blaðið - 05.09.2007, Blaðsíða 16

blaðið - 05.09.2007, Blaðsíða 16
MIÐVIKUDAGUR 5. SEPTEMBER 2007 blaöiö KOLLAOGKÚLTÚRINN kolbrun@bladid.net Ástin flýgur, tekur á sprett og fagnar. Hún er frjáls og ekkert getur haldið aftur af henni. Thomas Kempis Irsk stemning á Næsta bar Tónleikar verða haldnir í kvöld, miðvikudaginn 5. september, á Næsta Bar sem er gegnt íslensku óperunni. Flytjendur eru Rósin okkar, sveit með fimm meðlimum, og eru írsk þjóðlög meginuppistaðan í dagskránni. Spilað verður á fiðlu, gítar, harmóníku, bothrán-trommu og hörpu. Meðimir hljómsveitarinnar eru: Rósa jóhannesdóttir, Skarphéðinn Haraldsson, Ari Agnarsson, Sólveig Thoroddsen og Kristján Kristmannsson. Tónleikarnir hefjast klukkan 21.30. Arkitektúr og listir Á sýningu Gjörningaklúbbsins, sem opnuð var um helgina, getur að líta ævintýralega innsetningu, eða þrívítt vö- lundarhús, sem hverfist um verk Gjörningaklúbbsins. Vö- lundarhúsið er samstarfsverk- efni Gjörningaklúbbsins og THG arkitekta. Umsjón með hönnun þess hafði arkitektinn Arnaldur Geir Schram. Næstkomandi fimmtudag kl. 17.00 mun Arnaldur fjalla *> um samspil arkitektúrs og lista við tilurð sýningarinnar; hugmyndina að baki inn- setningunni, þróun, hönnun, uppsetningu og samstarfið við Gjörningaklúbbinn. Að loknu erindi Arnaldar munu Gjörningaklúbburinn og Arn- aldur sitja fyrir svörum um sýninguna. Sýning á Þjórs- árbökkum Tveir listamenn sýna á haust- sýningu í Gallerí Kambi á Þjórs- árbökkum í Rangárvallasýslu. * Sýningin hefst á laugardaginn 8. september og stendur til 30. september. Ljósmyndarinn Sigurgeir Sigurjónsson sýnir í aðalrými og bandaríski lista- maðurinn William Antony í kynningarrými. Sigurgeir Sigurjónsson fæddist í Reykjavík árið 1948. Verk hans hafa birst í fjölda bóka. William Antony fæddist 1934 í New Jersey U.S. A. en býr nú í New York. Hann er víðfrægur listamaður og stíll hans þykir afar sérstakur og kómískur. Verk hans eru á 24 listasöfnum víða um heim. AFMÆLI í DAG John Cage tónskáld, 1912 Loðvík XIV. konungur, 1638 Arthur Koestler rithöfundur, 1905 Werner Herzog leikstjóri, 1942 Spessi sendir frá sér ljósmyndabók Að fanga andrúmsloftið Spessi gefur út Ijósmynda- bókina Location sem er ekki síst ætluð fyrir erlendan markað en fyr- irtæki í New York mun dreifa henni um allan heim. Eftir Kolbrúnu Bergþórsdóttur kolbrun@bladid.net Ljósmyndarinn Spessi hefur gefið út bókina Location sem geymir ljós- myndir frá íslandi. í bókinni eru myndir af blokkum í Reykjavík, atvinnuhúsnæði á Akureyri, vinnu- skúrum við Kárahnjúka og íbúðar- hús við Raufarhöfn, myndað bæði að utan og innan. Skrásetning á umhverfi „Þar sem myndir frá sama staðnum eru jafnvel á nokkrum síðum þá má líta á þær sem smá- sögur,“ segir Spessi um myndirnar í bókinni. Fólki bregður vart fyrir á myndunum en ummerki eftir mann- inn eru þó greinileg. „Staður er ekki staður fyrr en einhver hefur komið þangað. Það eru för eftir manninn svo að segja á hverjum einasta stað á landinu. Þess vegna reyni ég að taka myndir þannig að persónunni sem horfir á þær finnist eins og hún sé á staðnum. Landslagsmyndir eru stundum þannig að áhorfandinn upplifirþær einungis með augunum en finnur enga stemningu. Þegar ég tek mynd reyni ég að fanga stemning- una á staðnum fremur