Sagnir - 01.06.1997, Side 67

Sagnir - 01.06.1997, Side 67
myndum) heldur aðallega vegna þess að viðfangsefni hennar er í raun enn í deigl- unni eins og við höfum séð og um sögu- skoðunina rikir engin eining. Því er það rétt hjá Neil Jordan þegar hann segir að engu máli heföi skipti hvers slags mynd Michael Collins hefði orðið, efni hennar hefði alltaf valdið hatrömmum deilum.57 Megininntak persónusköpunar í mynd- mni byggist að vísu á þeirri ósanngjörnu túlkun að Collins sé hetjan og de Valera hinn fyrirlitlegi pólitíkus. Þá sýn hlýtur sagnfræðin að eiga erfitt með að fýrirgefa Jordan.58 Þrátt fýrir alla fyrirvara voru sagnfræð- ingar því flestir þokkalega ánægðir með myndina. Það átti meira að segja við um menn eins og David Fitzpatrick (en þó ekki Paul Bew eða Austen Morgan) sem sagði hana verða flestum saklaus afþrey- >ng: „Þessi mynd er hvorki góð né óhlutdræg sagnfræði en það er ólíklegt að hún veki hjá nokkrum manni þörf til að brenna niður byggingu eða skjóta lögreglumann."5''Jafnvel Kevin Myers sem upphaflega fór hamförum gegn myndinni og mótmælti því óspart að Michael Collins væri þannig tekinn í dýrðlingatölu varð að viðurkenna eftir að hafa séð myndina að lítil hætta væri á að hún yki fylgi IRA og jafnframt að hún væri ákaflega spennandi og vel gerð.“ Niðurlag Voru þá allar deilurnar moldviðri út af engu? Er Neil Jordan ekki sekur um neinn glæp eftir allt saman? Líklega ekki. Þó má ekki horfa framhjá þeirri stað- reynd að Michael Collins er umdeild sýn á umdeilda atburði sem hafa beina skirskot- un til nútimans og jafnvel þótt ekki sé hægt að búa til kvikmynd án söguhetju sem áhorfendur geta haft samúð með er sú krafa á hinn bóginn réttmæt, sökum þess andrúmslofts sem ríkir á Norður-Ir- . landi, að menn fari varlega í að afla hryðjuverkamönnum samúðar. Hvort Michacl Collins gerir það er annað mál og sennilega ómögulegt að mæla svo mark sé á takandi. Hitt ætti að vera að Ijóst að kvikmyndagerðarmaður getur ekki skák- að í því skjóli að hann sé einungis lista- maður, óháður kröfum um sagnfræðileg vinnubrögð, því þegar hann tekur sér fýr- ir hendur að búa til sögulega kvikmynd hlýtur hann að þurfa að bera virðingu fýrir fortíðinni og þeirri vinnu sem sagn- fræðingar hafa lagt í til að bera hana skammlaust á borð. Um okkur sagnfræðingana má segja að jafnvel þótt við látum hjá líða að tileinka okkur nýja tækni við miðlun fræðilegs efnis verðum við í það minnsta að vekja máls á þvi þegar aðrir fara rangt með enda er það rétt sem Karsten Fledelius hefur bent á að ábendingar sagnfræðinga þurfa ekki endilega að koma niður á „dramat- ískri spennu“ verks. Sagnfræðingar þurfa að vera fúsir til að veita ráðgjöf við gerð kvikmynda en þeir þurfa líka að vera á varðbergi gagnvart þeim verkum sem þeg- ar hafa litið dagsins ljós: „Sagnfræðingar verða að þekkja sinn vitjunartíma vilji þeir hafa áhrif á það hvernig uppvaxandi kyn- slóðir skynja söguna. Þeir verða að sporna við öllu ruglinu, fordómunum og þeirri misnotkun sögunnar sem á sér stað ...“6I Einhver verður að takast það á hendur að benda fólki á rangfærslurnar og þótt það „eftirlitsstarf1 sé sjálfsagt fremur vanþakk- látt mega sagnfræðingar ekki hika við að lyfta penna sínum þegar svo ber við. Hlut- verk sagnffæðingsins er þrátt fýrir allt upp- fræðsla og það hlýtur þess vegna að teljast ein af frumskyldum hans nú til dags að hafa auga með áhrifamesta fræðslumiðli samtímans. Þetta þarf ekki endilega að verða þrautaganga því við hljótum í og með að fagna því tækifæri að fa að sjá við- fangsefni okkar fönguð á hvíta tjaldinu, holdi klædd og einhvern veginn raunveru- legri fýrir vikið.62 Tilvísanir ^ »Að segja sögu í sjónvarpi. Hringborðsumræður um sagnfræði og sjónræna miðla.