Dagblaðið Vísir - DV - 18.06.2007, Qupperneq 13
DV Sport MÁNudagur 18. JÚNÍ 2007 13
Íslenska liðsins af miklum myndar-
leik. Hann var að vonum sáttur að
vera kominn til Noregs á enn eitt
stórmótið.
„Við vorum að spila vel sóknar-
lega, við vorum komnir í virkilega
góða stöðu en slökuðum aðeins á og
hleyptum þeim aðeins of nálægt og
í aðeins of mikla spennu. En erum
komnir áfram og það er bara gott. Frá-
bær stemming og ekkert nema gott að
segja,“ sagði Snorri og rauk í burtu til
að þakka frábæran stuðning.
Þjóðin er vonandi stolt af
okkur
Guðjón Valur Sigurðsson skap-
aði frábæra stemmingu með mörk-
um sínum úr hraðaupphlaupum og
hann þakkaði áhorfendum fyrir.
„Stemmingin sem skapaðist í
kringum Svía leikinn í fyrra og aft-
ur núna, það eru forréttindi að fá að
taka þátt í svona. Ég bara þakka öll-
um sem hingað komu. Íslendingum
sem komu í höllina og bara öllum.
Þetta var alveg ótrúlegur stuðning-
ur sem hefur verið á bak við okkur
síðustu daga og eins og ég segi þá
er það bara forréttindi að fá að spila
þennan leik. Við erum búnir að sýna
það og sanna að við erum helvíti
góðir í handbolta.
Vörnin var samt sem áður ekki
nógu góð en samt sem áður þá berj-
umst við eins og ljón allan tíman og
við getum held ég verið stoltir og líka
vonandi þjóðin af okkur.
Við vorum alveg gjörsamlega
búnir, vorum flestir á síðustu bens-
índropunum síðasta korterið. Bolt-
arnir hjá þeim voru að leka inn en
skítt með það, við erum komnir á
enn eitt stórmótið og það er allt sem
hægt er að biðja um.“
Kári Garðarsson, benni@dv.is, asgeir@dv.is
Íslenska landsliðið í handbolta
tryggði þátttöku sína á stórmóti
níunda árið í röð með því að leggja
Serbíu að velli fyrir framan troð-
fulla Laugardalshöll.
Ógeðslega hamingjusamur
Logi geirsson átti frábæran leik og svaraði gagnrýni sem hann fékk eftit fyrri leikinn
mjög vel. Hann var að vonum ánægður í leikslok. „Ég er ógeðslega hamingjusamur,
þetta er einn stærsti leikur sem ég hef spilað á ferlinum þrátt fyrir að hafa spilað á
Heimsmeistaramóti þá toppar þessi leikur það. Þetta var frábært og að vinna þetta
einvígi með einu marki það er ólýsanlegt. Svona eru sætustu sigrarnir.Spennan í lokin
var náttúrulega alveg órúleg. Ég gæti ekki verið sáttari,” sagði Logi í leikslok
Ánægður að komast í frí
Birkir Ívar guðmundsson varði vel í leiknum þó sérstakleg í síðari hálfleik. aðspurður út í
fyrstu viðbrögð eftir leikinn sagði Birkir Ívar: „Ég er bara feginn að vera kominn í frí, þetta
er langþráð frí enda álagið búið að vera mikið. Þetta var stórkostlegur leikur að spila og
stemmningin ólýsanleg. Serbarnir keyrðu grimmt á okkur og það kom mér ekki á óvart.
Við erum klárlega með sterkara lið en Serbarnir,” sagði Birkir.
Serbarnir minnkuðu muninn óþægilega mikið í lok hálfleiksins. Spurður út í ástæðuna
fyrir því að Serbarnir komast inn í leikinn sagði Birkir:„Þeir bregða á það ráð að taka tvo
úr umferð og við erum smástund að átta okkur á því. Það má ekki gleyma því að
serbneska liðið er samansafn af frábærum handboltamönnum,” bætti Birkir við að
lokum.
Hugsar málið í fríinu
alfreð gíslason var ekki alveg ánægður með dómgæsluna í leiknum en var ánægður
með að liðið hafi tryggt sér farseðilinn til Noregs. „Við komumst í þægilega stöðu en þeir
ná að saxa á forskotið í lokin. Við fáum suma dóma ekki með okkur á þeim kafla en ég er
ekki að segja að dómararnir hafi verið arfaslakir en mér fannst halla eilítið á okkur. Við
vorum í vandræðum með varnarleikinn og vorum að reyna að bakka niður í 6-0 til á
línumanninn þeirra en það gekk illa. En varnarleikurinn skánaði þegar líða tók á seinni
hálfleikinn,” sagði alfreð.
„Ef ég myndi svara HSÍ í dag þá myndi ég pottþétt segja að ég væri hættur með
landsliðið. En ég ætla að taka mér sumarfrí núna sem ég þarf verulega á að halda og
skoða svo málin í framhaldinu með HSÍ,” sagði alfreð aðspurður um hugsanlegt
áframhald hans sem landsliðsþjálfara.
Kóngurinn Óli Ólafur Stefánsson fyrirliði landsliðsins fór fyrir sínum mönnum í
sóknarleiknum. Hann bar hann uppi á stundum og var einnig duglegur eins og alltaf
að finna samherja sína í góðum færum.
Kom með kraft Ásgeir Örn Hallgrímsson kom af bekknum í síðari hálfleik og skilaði
hlutverki sínu vel.
Bestur á vellinum alexander Petterson lék að vanda skínandi vel í landsliðsbún-
ingnum. Hann barðist eins og ljón allan leikinn, skilaði sóknarhlutverkinu vel og var
markahæstur. Varnarleikurinn var einnig til fyrirmyndar.
Vertu Áfram alfreð