en það sem augað sér,“ segir Spessi. „Ég velti því ekki fyrir mér hvort staðirnir eru fallegir eða ljótir. Að því leyti er ég hlutlaus en viðfangsefnin eru samt vandlega valin. Mér finnst gaman að taka myndir sem lýsa fullkomnu afstöðuleysi. Þá er myndin næstum því af engu og það er mikil ögrun að taka slíka mynd. Myndirnar í þessari bók bera keim af því og eiga að lýsa andrúmslofti." Hann segir myndirnar í bókinni hafa heimild- argildi. „Mér hefur alltaf fundist heimildargildið skipta miklu máli í ljósmyndun, það hefur gildi að skrá- setja umhverfið í myndum.“ Lét ekkert stöðva sig Titill bókarinnar varð til á undan myndunum. „Ef ég hefði tekið myndir án þess að hafa titil þá hefði bókin sennilega orðið fremur losaraleg. En af því að ég var með vinnuheiti þá var ég allan tímann að skilgreina það sem ég myndaði," MAÐURINN ► Spessi - Sigurþór Hall- björnsson - er fæddur árið 1956 á ísafirði og lauk námi í Ijósmyndun frá Akademie voor Beeldende Kunst í Hollandi. w Hann hefur haldið fjölda sýn- ^ inga á Ijósmyndum sínum á íslandi, í Hollandi, Svíþjóð, Finnlandi, Bandaríkjunum og Bretlandi, og myndir hans hafa víða birst á prenti í fjölmörgum tímaritum og bókum. ► Bók helguð verkum Spessa, Bensín, var gefin út í tengsl- um við einkasýningu hans á Kjarvalsstöðum 1999. Úr Ijósmyndabókinni Location „Þegar ég tek mynd reyni ég að fanga stemninguna á staðnum fremur en það sem augað sér.“ segir Spessi. „Titillinn er á ensku og hann kom til mín þannig. Ég fann ekkert íslenskt orð sem passar við „location'. Bestu orðin eru sennilega „vettvangur“ og „staðsetning", þótt mér þyki þau ekki ná merkingunni fullkomlega." Spessi gefur bókina út sjálfur. „Útgáfuforlögin hér á landi höfðu engan áhuga á því að gefa hana út,“ segir hann. „Það skipti mig máli að hún kæmi út og ég fór af stað. Þegar maður hefur takmark lætur maður ekkert stöðva sig. Ég tók eina mynd í einu og stóð uppi með fjölda af myndum. Þá þurfti að leysa peninga- hliðina sem snýr að útgáfu og ég fékk styrk frá Kaupþingi í London. Bókin er ekki síst hugsuð fyrir er- lendan markað. Gott dreifingarfyr- irtæki í New York, DAP, ætlar að dreifa bókinni víða um heim. Áhugi þeirra á dreifingu bókarinnar setur hana í vissan gæðaflokk. Þegar upp er staðið finnst mér ágætt að vera sjálfur útgefandinn.“ Spessi „Ég velti því ekki fyrir mér hvort staðirnir eru fallegir eða Ijótir. Að því leyti er ég hlutlaus en við- fangsefnin eru samt vandlega valin, MENNINGARMOLINN Fæðing Jesse James Á þessum degi árið 1847 fæddist bandaríski útlaginn Jesse James í Missouri. Ásamt bróður sínum Frank lagði hann út á glæpabraut- ina á unga aldri. Bræðurnir, ásamt félögum sínum, stunduðu banka- og lestarán þar sem saklaust fólk lét lífið eftir að hafa orðið fyrir byssukúlum. 1 hugum margra voru bræðurnir, og þá sérstaklega Jesse, ný útgáfa af Hróa hetti, kjarkaðir menn sem stálu frá þeim ríku til að gefa þeim fátæku. Raunveruleikinn var allur annar því bræðurnir og glæpagengi þeirra létu sér á sama standa um þá sem minna máttu sín. Samt sem áður er goðsögnin um hin góðhjartaða vin alþýðunnar, Jesse James, enn við lýði. Jesse James var skotinn í bakið árið 1882 af útsend- ara ríkisstjórans í Missouri.

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.