Morgunblaðið - 11.03.2013, Page 14

Morgunblaðið - 11.03.2013, Page 14
14 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 11. MARS 2013 Veitingastaður / verslun Nethylur 2 • 110 Reykjavík • Sími: 587 2882 • galleryfiskur.is Nýr og breyttur matseðill í veitingahúsinu Nýtt á matseðli er m. a. nautahamborgari, humarpizza, kjúklingasalat, matarmiklar súpur í aðalrétt, langeldaður lambaskanki, hrefnusteik ofl. Komið og reynið nýju réttina Það eru einkum góð afkoma eigna- stýringarsviðs og fá stór trygginga- áföll sem skýra að evrópska trygg- ingafélagið Allianz skilaði tvöfalt meiri hagnaði á árinu 2012 en árið á undan. Nam hagnaður Allianz um 5 milljörð- um evra, jafnvirði um 818 milljarða króna á gengi dagsins í dag. Til sam- anburðar má nefna að verg landsfram- leiðsla Íslands á liðnu ári var 1.708 milljarðar. Allianz er stærsta tryggingafélag Evrópu og ein stærsta tryggingasam- steypa heims með starfsemi í yfir 70 löndum með um 144.000 starfsmenn og yfir 78 milljónir viðskiptavina. Alli- anz var stofnað í Berlín árið 1890 en opnaði skrifstofu á Íslandi árið 1994 og selur landsmönnum persónutrygg- ingar s.s. líf-, lífeyris- og sjúkdómat- ryggingar. Í tilkynningu kemur fram að ákveðið var á aðalfundi félagsins í München að greiða hluthöfum arð sem nemur 4,5 evrum á hlut. Jukust tekjur samstæðunnar um 3% á liðnu ári og námu samtals um 106 millj- örðum evra. ai@mbl.is Veldi Skrifstofur Allianz í Berlín. Hagnaður Alli- anz tvöfaldast  Risinn græddi 5 milljarða evra Vöxtur iðnaðarframleiðslu í Kína það sem af er árinu er sá veikasti síðan 2009, að því er fréttaveita Bloomberg greinir frá. Þá hefur hægt á lánamarkaði og smásölu. Þar með er ekki sagt að kín- verska hagkerfið sé mjög illa statt: iðnaður jókst um 9,9% á ársgrundvelli fyrstu tvo mánuði ársins og smásala um 12,3%. Þá jókst útflutningur í janúar og febrúar um 23,6% m.v. sama tímabil í fyrra og er það mesta aukningin fyrstu tvo mánuði árs- ins síðan 2010. Er aukningin einkum skrifuð á vaxandi eft- irspurn á Bandaríkjamarkaði. Er frammistaðan þó undir væntingu flestra markaðs- greinenda og gæti torveldað þau verkefni sem bíða nýrra leiðtoga landsins. ai@mbl.is Árið fer rólega af stað í Kína AFP Afköst Þó vöxturinn sé hægari en vonir stóðu til er samt uppgangur í kín- verska hagkerfinu. Starfsmenn dytta að tækjum í kínverskri textílverksmiðju.  Vöxtur undir væntingum fyrstu tvo mánuði ársins  Eftirspurn í BNA skýrir ágæta aukningu í útflutningi Samningar hafa náðst um kaup Ný- sköpunarsjóðs atvinnulífsins á hlutafé í snyrtivörufyrirtækinu Andrea Maack Parfums (AMP ehf.). Kaupverð fæst ekki gefið upp. Í tilkynningu frá AMP og Ný- sköpunarsjóði kemur fram að Andrea Maack Parfums er hugar- fóstur myndlistarmannsins Andreu Maack og er fyrirtækið sjálfstætt framhald myndlistarsýninga henn- ar. Hefur AMP sett á markað 6 mis- munandi ilmvötn sem seld eru í lúx- usverslunum víða um heim. Meðal annars má finna vörur frá Andrea Maack Parfums í Harvey Nichols í London, Woodley and Bunny í New York og Printemps í París. Erlend tískutímarit hafa sýnt vörum Andreu Maack mikinn áhuga og m.a. hefur verið skrifað um ilmina í franska og ítalska Vogue, sænska Elle, Wallpaper og AnOther magazine. Nýsköpunarsjóður atvinnulífsins er óháður áhættufjárfestingar- sjóður í eigu íslenska ríkisins. Er sjóðnum ætlað að taka virkan þátt í þróun og vexti atvinnulífsins með fjárfestingum í vænlegum nýsköp- unar- og sprotafyrirtækjum. ai@mbl.is Morgunblaðið/Styrmir Kári Ilmir Listakonan á vinnustofu sinni. Andrea Maack-merkið er fáanlegt í nafntoguðum lúxus-tískuverslunum í London, París og New York. Nýsköpunarsjóður kaupir í Andreu Maack  Selur ilmvötn í þekktum verslunum Fasteignafélagið Reitir var með 7.880 milljónir króna í rekstrar- tekjur á liðnu ári sem er hækkun frá árinu 2011 þegar rekstrar- tekjur voru 7.658 milljónir. Rekstrarhagnað- ur fyrir fjár- magnsliði, ein- skiptiskostnað og matsbreytingu (NOI) var 5.686 milljónir árið 2012 en var 5.550 milljónir árið 2011. Í tilkynningu frá Reitum kemur fram að þrátt fyrir ágætan rekstr- arhagnað hafi tap liðins árs verið 6.553 milljónir króna. Stafar það einkum af því að eignasafn félags- ins rýrnaði mjög í virði. Er safnið metið á gangvirði samkvæmt al- þjóðlegum reikningsskilastölum og nam matslækkunn 5.904 milljónum á árinu. Árið 2011 hækkaði matið um 1.018 milljónir en það ári nam tap félagsins 628 milljónum. Kemur fram í tilkynningunni að það er mat stjórnenda Reita að virðismat eignasafns félagsins í árslok 2012 sé varfærið. Virði fjár- festingareigna var 88.639 milljónir króna, eigið fé í árslok 12.948 milljónir og eiginfjárhlutfall 14,2%. Í rekstraráætlun þessa árs er gert ráð fyrir bættri reksraraf- komu frá fyrra ári. Er átlað að rekstrarhagnaður fyrir fjármagns- liði (NOI) verði tæpir 6 milljarðar króna og sjóðstreymi jákvætt. For- senda áætlana félagsins er jákvæð þróun í efnahags- og atvinnumál- um, stöðugleiki á vinnumarkaði og að gengi krónunnar veikist ekki verulega gagnvart erlendum gjald- miðlum. Til stóð að skrá hlutabréf Reita í kauphöll fyrir lok árs 2012. Gengu þau áform ekki eftir m.a. vegna víðtækrar skoðunar á áhrifum hæstaréttardóma sem féllu í árslok vegna gengislána á Reiti og forvera félagsins. Þá hafa Reitir átt í við- ræðum við erlendan lánveitanda fé- lagsins um hugsanlega uppgreiðslu lánsins og hafa þær viðræður tekið lengri tíma en ætlað var. Er stefnt að kauphallarskráningu á þessu ári. ai@mbl.is Rekstrarhagnaður Reita 5.686 milljónir  Lækkun á mati eignasafns leiðir til 6.553 milljóna taps  Stefna að skrán- ingu í kauphöll síðar á þessu ári Morgunblaðið/Styrmir Kári Mannlíf Meðal fasteigna í eignasafni Reita er verslunarmiðstöðin Kringlan. Hér eru viðskiptavinir Kringlunnar í kunnuglegum rúllustiga. Guðjón Auðunsson, forstjóri Reita.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.