blaðið - 05.09.2007, Blaðsíða 18

blaðið - 05.09.2007, Blaðsíða 18
30 MIÐVIKUDAGUR 5. SEPTEMBER 2007 blaðiö ÍÞRÓTTIR ithrottir@bladid.net Grafarvogsbúar flestir hverjir voru meðvitaðir um úrslit leiksins þegar Blaðið fór á stúfana í gær og stoltir af litla liðinu sínu. Þó varð mörgum tíðrætt um lánsmenn þá sem Fjölnir er með frá FH. SKEYTIN INN Allt er nú til. Nú hefur Alessandro Del Piero leik- maður Juventus unnið Gullna fótinn sem eru sérstök verðlaun til handa þeim knattspyrnumönnum sem eldri eru en 29 ára. Sem er stórmerki- legt þar sem meirihluti betri knattspyrnumanna heimsins er einmitt yfir þeim aldri. Það skýrir kannski valið á Del Piero, sem verður að teljast langsótt, að það eru knattspyrnuáhang- endur sem velja þann besta úr hópi tíu aðila sem sérstök nefnd velur og miðað við að allir sem unnið hafa spiluðu á Ítalíu á þeim tíma er ljóst að þarlend- ir fjölmenna með atkvæðin. Matthew Ether- ington, leikmaðurWest Ham, er einn þeirra bráðefni- legu einstaklinga sem virtust deyja á leið sinni til frekari frægðar fyrir nokkrum árum. í hans tilfelli var þó um gilda ástæðu að ræða en Ether- ington hefur um nokkurra ára skeið glímt við mikla spilafíkn og hefur verið í meðferð eftir meðferð við vandanum. Segist hann vera að nálgast sitt gamla form á nýjan leik og það sést; hann hefur ekki spilað jafn vel og nú í fjögur eða fimm ár. Stolt siglir fley Fjölnis UTSALAN ER HAFIN 15-75% AFSLATTUR Veiðiportið Grandagarði 3 Vart er búið að flauta leiktíðina á á Spáni þegar Spánverjarnir eru farnir að tala um kaup ársins. Þann titil hlýtur Hollendingur- inn Wesley Sneijder sem farið hefur á kostum, skorað þrívegis og valdið miklum usla í vörnum andstæðinga hingað til. Sneijder er blanda af hraða og snerpu Arjen Robben og útsjónarsemi og leikni Luis Figo þegar hann var upp á sitt besta auk þess sem sjálfstraustið er mikið enda ekki beint auðvelt að koma nýr inn hjá stjörnum prýddu stórliðinu. Þá er Arjen Robben að komast í lag á nýjan leik og hann tók sínu fyrstu æfingu með Real Madrid í gær. Hann á hins vegar talsvert í að ná fullu leikformi og verður væntanlega ekki með liðinu í næsta leik. Ibúar Grafarvogs yfir sig hrifnir Nýtt stórveldi í fæðingu Eftir Albert Örn Eyþórsson albert@bladid.net Sigur 1. deildarfélags Fjölnis úr Grafarvogi á úrvalsdeildarliði Fylkis í undanúrslitum Visa-bikarkeppni karla í knattspyrnu hefur þótt mikil tíðindi. Fylkir var eðlilega að flestra mati mun sigurstranglegra fyrir leikinn en Leifi Garðarssyni hefur ekki tekist á ná stöðugleika í liðið og þeir voru áberandi lélegri aðilinn gegn Fjölnismönnum. En þótt margir kjósi að líta svo á að um mikið ævintýri sé að ræða líta dyggir stuðningsmenn ekki svo á; það hafi aðeins verið tímaspursmál hvenær liðið færi að blómstra. Grafarvogsbúar flestir hverjir voru meðvitaðir um úrslit leiksins þegar Blaðið fór á stúfana í gær og stoltir af litla liðinu sínu. Þó varð mörgum tíðrætt um lánsmenn þá sem Fjölnir er með frá FH og töldu flestir að möguleikar Fjölnis til að gera góða hluti gegn íslands- meisturunum yltu á því hvort þeir fengju áfram að spila með Fjölni. Að sögn Péturs Stephensen, fram- kvæmdastjóra og stjórnarmanns hjá FH, mun samningur liðanna standa að svo stöddu. Það þýðir að þeir Atli Viðar Björnsson, Heimir Snær Guðmundsson og Sigmundur Ástþórsson verða ekki með Fjölni í úrslitaleiknum. Er það mikil blóð- taka, ekki aðeins fyrir Fjölni, heldur einnig leikmennina sjálfa sem hafa staðið sig framúrskarandi vel fram að þessu, til þess eins að vera áhorf- endur þegar að stóru stundinni kemur. Pétur ítrekar þó að stjórnin eigi eftir að koma saman og ræða málið og telur ekki útilokað að samn- ingurinn