blaðið - 05.09.2007, Blaðsíða 8

blaðið - 05.09.2007, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIR MIÐVIKUDAGUR 5. SEPTEMBER 2007 blaðiö Schengen Ný aðildarríki stóðust prófin Átta ríki í mið- og austurhluta Evrópu hafa staðist nauðsyn- legar tækniprófanir til þess að geta gerst aðilar að Schengen- samstarfinu. Tíu ríki munu gerast aðilar að samstarfinu um næstu áramót, en eftir á að framkvæma sérstakar prófanir í tveimur ríkjanna, Kýpur og Möltu. Meginmarkmið Schengen- samningsins er að tryggja frjálsa för einstaklinga um innri landamæri samstarfs- ríkjanna og að berjast gegn afbrotum með því að efla lögreglusamvinnu á milli ríkj- anna. aí STUTT • Dauðadómur Hæstiréttur íraks hefur staðfest dauðadóm yfir Ali Hassan al-Majid, betur þekktur sem Efnavopna-Ali, og tveimur öðrum sakborn- ingum sem dæmdir voru fyrir þjóðarmorð. • Verkfall Miklar umferðar- tafir urðu í Lundúnumí gær vegna þriggja sólarhringa verkfalls starfsmanna sem ann- ast viðhald neðanjarðarlesta borgarinnar. Átta liðsmenn al- Oaeda handteknir M Lýsir hinum handteknu sem herskáum múslímum ■ Danska lögreglan hafði fylgst með mönnunum um nokkurt skeið ■ Gefur ekki upp hver skotmörkin voru Eftir Atla ísleifsson atlii@bladid.net Átta karlmenn voru handteknir í aðgerðum dönsku lögreglunnar að- faranótt gærdagsins, grunaðir um að hafa í hyggju að smíða sprengjur og nota þær til hryðjuverkaárása á dan- skri grund. Yfirmaður dönsku leyniþjónust- unnar lýsir hinum handteknu sem herskáum múslímum með bein tengsl við leiðtoga innan hryðju- verkasamtakanna al-Qaeda. Menn- irnir eru á aldrinum nítján til 29 ára og allir af erlendum uppruna. Lögregla réðst til atlögu á ellefu stöðum á Kaupmannahafnarsvæð- inu, þar á meðal á Norðurbrú, Ishoj og Avedore. Sex mannanna eru með danskan ríkisborgararétt og tveir með landvistarleyfi í Danmörku, en talið er að þeir séu ættaðir frá Sómalíu, Tyrklandi, Afganistan og Pakistan. Sex mannanna var sleppt að yfir- heyrslum loknum, en farið var fram á gæsluvarðhald yfir tveimur síð- degis í gær. Að sögn lögreglu hafði verið fylgst með mönnunum um nokkurra mánaða skeið. Jakob Scharf, yfirmaður dönsku leyniþjónustunnar (PET), segir að með handtökunum hafi lögreglan komið í veg fyrir hryðjuverkaárás á landið. Hann segir mennina vera með vilja og getu til að fremja hryðju- verk. Rannsóknir PET höfðu bent til þess að hinir grunuðu hefðu útvegað sér efni til framleiðslu á sprengiefni, sem fundust svo við húsleit lögreglu. „ Að okkar dómi höfðum við safnað saman nægum gögnum til að hand- taka mennina." Scharf gaf þó ekkert upp um hvað talið sé að mennirnir hafi haft í hyggju að ráðast á. Scharf segir að hinir handteknu hafi verið með óstöðug sprengiefni í framleiðslu ogþar sem íbúðirnar séu í þéttri byggð hafi lögregla ákveðið að láta til skarar skríða. Á vef Po- litiken segir að sprengiefnið TATP hafi fundist við húsleit, en sprengi- efnið ku vera mjög algengt í hryðju- verkaárásum úti í heimi. Efnið var meðal annars notað við hryðjuverka- árásirnar í Lundúnum árið 2005 þar sem 53 létust. Réttarhöld hefjast Handtökurnar voru þriðju fjölda- handtökurnar á grundvelli hryðju- ► Lögregla gerði húsleit á ellefu stöðum á Kaupmanna- hafnarsvæðinu, þar á meðal í Vanlose, Albertslund, Hvidovre, á Norðurbrú og á Amager. ► Að sögn danskra fjölmiðla voru maður sem starfaði sem leigubílstjóri og nítján ára rafvirki á meðai hinna handteknu. hryðjuverkalaga í Dan- mörku frá árinu 2005. verkalaga í Danmörku frá árinu 2005. Réttarhöld yfir fjórum mönnum, sem handteknir voru í Óðinsvéum á síðasta ári og eru ákærðir fyrir að skipuleggja hryðjuverk, hefjast í dag. Þátttaka Dana í stríðsrekstrinum í írak hefur gert það að verkum að margir óttast að múlímskir öfga- menn kunni að ráðast á dönsk skotmörk. HVAÐ VANTAR UPP Á? Hringdu í síma 510 3700 eða sendu póst á bladid@bladid.net FAMI Hillur plastvörur fataskapar og stál innréttingar Leidandi ítaLshtjýrirtœhi í hönnun og framíeiðsíu á iðnaðar innréttingum Hillukerfi með marga mögulei Hillukerfi: Hæð 2.2 m, breidd 2.7 m, dýpt 40 cm, tilboðsverð 21.315 kr. Hurðir Fataslá ® Stálskúffur Plastskúffur Bök Gaflar Skilrúm og margt fleiwa Bilainnrettingar fra 25.941 kr. J Hamarshöfda 1. Sími 511 1122 |%l VERSLUN Skoðið FAMI bæklinga á www.ri-verslun.is

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.