Sagnir - 01.06.1997, Page 16

Sagnir - 01.06.1997, Page 16
í friðarsamningunum var sem sagt ekki verið að flækja aðdraganda stríðsins. Þjóðverjar og bandamenn þeirra báru einfaldlega alla ábyrgð á því að stríðið braust út og andstæðingar Þjóðveija voru því, samkvæmt Versalasamningunum, al- saklaus fórnarlömb þýskrar árásargirni. bessi hluti samninganna var þó ekki niðurstaða rannsóknar á aðdraganda stríðsins heldur fyrst og fremst réttlæting á öðrurn hlutum hans þar sem Þjóðverjum var refsað með ýmsum hætti. Meðal ann- ars þurftu þeir að greiða sigurvegurunum háar stríðsskaðabætur. Það leið heldur ekki langur tími þar til útskýringu Ver- salasamninganna á hver bæri ábyrgð á því að fyrri heimsstyrjöldin braust út var mótmælt. Strax eftir stríðið urðu þær raddir há- værar sem sögðu að ekki væri sanngjarnt að skella allri skuldinni á þau riki sem höfðu tapað stríðinu. Sú hugmynd varð ráðandi að ef benda ætti á sökudólg vegna fyrri heimsstyrjaldarinnar þá væri sá sökudólgur úrelt kerfi alþjóðasamskipta sent ekki hefði dugað til að tryggja frið í Evrópu.Alls ekki væri hægt að segja að eitthvert eitt ríki, eða hernaðarbandalag, bæri ábyrgð á því að til stríðs kom þar sem ekkert ríki vildi í raun stríð. Þessi hugmynd gerði ráð fýrir að fyrri heinrs- styrjöldin hefði einfaldlega verið slys sem enginn vildi að yrði og enginn bæri meiri ábyrgð á en aðrir. Sú myndlíking var jafnvel notuð að spennan milli hern- aðarbandalaganna, og hervæðingarkapp- hlaupið milli þeirra, hefði myndað púð- urtunnu. Ekki hafi þurft nema lítinn neista til að tunnan spryngi og öll Evrópa með. Morðin á Frans Ferdinand ríkisarfa Austurríkis-Ungverjalands og eiginkonu Versahsimmingarnir undirritaðir. Samkvœmt þcim báru Þjóðverjar og bandamenn þcirra alla ábyrgð á því að til styijaldar kom. hans í Sarajevo 28.júní 1914 voru sam- kvæmt þessu neistinn sem olli sprenging- unni. „Púðurtunnuna" höfðu öll stór- veldin tekið þátt í að búa til og því báru þau jafna ábyrgð á þvi að til stríðs kom. Kenningin gerir ráð fyrir að morðin Daiiðinn I skotgröjinni. Bresk skotgröf við Soiniiie 1916. hafi verið slík ögrun að Austurríki-Ung- verjaland hafi ekki átt annan kost en að bregðast mjög hart við gagnvart Serbíu. Aðgerðirnar sem ráðamenn í Vín komust ekki hjá að grípa til uröu til þess að Rúss- ar neyddust til að taka harða afstöðu með hinum serbnesku bandamönnum sínum. „Styrjöldin er að mörgu leiti vendipunktur í mann- kynssögunni og því hljóta orsakir þess að til stríðs kom árið 1914 að vera eitt mikilvægasta atriði sögu 20. aldar." Það að Rússar hófu herútboð varð til þess að Þjóðverjar drógust inn í málið og þar með voru Frakkar líka orðnir aðilar að stríðinu. Sú staðreynd að þýski herinn fór i gegnum Belgíu á leið sinni til Frakk- lands varð þess loks valdandi að Bretar gátu ekki haldið sig utan við átökin. Þetta var nokkuð „þægileg“ kenning þar sem enginn þurfti að lifa með tilhugs- uninni um að hans þjóð hefði orsakað þetta mikla stríð og engin þjóð var út- hrópuð af öðrunr þjóðum Evrópu fyrir það að hafa komið stríðinu af stað.Jafnvel David Lloyd George, sem hafði verið for- sætisráðherra Bretlands þegar Versala- samningarnir voru gerðir, tók undir þessa söguskoðun. Hann lýsti því yfir árið 1924 að enginn af ráðamönnum Evrópu hafi getað séð það fyrir vorið 1914 að stríð væri að brjótast út. Hann tók undir að ekki væri hægt að kenna neinni ákveð- inni ríkisstjórn, þjóð eða bandalagi um að til stríðs kom og orðaði skoðun sína skáldlega þegar hann sagði: „Þjóðirnar runnu fram af brúninni ofan í sjóðandi ketil styrjaldar."3 Þessi kenning um að fyrri heimsstyrj- öldin hafi verið „sögulegt slys“ en ekki ásetningur neins varð að almennri sögu- skoðun og var ekki haggað að ráði fýrr en þýski sagnfræðingurinn Fritz Fischer gaf út bókina Griff ttach der Wcltniacht árið 1961. Fischerdeilan I Griff nacli der Weltmacht taldi Fischer að orsakir fyrri heimsstyrjaldarinnar mætti rekja til þess að Þýskaland rak hættulega utanríkisstefnu þar sem mikið var lagt undir í þeim tilgangi að gera ríkið að heimsveldi. Þessa áhættusömu utanríkis- stefnu taldi hann hafa náð hámarki sum- arið 1914 þegar reynt var að efla Austur- ríki-Ungverjaland, eina trausta banda- mann Þýskalands, á kostnað slavneskrar þjóðernishyggju og ekki síður að minnka ítök Rússa á Balkanskaga. Hann taldi að þessi áhætta sem Þjóðverjar tóku hefði einfaldlega orðið til þess að stórstyrjöld braust út.J Ekki voru allir sammála Fischer um að aðgerðir Þjóðverja hefðu komið fyrri heimsstyijöldinni af stað og i kjölfar bók- arinnar fylgdi mikil deila um aðdraganda fyrri heimsstyrjaldarinnar og önnur tengd málefni. I Þýskalandi varð „Fischerdeil- an“, eins og hún var kölluð, að miklu 14 SAGNIR
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Sagnir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sagnir
https://timarit.is/publication/1025

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.