Árbók VFÍ - 01.06.1992, Blaðsíða 56
54 ÁrbókVFÍ 1991/92
Gerðardómur
37. gr.
Félagið tekur að sér að skipa gerðardóm til þess að fella fullnaðarúrskurð um ágreining í
tæknilegum málum.
Reglur um skipun og störf slíks gerðardóms skulu hljóta sömu málsmeðferð og lög félagsins.
Ursögn
38. gr.
Ursögn úr félaginu skal tilkynnt stjórn félagsins skriflega með fjögurra mánaða fyrirvara.
Brottvikning
39. gr.
Brjóti félagsmaður lög eða aðrar samþykktir félagsins, eða komi á annan hátt þannig fram,
að ekki samræmist markmiði félagsins eða heiðri verkfræðingastéttarinnar, getur aðalstjórn
félagsins veitt honum áminningu eða lagt til, að honum verði vikið úr félaginu, enda hafi
viðkomandi félagsmanni verði gefinn kostur á að leggja fram skriflega greinargerð máli sfnu
til vamar. Til að slík tillaga teljist samþykkt, þarf hún að hljóta staðfestingu dómstóls félags-
ins. Dómstóllinn er skipaður 5 fyrrverandi formönnum félagsins, þeir er síðast gegndu því
starfi. Sé einhver þeirra forfallaður, tekur sá fyrrverandi formaður sæti í dómnum, sem gegndi
starfi næst á undan þeim fimm o.s.frv. Hlutaðeigandi félagsmaður og félagsstjórn ryðja hvor
um sig einum manni úr dómnum. Meiri hluti atkvæða ræður úrslitum í dómnum.
Lagabreytingar
40. gr.
Breytingar á lögum þessum má eingöngu gera á aðalfundi eða samkvæmt 30. gr. Tillögur
um lagabreytingar, sem leggja á fyrir aðalfund, skulu birtar í fundarboði.
Til lagabreytinga sem bornar eru undir aðalfund þarf 2/3 greiddra atkvæða, en meira en 1/2
greiddra atkvæða í allsherjaratkvæðagreiðslu.
Lagabreytingar skulu birtar félagsmönnum.
Seinustu breytingar á félagslögum voru gerðar á aðalfundi VFI
þann 25. mars 1992 þ.e. 8. gr. og 19. gr. A (ný grein).
2 Fundarsköp VFÍ
(Samþykkt 16. mars 1955)
Formaður félagsins stjórnar fundum, en í forföllum hans varaformaður eða einhver annar úr
stjórninni. A aðalfundum skal þó kosinn sérstakur fundarstjóri.
Þegar fundur hefur verið settur, les ritari upp fundargerð síðasta fundar, en fundarstjóri leit-
ar staðfestingar fundarins á henni. Komi leiðréttingar fram, skal geta þeirra í fundargerð yl'ir-
standandi fundar. Fundarstjóri og ritari undirskrifa gerðabókina.
Fundarstjóri stjórnar umræðum og gætir þess, að fundarmenn ræði það efni, sem þá er til
meðferðar.
Fundarstjóri leyfir mönnum að tala í sömu röð og þeir kveðja sér hljóðs. Þyki honum
umræður verða óþarflega langar, má hann skammta ræðumönnum tíma.
Fundarmenn geta lagt til, að umræðum sé hætt. Tillögu um það má ekki ræða, en skal lýsa
og bera undir atkvæði fundarins, þá er sá hefur lokið máli sínu, sem er að tala, þegar fundar-
stjóra er afhent tillagan.