Tónlistin - 01.11.1944, Page 37
TÓNLISTIN
27
sem minnisstæðastan. Efnt var til sam-
keppni meðal ljóðskálda og tónskálda um
bezta ljóð og lag við nýjan þjóðveldis-
söng. Svo tókst þó til, að hvorug dóm-
nefndin — en í sönglaganefndinni sátu
þeir Árni Kristjánsson, Páll ísólfsson og
-dr. Urbantschitsch — sameinaðist um
eitt ljóð og eitt lag, er henni þætti tví-
mælalaust skara fram úr öllum öðrum
innsendum. Ljóðanefndin skipti verð-
laununum, 5000 krónum, jafnt milli Unn-
ar Bjarklind c-of Jóhannesar úr Kötlurn, en
laganefndin veitti að vísu Emil Thor-
oddsen einum verðlaunin öll fyrir lag hans
Hver á sér fegra föðurland, en taldi þó
lög Þórarins Guðmundssonar (Land míns
föður) og Árna Björnssonar (Syng,
frjálsa land) verðskulda opinbera viður-
kenningu nefndarinnar á öðru og þriðja
sæti, án verðlauna. Lúðrasveit Reykja-
vikur aðstoðaði með ágætum við öll há-
tíðahöldin, og hafði hún gagngert verið
aukin að einum kór saxófóna, sem mýktu
blástursblæ hljóðfæranna eigi alllitið und-
ir stjórn Alberts Klahns. Páll ísólfsson
stóð á Þingvöllum frammi fyrir þeim
mesta þjóðkór, sem hann enn hefir stjórn-
að, þar sem öll Fangbrekkan var þakin
fólki, og var hmn æfði og þjóðfrægi út-
varpskór hans dreifður innan um j)yrp-
inguna. Hann ávarpaði mannf jöldann,
hress i bragði sem hans er vandi, og bað
menn taka vel undir. Þetta tókst ekki
alveg upp á ])að bezta i upphafi. En fljótt
söng öll brekkan, eins og hlýðinn kór
undir tilþrifamikilli stjórn jæssa vinsæla
stjórnenda. Það var lyfting í þeim söng.
Allir höfðu ánægju af að taka þátt í hon-
um. Hér var virk jmtttaka almennings i
j)vi að gera stundina hátiðlega, hlýlega,
skemmtilega. Eftir því sem fleiri lög
voru sungin, dreif fleira fólk að og sett-
ist í brekkuna, svo að hún varð öll lif-
andi. Einhverjum varð máske á að hugsa
til þess fólks, sem komið hafði um lang-
an veg og oft hefir hlýtt á jjjóðkór Páls
í útvarpinu en aldrei séð hann sjálfan.
hve ánægjulegt væri fyrir það að sjá
hann Jjarna á j)essum víða palli í fyrsta
sinni stjórna þúsundunum i brekkunni.
Um leið og fáninn var hylltur og rann að
hún tók Páll ísólfsson til söngstjórnar
og söng mannfjöldinn ])á Rís þú, unga ís-
lands merki, þrjú erindin. Enn söng
mannfjöldinn nokkur ættjarðarljóð og
Páll stjórnaði. Næsti ])áttur dagskrárinn-
ar var söngur j)jóðhátiðarkórs Sambands
íslenzkra karlakóra. Um 200 manns voru
i kórnum, sem var samsteypa frá Karla-
kórnum Fóstbræður, Karlakór Reykjavík-
ur, Kátum félögum og Karlakór iðnað-
armanna. En ])essir stjórnuðu söngnum
til skiptis : Jón Halldórsson, sem var aðal-
söngstjóri, Sigurður Þórðarsoon, Hallur
Þorleifsson, Robert Abraham og Þórar-
inn Guðmndsson, er stjórnaði hátiða-
lagi sinu. Pétur Jónsson söng einsöng
með kórnum í ágætu íslands lagi Björg-
vins Guðmundssonar við kvæði Gríms
Thomsens, Heyrið vella á heiðum hveri.
Var j)ví lagi tekið svo vel, að J)að var
endurtekið, en mannfjöldinn klappaði í
takt við marzinn, er lúðrasveitin spilaði
])egar söngmenn gengu fylktu liði út af
pallinum. Hið islenzka þjóðlag Ar vas
alda i útsetningu Þórarins Jónssonar
vakti og mikla athygli. Þessi afrek ís-
lenzkra tónlistarmanna gefa fyllstu vonir
til þess, að hjá því hvorki geti né megi
fara, að þjóðarmetnaður okkar vakni til
heilbrigðs starfs og stríðs, ])ar sem sá
stóri og langþráði atburður hefir gerzt,
að við erum aftur fullvalda lýðveldi.
Úr Árnessýslu.
Ungmennafélag Gnúpverja hefir síð-
astliðinn vetur æft blandaðan kór.
Úr Rangárvallasýslu.
Ungmennafélagið Hekla á Rangárvöll-
um hafði forystu um söngnámskeið í
samráði við söngmálastjóra þjóðkirkj-
unnar, og var hann leiðbeinandi félagsins.
Frá Húsavík.
Fyrir forgöngu Sigurðar Birkis söng-
málastjóra hefir nýlega verið stofnaður
kirkjukór á Húsavík, og eru meðlimir
hans 26 að tölu, en formaður kórsins er
Auður Aðalsteinsdóttir. Undirleik fyrir