Sagnir - 01.06.1997, Page 103

Sagnir - 01.06.1997, Page 103
ingu um það hversu rétt þessi orð bisk- upsins voru hvað ungviðið áhrærir sem óneitanlega var til lítillar uppbyggingar á næstu árum.Við sjáum að 16 og 17 ára aldurshóparnir hafa verið hlutfallslega mjög fámennir árið 1801 en það voru einmitt árgangar mannfellisáranna miklu 1784 og 1785. Hér hefur há dánartíðni sennilega ráðið mestu en einnig getur lít— il frjósemi á hung- ursárunum hafa valdið smæð þessara árganga. Ef árin á undan eru skoðuð sérstaklega virðist ljóst að fólk fætt 1779 og 1780 hafi lifað móðuharðindin vel af, þá 4—6 ára að aldri.Ver gekk hins vegar fyrir árgangana fædda 1781—1783 að lifa harðindin, þá 1-3 ára að aldri. Afþessu má draga þá ályktun að foreldrar hafi ekki svelt börn sín umfram það sem gerðist með heimil- isfólk, heldur hafi þau almennt fallið í landsfarsóttunum miklu sem gengu á hungursneyðarárunum. Þær má á að öll- um líkindum rekja til tvenns; í fyrsta lagi sækja sóttir hart á fólk sem illa er nært, það er næstum því alnæmt eins og rakið var hér að framan; í öðru lagi magnast auðveldlega farsóttir við þessar aðstæður. Mismunur á dánartíðni ungbarna miðað við dánartíðni almennt í sýslum landsins i nióðuharðindunum virðist benda til þess að skæð ungbarnadrepsótt hafi þá geisað unt Vesturland og vestanvert Norður- land.'" I töflu 6 sjáum við að endurheimtan eftir móðuharðindin var miklu hraðari en eftir stórubólu og sýnir þetta ljóslega hve margir sem voru á „besta aldri“ lifðu harðindin líkt og Hannes biskup rakti svo skilmerkilega. Einnig er líklegt samkvæmt töflu 5 að börn sem ekki voru lengur á hendi hafi lifað harðindin. Því hefur ver- ið hlutfallslega mikið um sæmilega hraust fólk á fijósamasta og vinnusamasta skeiði eftir að harðindunum lauk þótt óneitan- lega hafi bólusóttin 1786 tekið hér nokkurn toll. Stórabóla og móðuharðindin: Mannfjöldaíærdómar í kjölfar svartadauða? Getur hrun og endurheimtur mannfjölda i stórubólu og móðuharðindum sagt okk- Ur eitthvað um sömu tilbrigði i mannlíf- lnu á tímum svartadauða á 15. öld og fyrstu áratugi 16. aldar? Hér er átt við pestirnar sem gengu yfir landið 1402 og 1495. Efnisatriði málsins eru dregin saman í töflu 7. Ljóst er að mannfjöldi getur náð fyrri stærð á tiltölulega skömmum tíma ef frjósemi er jafn sveigjanlegur þáttur og hann sannarlega var á Islandi á 18. öld. Engin ástæða er til að ætla að ástandið hafi verið allt öðru vísi í þessum efnum á 15. öld. Þvert á móti má gera ráð fyrir því að á þeim tíma hafi frjósemi verið enn þá sveigj- anlegri þáttur en á 18. öldinni því að á 15. öld var sannar- legur gróskutími í atvinnulífi Islend- inga: Aldrei voru viðskiptakjör Islendinga jafn góð í aldaraðir frá elstu miðöldum fram á okkar tíma og einmitt þá. Jafn- framt var mikil eftirspurn eftir helstu út- flutningsvöru okkar, skreiðinni. Afkomu- möguleikar okkar voru með öðrum orð- um með besta mód.Tilgreint kaup ein- staks verkafólks virðist þá almennt hafa verið hærra en dæmi eru um frá öðrum tímum fram að seinni hluta 19. aldar. Astæða er til að ætla að ungt fólk hafi þá fremur verið hvatt til giftinga og fólks- fjölgunar en latt. En einnig skiptir máli fyrir endur- heimtur fólksfjöldans í kjölfar svartadauða hvaða aldursflokkar hafi þá einkum ládst. Þar sem allur þorri þeirra sem smitaðist lést úr pestinni og enginn var ónæmur fyrir henni, má færa fyrir því líkur að mannamunur af völdum hennar hafi eng- inn verið; allir sem smituðust hafi látist jafnt án tillits til aldurs. Því virðist vera skynsamlegt að álykta sem svo að endurheimtur mannfjölda í kjölfar svartadauða hafi verið skjótari en eftir stórubólu en hægari en eftir móðu- Tafla 6. Móöuharöindin 1783-1785 og fólksfjöldinn. • Vitaö er hve margir féllu í móöuharöindunum. • Einnig aö mannfjölgun ár hvert 1787-1801 var aö meö- altali 1,5%. Nánar tiltekið 1787-1791: 0,9% 1792-1796: 1,7% 1797-1801: 1,8% harðindin. Því er reiknað í töflu 7 með fólksfjölgun eftir svartadauða sem legið hafi mitt á milli fólksfjölgunar eftir stórubólu annars vegar og móðuharðinda hins vegar. Smitunarleiðir bakteríu svarta- dauðans Smitunarleiðir taugaveikisbakteríu líkjast fljótt á litið þeim smitunarleiðum sem til- einkaðar hafa verið bakteríu svartadauð- ans. I báðum dlfellum er smitberinn fló sem flyst frá rottum á menn. Ferill taugaveikissmitunar er í stuttu máli þessi: Bakterían Rickettsia smitar rottufló (Xenopsylla) og rottulús (Polyplax) og veldur báðum hroðalegum dauðdaga. En áður smita flærnar og lýsnar hýsil sinn, sem venjulega er rotta. Hún veikist og Tafla 7. Mismunur á áhrifum stórubólu og móöuharöinda á viökomu fólks. Hvaö segir þetta okkur um áhrif svartadauða? Eftir stórubólu fjölgun á ári: 0,8% Eftir móöuharöindin fjölgun á ári: 1,5% > Ástæöan: Ólík aldurssamsetning eftirlifenda. Stóra spurningin um svartadauöa þess vegna: Drap hann suma aldurshópa meir en aöra? Hvorum líkari var svartidauði í þessum efnum: Stórubólu? Móöuharöindum? Ef mitt á milli => Árleg endurheimta 1,15% sem þýöir tvöföldun fólksfjöld- ans á 61 ári. • Segjum aö helmingur þjóöarinnar hafi dáiö í svartadauða. • Segjum aö landsmenn hafi veriö 60.000 áriö 1401. • Þá voru þeir 30.000 áriö 1404. • Þá voru þeir 40.000 áriö 1430. • Þá voru þeir 50.000 áriö 1450. • Þá voru þeir 60.000 áriö 1465. á 15. öld var sannarleg- urgróskutími í atvinnulífi íslendinga: Aldrei voru viðskiptakjör íslendinga jafn góð í aldaraðir frá elstu miðöldum fram á okkartíma og einmitt þá." SAGNIR 101
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132

x

Sagnir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sagnir
https://timarit.is/publication/1025

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.