Sagnir - 01.06.1997, Page 39

Sagnir - 01.06.1997, Page 39
afi Brynju felldi tré sem hún tók i sína vörslu og kom því í mold annarsstaðar. Þar laufgaðist það á nýjan leik. Þetta tré er nú staðsett á leiði móður hennar, fýrrver- andi konu Jóns. Einsog von um að það sem Guð fellir í þessu lífi, geti verið sett i aðra mold þarsem það laufgar sínum hlátrum og sinni gleði. Dauðinn sé eng- inn endir. Þannig er þessi ólaufgaða trjá- grein í myndinni ekki vísun til myrks dauðans sem endalok alls, heldur einmitt hins gagnstæða, vísun til lífsins sem bíður i meintum dauðanum. Hringrás lífsins. Það eru síðan þrjú hringlaga form á myndinni, hin heilaga þrenning. Formin eru likust laufblöðum, þ.e. laufblöðin sem munu spretta fram á því tré sem aðrir héldu dautt. Það líf er i hinni heilögu þrenningu. A fjórðu myndinni sem ég mun taka til umfjöllunar af þessari sýningu, eru tvær manneskjur sem svífa um myndflötinn. Þessi mynd er draumkenndari en aðrar rnyndir á sýningunni. Er einkum tvennt sem veldur því, það er lega manneskjanna sem liggja gegnt hvorri annarri i hálflá- réttri stellingu, jafnvel svefnstellingu og síðan að önnur þeirra er með lokuð aug- un og liklegast hin einnig, en við sjáum aðeins í hnakka hennar. I myndinni er mikil mýkt og ástúð, enda virðist Jón vera að fjalla um ást þessara tveggja einstakl- mga, umvafðir í hlýrri gulri birtu sem er bakgrunnur myndarinnar. í kringum þá eru sjö ský með mjúk form og þrátt fyrir að vera dökkleit mynda þau enga ógn í niyndinni. Aðeins talan sjö vekur örlitinn ugg í brjósti áhorfandans með tilliti til trúarlegra tákna, því menn þekkja jú hina sjö refsiverðu lesti mannanna sem kaþ- ólskan varaði við. En ástarsambönd eru einmitt bestu gróðraskilyrði fyrir þá lesti. Lengst til hægri í myndinni er siðan stað- settur gluggi, sem veitir áhorfandanum öryggiskennd. Það er eitthvað annað, annarsstaðar og það er bjart. I öðrum myndum á sýningunni miðlar hann fijósemi lífsins og von með táknum um hringrásina, stillir upp miðaldra karl- manni og ófullburða fóstrum í formi hænueggja, greipaldinum og áðurnefnd- um trjágreinum sem ekki aðeins skera myndflötinn lárétt heldur stillir hann þeim upp til sinnhvorra hliðanna einsog umgjörð utan um það líf sem hann málar á léreftið. Auk glugganna notast hann við spegil til að vísa til handanheims og vonar um eitthvað annað. Staðfesta Jóns Axels hvað myndefni varðar er aðdáunarverð, en þessi verk hans lýsa meiri ró en þau fýrri. Hér er ekki teygt á líkömum, litir þeirra flæða ekki yfir til umhverfisins og öfugt og mannverurnar horfa með undarlegri ró og staðfestu út úr myndinni þrátt fýrir að búa enn í þvi undarlega og óörugga rými sem Jón hefur skapað þeinr.Túlkun hans á rými mannverunnar er á þann veg að fellur vel að kenningum tilvistarsinna. Heimurinn sem við búum i er heimur óöryggis og ógnar, hvergi er hægt að styðja sig eða drepa niður fæti. Sá heimur sem við kynnumst í verkum Jóns er heimur algjörs frelsis, endalaust tómið. Orvænting og angist er gegnumgangandi í málverkum hans allt frani að síðustu verkum þegar verurnar öðlast undarlega ró samfara því að þeim opnast von. Með sívaxandi trúarlegum tilvitnunum í verk- um Jóns, hefur hann kannski fjarlægst að einhverju leyti hugsun margra tilvistar- sinna, sérstaklega þeirra trúlausu. Það felst fyrst og fremst í þeirri von um handan- heim sem kemur fram í verkum hans. En þó ekki. Því ef menn halda sig við þann túlkunarmöguleika að handanheimurinn sé á meðal okkar, þ.e. möguleikinn á að nálgast hann sé í gegnum aðra mann- eskju, þá eru hin björtu og vonmiklu verk sem Jón Axel sýndi í Gallerí Borg sumar- ið 1996 einsog sniðnar að heimspeki til- vistarstefnunnar. Hvort sem Jóni Axel lík- ar það betur eða verr.'7 Ef verk hans eru síðan túlkuð út frá tilvistarstefnuhug- myndum Kierkegaards og annarra trúaðra tilvistarsinna þá falla þau algjörlega að þeim. Hér er ekki verið að segja að Jón Axel hafi stúderað þeirra heimspeki. Þvert á móti er verið að leiða rök að því að það vandamál senr maðurinn er settur í með fæðingu sinni, hvar sem er í heiminum, er sameiginlegt öllum mönnum.Við stönd- um öll frammi fyrir þeirri staðreynd að við vitum það eitt að við munum deyja. Allt sem við gerum í þessu lífi gæti verið allt frá einskis verðs til mikils verðs fram- lags, en við getum ekkert vitað um það með vissu. Það eina senr við vitum er að við munum deyja. Jón Axel Björnsson hefur með málverkum sínum túlkað þá angist sem býr í manninum við þessa vissu og þá ró sem mögulegt er að ná, þrátt fýrir óvissuna um allt annað, með kraftmiklum hætti. Tilvísanir * Sartre.Jean Paul, Essays in Existentialism (New Jersey, 1979). 