“ Nýsasa 5 (1991), bls. 82-83. - ..Sagnfræðingar veröa að þekkja sinn vitjunartíma ..." Rætt við Karsten Fledelius um kvikmyndir og sagnfræði. Ný Saga 4 (1990), bls. 60. 3 Ég ræddi á sínum tíma um gerð myndarinnar í stuttri grein, sjá Davíð Logi Sig- urðsson, „Frelsishetjan Collins.“ Stúdcnlablaðið 6. tbl. september 1995. Aðrar þjóðir horfa kannski á myndina með minni hluttekningu og um leið af niinni áhuga. Myndin íekk misjafna dóma í Bandaríkjunum. Gagnrýnendur voru sammála um að eitthvað bjátaði á en voru ekki alveg vissir um hvaö það var. Newsweek sagöi eitthvað skringilega ópersónulegt við myndina og að stórleikur Liams Ncesons dygði ekki til. Sbr. Joe Carroll, „Conflict flaws Collins film, say critics.“ Thc IrishTimes 19. október 1996. ^ Sjá Gary Gunning, „Michael Collins.“ Manttlíf 14:7 (1997). Ekki veit ég við hvaða heimildir Gunning studdist en ég hef grun um að þaö hafi verið bókTim Pats Coogan, Michael Collins.A Biography (London, 1990). Hún hefur selst í bílförmum á síðustu árum. 6 Vissulega olli Þjóð í hlekkjum hugatfarsins (1993) miklu fjaðrafoki á sínum tíma sem synir að myndræn framsetning á íslandssögunni getur kallað á sterk viðbrögð. ^ ..Sleepless nights before dream comes true.“ Irish News 19. september 1996.- Einnig Neiljordan, Michael Collins. Fihn Diary and Scrccnplay (London, 1996), bls. 1-7. ** ^inn aðstoðarmanna Collins í myndinni er leikinn af írska leikaranum Brendan Gleeson en hann lék sjálfur Collins í sjónvarpsmyndinni TheTreaty (1991) sem fjallar um samningaviðræður íra og Breta árið 1921 og stofnun írska fríríkisins. Flestir leikaranna í Michacl Collins fengu prýðisdóma fyrir leik sinn, sérstaklega þeir Neeson og Rea en Julia Roberts var oft nefnd sem akkilesarhæll myndarinnar. 9 Fyrst átti leikstjórinn Michael Cimino (Thc Deer Huntcr, Heavcn’s Gatc) að kvik- mynda handritið en síðar var Kevin Costner orðaður við verkið, svona a lá Mel Gibson og Bravcheart. 10 Sjá „Fact and film unite in a dangerous romance.“ Thc Daily Telegraph 14. október 1996.- Eoghan Harris, „Whitewashing green gloss overjordans distortions.“ SundayTimes 20. október 1996.- Neil Jordan, „Tally Ho! Mr Harris.44 The Irish Times 23. október 1996. - Eoghan Harris, „Tally ho: not so funny, Mr Jordan.44 The Irislt Timcs 26. október 1996.1 þessum greinum gerðu þeir felagar lítið úr handrit- um hvors annars og reyndar yfirhöfuð úr persónu hvors annars. 11 Hér má benda á nokkur góð yfirlitsrit: F.S.L. Lyons, Ireland since the Famine (Dublin, 1971).- F.S.L. Lyons, Culture andAnarclty in Ircland 1890-1939 (Oxford, 1979).- J.J. Lee, Ireland 1912—1985: Politics attd Society (Cambridge, 1989).— R.F. Foster, Modern Ircland 1600-1972 (London, 1988).-Tom Garvin, Nationalist Revolution- aries in Ireland 1858-1928 (Oxford, 1987). 12 Um samningaviðræðurnar 1921 er sennilega enn best að vísa á verk Longfords lá- varðar (Thomas Pakenham), Peace by Ordeal (London, 1935). 13 Arthur Griffith, sá er stofnaði Sinn Fcin 1908, var opinber leiðtogi samninganefiidar- innar en Collins var defacto þungaviktarmaðurinn í hópnum. Leiðtogi þjóðernissinna Eamon deValera sat ekki í samninganefridinni og hefúr verið talið að honum hafi orðið ljóst hvers konar samningi mátti búast við og af því að hann vissi að harðlínumenn myndu ekki sætta sig við þannig samning sendi hann Collins í sinn stað. Pannig komst hann sjálfur hjá því að taka á sig óvinsældir heima fyrir sem óhjákvæmilega fýlgdu því SAGNIR 65
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132

x

Sagnir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sagnir
https://timarit.is/publication/1025

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.