verði endurskoðaður. Eitt er víst; FH-ingar eignast enga vini í Grafarvoginum neiti þeir að fram- lengja lánssamning strákanna fram yfir úrslitaleikinn. STEMMNINGIN I GRAFARVOGINUM Aldís Alfonsdóttir „Maðurinn minn var svo hrifinn af leik Fjölnis að hann ætlaði að æða á völlinn þegar framlengt var og lýsti því yfir að hann væri hættur að halda með Breiðablík eins og hann hef- ur lengi gert. Nú er lið Fjölnis númer eitt, tvö og þrjú og vonandi halda þeir ferðinni áfram og vinna úrslitaleikinn.” Sigurður Hafsteinn Sigurðsson „Svona stemning hefur ekki verið vegna Fjölnis nokkurn tíma held ég. Þetta var alveg geðveikur leikur og ég var alveg að fara á taugum oftar en einu sinni í leikn- um sjálfum. Við fórum 20 saman á völlinn úr þriðja flokki Fjölnis og marg- ir með Fjölnis-tattú og þetta var frábært alveg saman. Fjóla Lind Sig- urlaugardóttir „Úrslitin komu mjög á óvart og það var ótrúlegt að upplifa svona sigur enda hafa þeir sjaldan spilað svona vel eins og gegn Fylki. Það gerir þetta líka meira spennandi að Fjölnir er svo lítið félag og ungt og ótrúlegt að ná þetta langt. Nú vona ég bara að lánsstrákarnir úr FH fái að spila úrslitaleikinn því ann- að er bara rugl og væri ósanngjarnt. Ég veit samt ekki hvort við vinnum FH í úrslitunum.” Kristín Runólfs- dóttir „Það voru margir krakkar merktir í bak og fyrir í yngstu bekkj- unum í Engjaskóla í morgun og það skein gleði úr andlitum fjölmargra vegna úrslitanna. Ein stúlkan var með sjö Fjölnismerki í andlitinu. Ótrúlega gaman að þessu og þetta hefur haft virkilega jákvæð áhrif á marga í hverfinu. Það voru líka margir á leiknum sjálfum sem var mikið fjör þótt veðrið hefði getað verið betra.” Ásgeir Þ. Gestsson „Svona hef ég ekki upplifað áður með Fjölni. Einstök stemning og auðvelt að vera stoltur af strák- unum í liðinu enda lékur þeir gegn miklu betri mót- herja þótt það hefði ekki verið hægt að sjá í leiknum sjálfum. Ég veit ekki með úrslitaleikinn. Hann verður erfiður og veltur mikið á hvort FH-ingarnir fá að spila með eða ekki." Þögull sem gröf Talsmaður Newcastle United tjáði Blaðinu að forsvars- mönnum liðsins bærust fyrirspurnir um hugsanleg kaup frá fjárfestum nánast á hverjum degi og hann hvorki vildi né gat tjáð sig um hvort íslenskir aðilar ættu enn í viðræðum um kaup á félag- inu. Þrjár vikur eru síðan Pálma Haraldssyni datt í hug að kaupa liðið enda mikill aðdáandi en enginn þykir lengur maður með mönnum í hans félagsskap nema eiga eitt félagslið eða svo. Pálmi hefur ekki svarað fyrirspurnum Blaðsins. Fanga leitað Annar milljarðamæringur, Indverjinn Vijay Mallya, hefur keypt helmingshlut í Formúlu- liði Spyker og hyggst beita sér fyrir að ein keppni í Formúlu fari fram á Indlandi í fram- tíðinni. Það eru góðar fréttir fyrir indverska áhugamenn um bíla og hraða en verri fyrir íslendinga með sömu áhuga- mál því beinar útsendingar frá slíkum viðburði yrðu um miðja nótt. Fúll yfir Subaru Norðmaðurinn Petter Solberg sem ekur á Subaru í heims- meistarakeppninni í ralli er fúll yfir bíl sínum og heimtar meiri kraft. Solberg sem varð heimsmeistari árið 2004 varð sjöundi um helgina á Nýja-Sjá- landi og kennir bílnum um. Nema hvað. Glaður og meyr Phil Mickelson er yfirmáta ánægður með sjálfan sig eftir sigurinn á Deutsche Bank-mót- inu um helgina. Verðlaunin góð og fin en ánægðastur var karlinn með þá staðreynd að hann hélt aftur af Tiger Woods en Mickelson hefur farið á taugum í tíu ár í hvert sinn sem Tiger nálgast hann á mótum eins og reyndar er orðið stórt sálrænt vandamál hjá fjölda kylfinga. Með sigr- inum endurheimti Mickelson annað sætið á heimslistanum.

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.