Sagnir - 01.06.1997, Page 70

Sagnir - 01.06.1997, Page 70
ekkert gildi í þessari umræðu og konunni verður ekki álasað fyrir að hafa með bijósteldisleysi átt of mörg börn. I brjósteldissamfélögum telur Loftur vandfundin skemmri bil en 20 mánuði milli fæðinga fýrstu barna hjóna nema eitthvert þeirra hafi dáið skömmu eftir fæðinguna.4 En var það ekki einmitt það sem gerðist á Islandi; börn dóu? I um- ræddu dæmi Ingveldar geta heimildir ekki um dauðsföll en Eggert Olafsson segir okkur að af tíu til fimmtán börnum komist venjulega aðeins þriðji hlutinn á legg.5 Þetta dæmi um barnalán Ingveldar verður ekki túlkað sem afleiðing slæmra getnaðarvarna, heldur sem dæmi um mikla frjósemi. Ungbarnadauðinn gerði það að verkum að Ingveldur missti sex til sjö börn, afleiðing barnamissisins varð ný þungun, meðvituð eða ómeðvituð, sem aftur getur skýrt hið stutta bil milli fæð- inga. Aldur Ingveldar í margnefndu dæmi vekur athygli. Hún var 38 ára við fæðingu fyrsta barns og 50 ára við fæðingu þess síðasta og á það mætti benda sem merki um frjósemi, þar sem getnaðarlíkur minnka með aldri konunnar. Samfara aldri móður aukast hættur á meðgöngu, jafnt fýrir móður sem barn. Afleiðingin getur orðið sú að barn fæðist á einhvern hátt ófullkomið og á sér þar af leiðandi minni lífslíkur. Erfitt er að meta áhrif þessa á barnadauðann en óhætt er að gera ráð fýrir að þau hafi verið þó nokkur. Líkamshreysti Hvernig var líkamshreysti kvenna háttað? Atjánda öldin var tími harðæra og hungur- sótta sem léku landsmenn illa. Rannsóknir sýna þó að konur stóðu betur af sér þau áföll en karlmaðurinn, vegna þeirra ein- földu sanninda að konan á sér meiri lífslík- ur, allt frá getnaði til grafar.'1 Þó konan hafi frekar haldið lífinu en karlmaðurinn, má ætla að hún hafi verið vannærð. Fræði- menn hafa bent á það í rannsóknum sem einn af orsakaþáttum bijósteldisleysisins og þar með ungbarnadauðans.7 Einnig má benda á að ef kona er vannærð um með- göngutímann, er hætta á að fóstur nái ekki fullurn og eðlilegum þtoska, lífslíkur barns- ins verða því minni.Vannæringin getur því verið orsakavaldur á margvíslegan hátt. Samtímamenn geta um bágborið and- legt og líkamlegt heilsufar kvenna um miðja 18. öld, Eggert Ólafsson og Bjarni Pálsson læknir segja í Ferðabók sinni: Heilsufar kvenna er miklu lakara [en karla], því að tíðateppa er mjög tíður Vamiœrð kona fiamleiðir minna magn mjólkur og eitmig liafa sjúkdómar álirif þar á. Magn mjótkurinn- ar rœður því Iwort fivóiteftirspurn barnsins er fillnœgt. kvilli, einkum hjá ógiftu kvenfólki, bæði hér og annars staðar á landinu. Megin orsök þessa kvilla virðast vera of miklar kyrrsetur. Það er ekki einungis, að kvenfólk sækir engar skemmtanir eða nýtur annarrar tilbreytni i daglegu lífi, en það veldur því, að þær eru ófrjálslegar í allri framkomu og um- gengni, þögular og þunglyndar, heldur stuðlar einnig að þessu sama, að þær sitja inni við ullarvinnu og önnur störf mestan hluta ársins nema stuttan tíma á sumrin ... Vafalaust eru það fleiri or- sakir, sem valda vondu heilsufari kven- fólks, þótt enginn veiti þeim athygli né láti sig þær nokkru skipta ... er hér um alvörumál að ræða, eins og nú er háttað högum á íslandi." Þessi heimild veitir margháttaða innsýn í líf kvenna og hér er það slæmt heilsufar, andlegt sem líkamlegt, sem mesta athygli vekur. Fleiri urðu til að staðfesta það sama. Danski læknirinn Peter Anton Schleisner, taldi um miðbik 19. aldar í skýrslu sinni um heilsufar íslendinga, að konur þjáðust af taugaveiklun, móðursýki og ýmsum geðrænum sjúkdómum. Orsök þessa telur Schleisner stafa af hinu gleðisnauða lífi sem flesta íslenskar konur verði að þola.‘' Jónas Jónassen landlæknir getur einnig um ýmsa sjúkdóma kvenna á seinni hluta 19. aldar. Um tíðateppuna segir hann: „Það er flestum kunnugt, hversu almenn tíðateppan er hjer á landi og hversu margt illt hún leiðir af sjer.Tiðateppan er venju- lega afleiðing margskonar sjúkleika Tíðateppa þessi virðist vera eins konar samnefnari fyrir margs konar sjúkdóma sem einkum hijá konur og orsakirnar tel- ur hann vera margar, svo sem ofkælingu, slæmt skótau og allar bráðar geðshræring- ar." Kvensjúkdómarnir stafa því að hans áliti af þeim slæma aðbúnaði sem konur bjuggu við. Læknarnir þrír, Bjarni Páls- son, Schleisner og Jónas Jónassen tala hér um heilsufar kvenna almennt. Bjarni tek- ur reyndar fram að þetta eigi einkum við um ógiftar konur, þ.e. vinnukonur. En er nokkur ástæða til að ætla að ástandið hafi verið betra meðal giftra kvenna? Hlut- skipti þeirra var að ala þessa stóru barna- hópa, sem fjallað hefur verið um. Af eðli- legum orsökum má telja að ýmsir kven- sjúkdómar hafi verið í lágmarki meðal þeirra, þær voru þó færar urn að ganga með og ala börnin. Hins vegar getur meðganga og fæðing leitt af sér enn aðra sjúkdóma, andlega sem líkamlega, sem hættulegir eru móður og barni, barnsfara- sótt, brjóstamein hvers konar og fæðing- arþunglyndi svo einhveijir séu nefndir. Við getum þó álitið að efnaðar konur hafi verið ögn betur settar hvað varðar ákveðna þætti, en sóttir fara ekki í mann- greinarálit og kven- og fæðingarsjúkdóm- ar geta birst i mörgum myndum á hvaða þrepi samfélagsins sem er. Brjóstagjöf Bijóstagjöf er flókið andlegt og líkamlegt ferli tveggja lífvera, rnóður og barns. 68 SAGNIR
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Sagnir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sagnir
https://timarit.is/publication/1025

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.