Morgunblaðið - 11.03.2013, Blaðsíða 9

Morgunblaðið - 11.03.2013, Blaðsíða 9
FRÉTTIR 9Innlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 11. MARS 2013 Heilsuborg ehf. • Faxafeni 14 • 108 Reykjavík Sími 560 1010 • www.heilsuborg.is ilsulausnir hefjast mánudaginn 18. mars n, mið og fös kl. 07:20, 12:00 eða 17:30 pþjálfun 16-25 ára á mán, mið og fös kl. 15:30 rð kr. 16.900 pr. mán í 12 mán. ráning í síma 560 1010 eða á mottaka@heilsuborg.is mskeiðinu standa m.a. hjúkrunarfræðingar, afræðingar, læknir, næringarfræðingur, sálfræðingar úkraþjálfarar. eilsulausnir a einstaklingum sem glíma við offitu, asjúkdóma og/eða sykursýki. búin að taka eftir auglýsingum frá Heilsuborg í þó nokkurn var búin að vera að hugsa lengi um að fara að gera eitthvað m málum. Ég hef náð góðum árangri, náð að losna við mörg er bara svo miklu hressari og með miklu meiri orku. Maður að vilja gera þetta fyrir sig sjálfan. Þetta snýst ekki um það ra sig þetta snýst um að lifa heilbrigðara lífi og koma sér í amlegt og andlegt form.“ Helga Einarsdóttir Ætlar þú að breyta um Kynningarfundur mánudaginn 11. mars kl. 17:30 – Allir velkomnir! • He • Má • Hó • Ve • Sk Að ná íþrótt og sj H Hent hjart „Ég var tíma og í mínu kíló og verður að meg gott lík Hvernigvinnumvið í þáguheimilanna? Í þágu heimilanna Umræðufundur með forystu Sjálfstæðisflokksins. Hótel Selfoss, mánudaginn 11. mars kl. 20.00. Bjarni Benediktsson,Hanna Birna Kristjánsdóttir og Ragnheiður Elín Árnadóttir ræða uppbyggingu og aðgerðir í þágu heimilanna. Allir velkomnir. Háskóladagurinn var haldinn há- tíðlegur í fyrradag og var fjöl- mennt í byggingum Háskóla Ís- lands og Háskólans í Reykjavík þar sem kynningar á starfsemi háskóla landsins fóru fram. Í HÍ kynntu kennarar og nemendur gestum námsleiðir skólans og þá meðal annars nemendur í efnafræði sem buðu upp á litríkar sprengingar. Gestir fengu einnig að sauma gervi- sár undir handleiðslu lækna og læknanema, svo fátt eitt sé talið. Í HR bar margt forvitnilegt fyrir augu, m.a. eldorgel og þrívídd- armódel af hauskúpum. Munu gest- ir hafa sýnt kynningum skólanna mikinn áhuga en meðal annarra há- skóla sem kynntu starfsemi sína voru Háskólinn á Akureyri, Bifröst og Landbúnaðarháskóli Íslands. Morgunblaðið/Árni Sæberg Drekadans Kínverskur dreki steig dans bæði utan- og innandyra í Háskóla Íslands í fyrradag á háskóladeginum, gestum til yndisauka. Sprengingar, eld- orgel og gervisár Morgunblaðið/Árni Sæberg Saumað Læknar og læknanemar hjálpuðu gestum að sauma gervisár.  Fjölmennt var á háskóladeginum Aukablað um bíla fylgir Morgunblaðinu alla þriðjudaga Leikmannastefna þjóðkirkjunnar var haldin í 27. sinn á laugardaginn var í Grensáskirkju. Agnes M. Sig- urðardóttir, biskup Íslands, setti stefnuna. Í setningarræðu sinni sagði Agnes það mikilvægt að hlúa að æsku landsins. Fagnaði biskup því að barnasátt- máli Sameinuðu þjóðanna hefði verið staðfestur á Íslandi og sagði Agnes það mjög mikilvægt að svo hefði verið gert. Sagði Agnes að þjóðkirkjan hefði lagt sig fram um að tryggja öryggi barna og ástunda fag- leg vinnubrögð gagnvart þeim í starfi kirkjunnar. Agnes sagði að kirkjunni væri stundum líkt við skip og á skipi væru margir sem hjálpuðust að til að stýra því rétta leið. „Ég vil leggja áherslu á það að við stefnum öll í sömu átt, erum öll í sama liðinu, hvert svo sem hlutverk okkar er í kirkjunni,“ sagði Agnes og lýsti yfir vilja sínum til þess að halda leikmannastefnu sam- hliða prestastefnu til þess að fólk gæti fundið betur að allir ynnu að sama markmiði innan kirkjunnar. Fagnar friðun Skálholts Á leikmannastefnunni voru sam- þykktar tvær ályktanir. Í þeirri fyrri fagnaði leikmannastefnan þeirri ákvörðun mennta- og menningar- málaráðherra að friða Skálholts- kirkju, Skálholtsskóla og nánasta umhverfi kirkjunnar. Vakti ályktun- in athygli á því að friðunin næði ekki til nýlegrar yfirbyggingar yfir frið- lýstar fornleifar Þorláksbúðar held- ur einungis fornleifarnar sjálfar. Var hvatt til þess að yfirbyggingin yrði flutt á annan stað á svæðinu, fjarri hinum friðuðu byggingum og stað- armyndinni í Skálholti og að því verki yrði lokið fyrir 50 ára vígslu- afmæli Skálholtskirkju hinn 21. júlí næstkomandi. Þá skoraði leikmannastefnan á stjórnvöld að hlutast til um að sókn- argjöld verði leiðrétt. Sagði í ályktun leikmannastefnunnar að ríkið hefði með einhliða ákvörðunum tekið til sín sífellt stærri hluta innheimts sóknargjalds til sín. Lýsti leik- mannastefnan yfir þungum áhyggj- um sínum af þessari þróun þar sem nú væri svo komið að illmögulegt væri að halda úti grunnstarfi í mjög mörgum sóknum Íslands. sgs@mbl.is „Vinnum öll að sama markmiði“ Kirkja Leikmannastefna þjóðkirkj- unnar 2013 var haldin um helgina.Agnes M. Sigurðardóttir  Leikmannastefna þjóðkirkjunnar vill að ríkið leiðrétti sóknargjöld Morgunblaðið/Kristinn

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.