Dagblaðið Vísir - DV - 18.06.2007, Qupperneq 27
Ánægður
með Foxx
Leikarinn Al Pacino segir að af þeim
grínistum sem reynt hafi að herma
eftir sér, þá sé það Jamie Foxx sem
gerir það best. Þetta kemur fram í
nýlegu viðtali við leikarann í
tímaritinu Times. „Kevin Spacey er
ágætur, en Jamie Foxx á líklega bestu
eftirhermuna. Þetta er svona eins og
þeir sem eiga auðveld með að spila á
hljóðfæri, svipaður hæfileiki,“ segir
Pacino. Á hinn bóginn hefur Foxx
sagst hafa gleypt munnvatn úr
Pacino og að það hafi hjálpað honum
að vinna Óskarsverðlaunin fyrir
hlutverk sitt sem Ray Charles.
Eigendur Reyka Vodka hafa farið af stað með auglýsingaherferð sem mun kosta um milljón dali:
Geysir, lundi og Hafdís Huld
Skoski viskí framleiðandinn
William Grant & Sons sem er eigandi
Reyka Vodka hafa sett af stað aug-
lýsingaherferð þar sem söngkonan
Hafdís Huld er í aðalhlutverki. Aug-
lýsingaherferðin byggist aðalega upp
á sjónvarpsauglýsingum þar sem
Hafdís Huld kynnir fyrir áhorfend-
um hinn alíslenska vodka og um leið
land og þjóð.
Í auglýsingunum hefur verið
skapaður einskonar teiknimynda-
heimur þar sem þekktum landa-
merkjum eins og Geysi, lundanum
og víkingunum bregður fyrir og Haf-
dís Huld er leiðsögumaður. Í einni
auglýsingunni sem eru allar á ensku
segir hún meðal annars: „Á Íslandi
er besta vatn í heimi og við ákváðum
að breytu smá af því í vín. Alveg eins
og Jesú gerði. Við erum þó ekki að
segja að við séum eins og Jesú. Við
tölum ekki við Guð og við göngum
ekki í sandölum. Það er alltof kalt til
þess.“
Ein af hverjum fjórum sterk-
um vínflöskum sem keyptar eru
í Bandaríkjunum eru vodki. Því
ákváðu William Grant & Sons þegar
þeir ætluðu með vodka á markað í
Bandaríkjunum að þeir þyrftu eitt-
hvað sérstakt og var hinn alíslenski
Reyka vodki fyrir valinu. Herðferðin
hefur vakið mikla athygli vestanhafs
og er mikið tal um að Reyka sé svo-
kallaður grænn vodki þar sem hann
er framleiddur í Borgarnesi með
náttúruvænni orku. Hægt er sjá aug-
lýsingarnar inn á www.reyka.com.
asgeir@dv.is
Samstarf með
Sonicbids
Aðstandendur Iceland Airwaves hafa
gert samstarfsamning við Sonicbids,
sem gefur innlendum sem erlendum
hljómsveitum kost á að sækja um á
hátíðinni með rafrænum hætti.
Samstarfið opnar jafnframt tækifæri
á enn frekari kynningu á Airwaves
hátíðinni á alþjóðlegum vettvangi
meðal tónlistarmanna og starfs-
manna tónlistarbransans - en yfir
100.000 hljómsveitir og 10.000
tónleikahaldarar nýta sér þjónustu
félagsins. Má þar nefna bransahátíðir
á borð við CMJ í New York,
Poppkomm í Berlín og Midem í
Cannes.
Kynlíf
þarf ekki að
vera alvarlegt
Leikkonan Jessica Alba segir í nýlegu
viðtali að hún búist ekki við neinu af
strákum sem hún sefur hjá. „Ég gæti
alveg tekið þátt í einnar nætur gamni
án nokkurra vandkvæða. Mér finnst
líka hálf pirrandi að vakna upp með
strákana við hliðina á mér. Það þarf
ekkert kúr, þetta var bara það sem
það var,“ segir hin frjálslynda Alba.
Henni leiðist líka það umtal sem
frjálslyndar stúlkur eins og hún fá.
„Stelpa þarf ekki að vera lauslát, bara
af því að henni finnst kynlíf gott.“
Fjölbreyttir og skemmtilegir hópar sem starfa við skapandi sumarstörf á vegum
Hins hússins í sumar settu skemmtilegan lit á miðborgina á föstudaginn. Hóparn-
ir eru nú farnir á fullt með störf sín og mega gestir og gangandi í miðbænum eiga
von á margvíslegum skemmtunum og uppákomum í sumar en hóparnir eru hver
öðrum skrautlegri.
MÁNudagur 18. JÚNÍ 2007DV Bíó 27
Hafdís Huld Kynnir reyka Vodka í nýrri
auglýsingaherferð sem kostar um milljón
dali.
www.reyka.com Hægt er að sjá
auglýsingarnar á heimsíðunni.
Mergstaðarættin frá Laugarvatni
Staldraði við í höfuðborginni á leið
sinni í menningarferð til Bíldudals
og Bolungarvíkur.
Slefberi Kom sér fyrir á Laugarveg-
inum með ljósmyndasýninguna
Nærmynd og hélt tónleika.
Títa prjónaði á Austurvelli Til
styrktar hjartveikum börnum, hún
skorar á fyrirtæki að leggja sitt af
mörkum með áheitasöfnun.
Hnoð hópurinn Hnoðaði sér
saman eftir að hafa dansað
niður Laugaveginn.
Hópurinn Xavier & McDaniel unnu
með samspil tónlistar og video
listar í Nakta apanum á föstudag.
FÖSTUDAGSFIÐRILDI
Í MIÐBORGINNI!