2 Heidegger, Martin, Scin tind Zcit (Tubingen, 1993). Sjá sérstaklega kafla 1-7. 3 Sartre.Jean Paul, Essays in Existcntialisni. Sjá greinina „The roots ofExistentialism.“ ^ er mikilvægt að menn átti sig á því að þeir geta ekki komið sér undan með því aö velja ekki, því einnig það er val. ^ Kicrkegaard skrifaöi skáldverk, Nietzsche var tónskáld, Sartre var einnig rithöfund- ur o.s.frv. 6 Sjá Nietzsche, Friedrich, Also sprach Zaratlnistra (Munchen, 1988). ^ Sjá ntyndlistargagnrýni í Hclgarpóstininn 19. mars 1982. N I Gcburt dcrTragödic (1870) vildi Nietzsche einmitt meina að maðurinn lifði á þeim tíma í of slæmum tengslunt við uppruna sinn og menn ættu að efla tengslin við goð- sögulegan uppruna sinn.- Nietzsche, Friedrich, Gcburt dcrTragödic (Munchen, 1988). ^ Staðhæfmgu grcinarhöfundar um að myndir Jóns verði minna draumkenndar má andmæla með þeim ábendingum að umhverfi þeirra mannvera sem Jón málar niissa aldrei það undarlega tóm sem umlykur þær og eru aldrei staðsettar í raun- heinti okkar, hvorki í fýrstu né síðustu verkum hans. En staðhæfingunni til stuðn- ,ngs má benda á að mannverurnar missa óraunveru teygjunnar og annarrar af- skræmingar líkamans og fa jafnvel á sig svo sterka mannsmynd að áhorfanda cr leikur einn að sjá fýrirmyndir veranna í Jóni sjálfum, konu hans eða barni. Auk þess vvrða línur veranna skýrt afmarkaðar frá umhverfmu í seinni verkum hans, þannig að hægt er í það minnsta að fullyrða að verkin hafa þróast frá því að vera ímynd •myndar yfir í aö vera ímynd raunveru og þar af leiðandi verið minnkað bilið milli raunvcru og draums. ^ Um sýningu Jóns Axels í Gallerí Salnum árið 1985 sagði Guðbergur Bergsson í grein sem hafði yfirskriftina Nafnleysið málar harmleik sinn: „Hann [hinn nýji stíll sem hefur hafið innreið sína] er ekki einvörðungu sjálfstjáning málarans heldur lýs- ing á einkennum tímans, þess harmleiks að maðurinn glatar séreinkennum sínum og nafni; það gerist um leið og efnisleysið heldur innreið sína á sem flestum svið- um, með aðstoð rafeindanna. Efnishyggja tækninnar beitir því stöðugt meir.“ 11 Sartre.Jean Paul, Nausea (NewYork, 1990).-Aðalpersóna skáldsögunnar Nauseu, er hijáö af eyðandi ógeðstilfinningu, nauseu. 1 nær eina skiptið sem persónunni hverf- ur þessi tilfinning er þegar hún verður eitt með tónlistinni. I Geburt dcrTragödie set- ur Nietzsche fram þá kcnningu að listin sé eina réttlæting mannsins fýrir tilverunni og að maðurinn skuli ekki einasta skapa listaverk heldur einnig vera listaverk. 12 Halldór B. Runólfsson sagði um vinnubrögð Jóns Axels Björnssonar að þau væru klunnaleg, í jákvæðri merkingu þess orðs, „lýsir því hve erfitt er að mála; hve stíft það er að draga litinn yfir flötinn; seigan eins og kítti.“ 13 Hér er þó ekki verið að koma með getgátur um trúariðkun Jóns Axels, heldur ver- ið að segja að list hans sé að þróast yfir í trúarleg mótív sem samræmist að ein- hveiju leyti kenningum Kierkegaard. 14 Þetta er ekki í fýrsta sinn sem Jón málar diska og virðast þeir jafnan vera tilkomnir sem staðgenglar manna. Einnig má líta á þá sem ábendingu sem Jesús Kristur kom með þegar hann dreifði brauði og fiski á meðal mannanna, en þar fýrirstillti fiskur- inn andlega fæðu og brauðið líkamlega fæðu, en þegar þetta tvennt hefur verið uppfýllt þá fýrst er maðurinn mettur. 15 Trúarlegu táknin í myndinni þurfa ekki að mynda neitt mótvægi við þessa túlkun, því hvort sem það er líf eftir þetta líf eða ekki, þá skiptir miklu máli að finna manninum fróun hér og nú, fýrir dauðann. Manneskjur og samhjálp hafa verið Jóni hugleikið efni vegna erfiðleika sem hann hefur mætt í sínu lífi og það er gegnumgangandi í verkum þessarar sýningar trú á manneskjuna og er þetta því varla óviðeigandi túlkun. 16 Sjá Heidegger, Martin, Scin und Zcit. 17Jón hefur sjálfur sagt að hann hafi ekki lesið þá heimspeki né aðra með neinum skipulegum hætti. SAGNIR 37
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Sagnir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sagnir
https://timarit.is/publication/1025

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.