Tónlistin - 01.11.1944, Síða 41
TÓNLISTIN
31
Frá Rafnseyri.
Undir stjórn Baldurs Sigurjónssonar
aðstoÖaði Þingeyrarkórinn röggsamlega
vi'ð lýðveldishátíðina á fæðingarstað Jóns
Sigurðssonar. Söng hann m. a. eftir-
íöld lög:
Fað'ir andanna,
Þagnið, dœgurpras og rígitr,
Sjá roffann á linjúkunum háu (með
einsöng Þorsteins Björnssonar frá Þing-
eyri),
Þú komst á tínnnn,
Ó, f'ógur er vor fósturjörð,
Rís heil, þú sól,
0, guff vors lands,
Eg vil clska mitt la-nd.
Lagði kórinn þannig fram drjúgan
skerf til þessara minnisstæðu hátíðahalda
Vestfirðinga.
Frá Akranesi.
Vegna lýðveldishátiðarinnar fór Lúðra-
sveitin Svanur undir stjórn Arna Björns-
sonar frá Reykjavik til þess að ljá lið-
veizlu sína við hátíðarhald Suður-Borg-
firðinga. Skemmtun mikil var haldin í
Bióhöllinni, og fluttu þar tveir kórar
mörg lög, Karlakór Akraness og bland-
aður kór, við hinar beztu undirtektir.
Úr Eyjafjarðarsýslu.
Blandaður kór undir stjórn Gests Hjör-
leifssonar sá um söng Svarfdæla á lýð-
veldishátíðinni, og voru þar m. a. þessi
lög flutt:
Ris þú, unga Islands merki,
Eg vil elska mitt land,
Sjá roðann á hjúkunum háu,
Island ögrum skorið.
Blessuð sértu, sveitin mín.
Þess utan var til staðar lúðrasveit und-
ir forystu Jakobs Tryggvasonar, og al-
mennur söngur var ekki afræktur, og er
])á vel, að haldið skuli við vinsælum ljóð-
um og lögum til upprifjunar fyrir vax-
andi og verðandi þjóðþegna. 30 manna
blandaður kór undir stjórn Finns Krist-
inssonar söng á Svalbarðsströnd, að höf-
uðbóli sveitarinnar Svalbarði, bæði við
hátíðarguðsþjónustu og á útisamkomu.
Samkomur voru einnig á Grenivík, á
Reistará ‘í Freyjulundi, skógræktarreit
Kvenfélagsins og á Árskógsströnd við
heimavistarskólann. Á öllum þessum
stöðum voru fluttar hvetjandi frelsisræð-
ur og sungin íslenzk ættjarðarljóð.
Frá Eyrarbakka.
17. júní var hátíðlegur haldinn á Eyr-
arbakka með mikilli viðhöfn. Söng
kirkjukórsins við guðsþjónustu dagsins
lauk með Ó, guð vors lands. Á samkomu-
svæði kauptúnsins flutti kórinn síðan
ættjarðarlög undir stjórn Kristins Jón-
assonar organista. Kvennakór lét einnig
til sin heyra, og þótti hin bezta skemmt-
un að hvorumtveggja kórurium.
Jóhann Sebastian Bach (1685—1750),
mesti organleikari og kirkjutónlistarmað-
ur Þýzkalands, var einlægur og innilega
guðhræddur maður. Hann var vanur að
rita i upphafi tónverka sinna þetta stutta
bænarorð : Jesu juva — það þýðir: Jesús,
hjálpa þú! Og við niðurlagið, að loknu
verkinu, einnig á latínu: Soli Deo gloria
— það þýðir: Guði einum sé heiðurinn!
TÓNLISTIN
Útgefandi :
„Félag islenzkra tónlistarmanna“.
R i t s t j ó r i :
Hallgrímur Helgason.
Afgreiðslumaður :
E.K., Austurstræti 12.
Simar 2800 og 4878.
Utanáskrift ritsins:
Pósthólf 121, Reykjavik.
Prentað í Félagsprentsmiðjunni h.f.