blaðið - 05.09.2007, Blaðsíða 13

blaðið - 05.09.2007, Blaðsíða 13
blaðið MIÐVIKUDAGUR 5. SEPTEMBER 2007 FRÉTTIR 13 Viðskipta- hallinn 51 milljarður Hrein staða við út- lönd var neikvæð um 1.472 milljarða króna Viðskiptahallinn var 51 milljarður króna á öðrum ársfjórðungi, sam- anborið við 29 milljarða á fyrsta ársfjórðungi. í tilkynningu frá Seðlabankanum segir að aukningin skýrist af meiri halla á vöruskipta- jöfnuði sem var 31 milljarður króna samanborið við 8 milljarða á fyrsta ársfjórðungi. „Hins vegar voru þjónustujöfn- uður og jöfnuður þáttatekna nánast óbreyttir frá fyrsta ársfjórðungi. Helmingur þáttatekna er endur- fjárfestur hagnaður Islendinga í er- lendum fyrirtækjum en á gjaldahlið vega þyngst vaxtagjöld af erlendum lántökum." 158 milljarðar streymdu inn Hreint fjárinnstreymi nam 158,4 milljörðum á öðrum ársfjórðungi sem er mikill viðsnúningur frá fyrsta fjórðungi ársins, en þá var 22 milljarða króna fjárútstreymi. „Hrein staða við útlönd var neikvæð um 1.472 milljarða króna í lok ann- ars ársfjórðungs og hafði versnað um 133 milljarða á fjórðungnum. Erlendar skammtímaskuldir hækk- uðu um 371 milljarð króna á fjórð- ungnum, einkum vegna hækkunar á innstæðum erlendra aðila í inn- lendum innlánsstofnunum.“ aí Lífland hækkar fóðurverð Lífland hækkaði verð á fóðri um fimm prósent um síðustu mánaðamót. 1 tilkynningu segir að sökum hækkunar á hráefnum til fóðurgerðar auk hækkunar á flutningum til landsins, hafi Lífland séð sig knúið til að hækka fóðurverðið. „Meginorsök hækkunar á hrá- efnum til fóðurgerðar má rekja til uppskerubrests í Evrópu. Auk þess hefur notkun á hveiti og byggi til framleiðslu á bíódís- il snaraukist. Eins og staðan er nú sér ekki fyrir endann á hækkunum á hráefnum, enda er Evrópa nú orðin innflytjandi á kornvörum en var áður útflytj- andi. “ aí FÖSTUDAGAR LÍFSSTÍLLBÍLAR Auglysingasíminn er 510 3744 Kreppa á lártamörkuðum Islendingar í verstum málum Islenska og lettneska hagkerfið eru í mestri hættu að verða fyrir áföllum vegna þeirrar kreppu sem nú ríkir á lánamörkuðum, sam- kvæmt nýrri skýrslu bandaríska lánshæfismatsfyrirtækisins Starnd- ard & Poor’s. Fyrirtækið spáir því að Lettar muni verða beittir þrýstingi að lækka gengi gjaldmiðilsins, sem myndi skaða vonir þeirra um gerist aðilar að evrópska myntbandalag- inu. Islendingar gætu hins vegar orðið fyrir samdrætti í efnahags- kerfinu. Moritz Kraemer, höfundur skýrslunnar, segir að fjárfestar séu varkárari en áður þegar kemur að því að meta áhættu sem tengist fjölda stækkandi markaða. „Fjár- festar velta nú fyrir sér hvaða lönd eru viðkvæmari fyrir fjandsamlegu umhverfi." 1 skýrslunni segir að íslenska hagkerfið sé ofþanið og að mikil sprenging hafi orðið á fasteigna- og lánamarkaði. Ef meiri ró myndi færast yfir vaxtamunarviðskipti í heiminum myndu Islendingar hugs- anlega neyðast til að hækka stýri- vexti. Þar sem stýrivextirnir séu nú þegar 13,5 prósent, væri samdráttur hugsanlegur. atlii@bladid.net LAUGARDAGAR E laði E3 ORÐLAUSTÍSKA Auglýsingasíminn er 510 3744 - .víj"’ ?; ■ *■' : í ■Á Æk, Þö erl leikstjófioí) 1 í þír)(i líft HVAÐ VILTU VERÐA? HVAÐ VILTU LÆRA? HVERT VILTU FARA? ÞÚ ERT LEIKSTJÓRINN f ÞÍNU LÍFI, OG ÞAÐ ER SAMA HVAÐA HLUTVERK ÞÚ VELUR, KAUPÞING STENDUR MEÐ ÞÉR KAUPÞING BÝÐUR ÞJÓNUSTU SEM ER SNIÐIN AÐ ÞÖRFUM UNGS FÓLKS. KANNAÐU MÁLIÐ Á WWW.KAUPTHING.IS/UNGTFOLK EÐA HRINGDU í SÍMA 444 7000. HVERT ER ÞITT HLUTVERK? KAUPÞING Hugsum lengra

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.