðrum verðtryggðum lánum.
0,1% ( 0,2%) í fyrirframgreiddri húsaleigu.
1,8% ( 2,2%) í Verkfræðingahúsi.
6,0% ( 5,8%) í skammtímakröfum.
0,5% ( 0,3%) í lausafé.
100,0%
Tafla 1 Varðveisla eigna sjóðsins.