Félagsbréf - 01.01.1956, Blaðsíða 10
Sr. Sigurbjörn Einarsson, prófessor:
Gerzkir stjórnarhœttir
Stjórn Stúdentafélags Reykjavíkur liafði áforniað að lialda
umræðufund í vor um framandi stjórnarhætti. Af óviðráð-
anlegum ástæðum gat ekki oröið af þessum fundi. Fram-
sögumaður var ráðinn Sigurbjörn Einarsson, prófessor. Fór
ritstjóri Félagsbréfs þess á leit við prófessor Sigurbjörn,
að liann léti framsöguerindi sitt í té til birtingar og varð
hann góðfúslega við þeirri málaleitan.
I.
Undir aldamótin 1800 sagði Jóhann Gottfried Herder, að það sé eðli
og liáttur stjórnmála að fara með manneskjuna sem tæki, verkfæri,
en frá sjónarmiði siðgæðis sé liún markmið. Bylting framtíðarinnar
muni verða sú, að siðgæðið sigri pólitíkina.
Þessi góða spá myndi nú, eftir 150 ár, þykjaeftirminnilegustsemfynd-
in öfugmæli og þó grátt gamanið. Pólitískt siðleysi á liæsta stigi, og fer-
lega vaxið liefur sett sín loppuför á sögu vorra tíma og sjaldan hefur
mannkynið komizt í kynni við stjórnarliáttu, sem væru frainandlegri og
andstæðari frumlægustu siðgæðiskröfum. Þetta hefur vaxið upp í gömlu
Evrópu, það liefur sogið næringu úr borgaralegum erfðumvestrænumog
fitað sig á félagslegum löstum og misfellum. Það liefur með tilstvrk þraut-
skipulagðra flokka — aldrei meirihlutaflokka að vísu, en nægilega
öflugra samt — náð öllum tökum á stórum og fjöhnennum þjóðlönd-
um, þar á meðal um skeið á einni glæsilegustu menningarþjóð livítri,
Þjóðverjum. Siðleysið í stjórnarliáttum nazista var svo yfirnátturlegt,
að raunsær umheimur fékk sig ekki til þess að trúa að satt væri frá
því sagt, fyrri en á var þreifað. Meiri hula liefur livílt yfir stjórnar-
liáttum í þeiin löndum, þar sem kommúnistar liafa náð völdum, en
þó var það frá upphafi á vitorði allra, sem ekki voru sjálfir liylltir
af kommúnísku valdi, að þar var yfirleitt liin versta harðstjórn, grimmt
gjörræði, einræði eða flokksklíkuveldi, sem einskis sveifst.
Nú liafa austræn stjórnarvöld játað sjálf vissum staðreyndum um
stjórnarliáttu og þar með sjálf skrifað undir þá hörðu dóma, sem
kveðnir liafa verið upp yfir þeim í vestrænum lýðræðisríkjum og