Málfríður - 15.10.2010, Qupperneq 7
Loks hafa nokkrir aðrir erlendir aðilar lagt verkefninu
lið. Munar þar mest um veglega styrki frá Riksbankens
Jubileumsfond í Svíþjóð og Institusjonen Fritt Ord í
Noregi. Alls vantar nú um 400 milljónir til að fram
kvæmdir við verkefnið geti hafist.
Rithöfundar leggja tungumálamiðstöðinni lið
með bókinni Tungumál ljúka upp heimum.
Orð handa Vigdísi
Í tilefni af merkum tímamótum í lífi Vigdísar skrifuðu
27 íslenskir rithöfundar texta um mikilvægi tungu
málakunnáttu fyrir Íslendinga. Orðin handa Vigdísi er
gjöf rithöfundanna til Vigdísar og framlag til alþjóð
legu tungumálamiðstöðvarinnar. Hér eru á ferðinni
afar litríkir, fróðlegir og áhugaverðir textar, sem með
ólíkum hætti varpa ljósi á gildi tungumála fyrir ein
staklinga og þjóðfélagið í heild. Rithöfundarnir eru:
Andri Snær Magnason, Auður Jónsdóttir, Auður Ava
Ólafsdóttir, Árni Bergmann, Bragi Ólafsson, Einar
Már Guðmundsson, Eiríkur Guðmundsson, Eiríkur
Örn Norðdahl, Friðrik Rafnsson, Gerður Kristný,
Guðbergur Bergsson, Guðrún Eva Mínervudóttir,
Hermann Stefánsson, Jón Kalman Stefánsson,
Kristín Ómarsdóttir, Kristín Marja Baldursdóttir,
Matthías Johannessen, Njörður P. Njarðvík, Oddný
Eir Ævarsdóttir, Pétur Gunnarsson, Rúnar Helgi
Vignisson, Sigurbjörg Þrastardóttir, Sigurður Pálsson,
Steinunn Sigurðardóttir, Sölvi Björn Sigurðsson, Thor
Vilhjálmsson og Vigdís Grímsdóttir. Prófarkalestur
annaðist Uggi Jónsson og ritstjórn Auður Hauksdóttir,
en Prentsmiðjan Oddi annaðist umbrot og prentun
5 tölusettra eintaka. Pétur Gunnarsson rithöfundur
færði Vigdísi fyrsta eintakið af bókinni í Listasafni
Sigurjóns Ólafssonar á Evrópska tungumáladeginum,
en allir sem að útgáfu bókarinnar komu gáfu vinnu
sína. Bókin hefur nú verið prentuð í stærra upplagi og
mun allur hagnaður af sölu hennar renna til tungu
málamiðstöðvarinnar. Ekki þarf að taka fram, að orð
rithöfundanna tala á glæsilegan hátt fyrir verkefninu
og gildi þess. Fyrirhugað er að þýða bókina á fleiri
tungumál.
– Menning í þýðingum (Cultures in Translation) árið
2008
– Varðveisla til framtíðar: Sjálfbærni tungumáls, menning-
ar og náttúru (Preserving the Future: Sustainability of
Language, Culture and Nature) árið 2010.
Á árinu 2008 var sett á laggirnar alþjóðleg ráðgjafa
nefnd um verkefnið en í henni eiga sæti: Anju Saxena
prófessor við Uppsalaháskóla, Bernard Comrie for
stöðumaður málvísindadeildar Max Planck stofn
unarinnar í Leipzig, Jens Allwood prófessor við
Gautaborgarháskóla og Peter Austin prófessor við
Lundúnarháskóla.
Á árinu 2009 leitaði menntamálaráðherra eftir því
við Menningarmálastofnun Sameinuðu þjóðanna,
UNESCO, að Alþjóðlega tungumálastofnunin hlyti
vottun sem UNESCOmiðstöð skv. „Category II“ en
vænta má að slík vottun mundi auðvelda Stofnun
Vigdísar Finnbogadóttur að eflast enn frekar og rækja
hlutverk sitt á alþjóðavettvangi.
Kostnaður við verkefnið og staðan nú
Heildarkostnaður við að reisa byggingu fyrir Stofnun
Vigdísar og til að skapa þá aðstöðu sem að framan er
lýst er áætlaður 1200 milljónir króna auk lóðar, sem
metin er á um 100 milljónir króna. Háskóli Íslands er
reiðubúinn að leggja 400 milljónir til verkefnisins auk
lóðar. Í tengslum við stórafmæli Vigdísar í apríl í ár og
í tilefni þess að í júní s.l. voru liðin 30 ár frá sögulegu
forsetakjöri hennar, var efnt til sérstaks átaks til að afla
fjár til verkefnisins. Alls söfnuðust rúmar 250 milljónir
króna hér á landi frá einstaklingum, fyrirtækjum og
stofnunum og frá færeyskum stjórnvöldum og fyrir
tækjum, sem styrktu verkefnið með hátt í tuttugu millj
óna króna framlagi. Þess má geta að Kennarasamband
Íslands styrkti verkefnið með 10 milljóna króna fram
lagi og Bandalag háskólamanna með 1,5 milljón króna.
Áður hafði A. P. Møller og Hustru Chastine McKinney
Møllers Fond til almene Formaal í Danmörku gefið
vilyrði fyrir styrk að upphæð liðlega 100 milljónum
króna, takist að fullfjármagna verkefnið að öðru leyti.
••
MÁLFRÍÐUR 7