Morgunblaðið - 11.03.2013, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 11.03.2013, Blaðsíða 30
30 ÍSLENDINGAR MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 11. MARS 2013 Sem strákur fór ég í sveit að Vorsabæ á Skeiðum til móðursysturminnar og líkaði vel. Fór í bændaskóla, seinna í líffræði við HÍog tók við búskapnum af henni liðlega tvítugur,“ segir Eiríkur Þórkelsson sem er fimmtugur í dag, 11. mars. Svo sem vera ber gerir fólk sér dagamun á tímamótum, Eiríkur og Unnur Lísa Schram, eig- inkona hans, ætla að bjóða börnunum sínum fjórum út að borða; son- unum sem eru 19 og 16 ára og tvíburadætrunum sem eru sex ára. Eiríkur og Unnur búa með sauðfé og hross í Vorsabæ, en búskap- urinn er þó ekki umfangsmikill. „Búin eru færri og stærri og þar koma til tæknivæðing og aðstæður á markaði. Á flestum bæjum sækir fólk vinnu út í frá. Konan mín starfar á hóteli hér á Skeiðunum og sjálfur starfa ég hjá Matvælastofnun,“ segir Eiríkur sem hóf þar störf í janúar sl. Hefur þar með höndum eftirlit með innflutningi og fram- leiðslu á fóðri. „Starfið er umfangsmikið og verkefnin að aukast og eins skilningur á mikilvægi þess. Hrossakjötsmálið í Evrópu hefur opnað augu fólk fyrir því að matvælaframleiðsla þarf aðhald,“ segir Eiríkur. Spurður um áhugamál segir hann efst á blaði það sem næst sér standi; það er fjölskyldan og hestamennskan. „Þá höfum við verið að gera upp gamla íbúðarhúsið í Vorsabæ og það tekur oft lausu stundirnar,“ seg- ir Eiríkur í Vorsabæ. sbs@mbl.is Eiríkur Þórkelsson er 50 ára í dag Morgunblaðið/Sigurður Bogi Bóndinn Eiríkur er bóndi á Skeiðunum en sækir vinnu í þéttbýlið, eins og hann segir raunina vera á flestum bæjum í sveitum landsins. Hrossin og fjöl- skyldan efst á blaði Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, islendingar@mbl.is Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang. Kópavogur Karen fæddist 20. maí kl. 0.46. Hún vó 3.720 g og var 52 cm löng. Foreldrar hennar eru Sigurlín Gunnarsdóttir og Koen Kjartan Van de Putte. Nýir borgarar Hafnarfjörður Arnar Breki fæddist 14. júní kl. 1.57. Hann vó 3.455 g og var 52 cm langur. Foreldrar hans eru Agnes H. Barkardóttir og Halldór H. Halldórsson. J óna Lísa fæddist á Flögu í Skaftártungu 11.3. 1963 og ólst þar upp við öll almenn sveitastörf. Hún var í Grunnskólanum á Kirkju- bæjarklaustri og í Vík í Mýrdal og stundaði nám við MH. Jóna Lísa hóf störf við HÍ 1986 og starfaði þar á skrifstofu Félags- vísindadeildar til 1990. Þá hóf hún störf hjá Reykjavíkurborg, hefur starfað þar síðan og er nú rekstrar- fulltrúi hjá Barnavernd. Jóna Lísa hefur verið virk í Skaft- fellingafélaginu í Reykjavík um ára- bil, er félagi í gönguklúbbunum Skálmarar, á vegum Skaftfellinga- félagsins. Óbyggðirnar kalla Jóna Lísa hefur engan venjulegan áhuga á fjallapríli og gönguferðum. Hún bókstaflega sækir í bláfjalla- geiminn eins og þyrstur maður í vatn. „Ég er sveitabarn, alin upp við feikilega víðáttu og afar stórbrotna náttúru. Líklega hef ég aldrei slitið þessi tengsl við æskustöðvarnar, enda eigum við sumarbústað austur á Flögu og þar er ég öllum stundum ef ég er ekki í vinnunni eða á fjöllum. Ég tók þátt í smölun á unglingsár- unum, kynntist þá fjöllunum og hef þá líklega fyrst upplifað þessa djúpu kyrrð og unaðslegu víðáttu sem maður upplifir einungis í óbyggðum. Þessi tilfinning er að öðru leyti ólýs- anleg. Hana verða menn bara að upplifa, hver fyrir sig. Ég upplifi hana svo sterkt að ég segi oft við samferðafólk mitt, að ég sé til í að verða eftir uppi á öræfum. Vinir mínir og kunningjar hafa oft velt því fyrir sér hvort ég hafi ekki verið útilegumaður í fyrra lífi – kannski Halla. Hins vegar er ekki nema áratugur frá því ég fékk þenn- an mikla áhuga á óbyggðunum.“ En þú gengur líka hér í bænum? „Já, ég geng alls staðar. Við í Skálmurunum, sem erum um 20 Jóna Lísa Gísladóttir, rekstrarfulltrúi og göngugarpur - 50 ára Í Aðalvík Skálmarar á Hornströndum sumarið 2011. Afmælisbarnið þriðja frá vinstri í efri röð. Bergnumið náttúrubarn Og enn er gengið Frá Hólmsárgöngu Skálmara sumarið 2012. „Íslendingar“ er nýr efnisliður sem hefur hafið göngu sína í Morgunblaðinu. Þar er meðal annars sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks, svo sem hjónavígslum, barnsfæðingum eða öðrum tímamótum. Börn og brúðhjón Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð. Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is HJÁ AÐALSKOÐUN ERT ÞÚ Í GÓÐUMHÖNDUM Snjallt að kíkja á okkur á adal.is Við erummeð fjórar skoðunarstöðvar á höfuðborgarsvæðinu og eina í Reykjanesbæ. Þaulreyndir og þjónustuliprir fagmenn taka á móti þér á þeim öllum. Hlökkum til að sjá þig! H V ÍT A H Ú S IÐ /S ÍA – 1 3 -0 4 6 7 Aðalskoðun, faggildur skoðunaraðili í 19 ár Reykjavík Grjóthálsi 10 Sími 590 6940 Reykjavík Skeifunni 5 Sími 590 6930 Hafnarfjörður Hjallahrauni 4 (við Helluhraun) Sími 590 6900 Kópavogur Skemmuvegi 6 (bleik gata) Sími 590 6935 Reykjanesbær Holtsgötu 52 (við Njarðarbraut) Sími 590 6970 www.adalskodun.is og www.adal.is Við getum minnt þig á þegar þú þarft að láta skoða bílinn á næsta ári. Skráðu þig á póstlistann hjá okkur þegar þú kemur með bílinn í skoðun og þú gætir unnið 200 lítra eldsneytisúttekt. Opið kl. 8-17 virka daga – sími 590 6900

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.