Málfríður - 15.10.2010, Page 10
á kreppuárunum fyrri, sagði oft þann brandara þegar
ég var krakki að kennari hennar í íslensku hafi sagt við
bekkinn: „þið eigið ekki að nota orðið að brúka, heldur
eigið þið að brúka orðið að nota!” Og á húsinu okkar
í Vesturbænum var „altan” og framan við húsið var
„fortó.”
Eftir að Vigdís Finnbogadóttir var skipuð sendiherra
tungumála fyrir Sameinuðu þjóðirnar hefur hún unnið
ötullega og af ósérhlífni að því verkefni æ síðan. Vigdís
sagði frá því í blaðaviðtali fyrir nokkrum árum að fátt
hefði glatt sig meira í lífinu en þegar komið var að máli
við hana á sumardaginn fyrsta árið 2001 og hún spurð
hvort Rannsóknarstofnun í erlendum tungumálum við
HÍ mætti bera nafn hennar.
„Þessi sumargjöf er merkilegasta og fallegasta gjöf
sem ég hef fengið á ævinni og mikil viðurkenning á
störfum mínum í þágu tungumála. Í Evrópu tíðkast
ekki að fólk fái háskólastofnanir nefndar eftir sér á
meðan það er enn lífs. Ég er afskaplega þakklát fyrir
að fá að leggja mitt af mörkum í þágu tungumálanna á
þennan hátt.” Hafi Vigdís óttast að þetta væri einhvers
konar minningarskjöldur og hún þar með kominn í safn
hinna virðulegu dauðu íkona þurfti hún ekki lengi að
óttast það. Hún hefur unnið ötullega að ýmsum þjóð
þrifaverkefnum allt fram á þennan dag, og með stofn
uninni sem ber nafn hennar allar götur frá stofnun. Í
dag er hér verið að stofna Vinafélag Stofnunar Vigdísar
Finnbogadóttur. Ég vona að það verði góður liðsauki
við það starf sem þegar er unnið við stofnunina.
Ræða flutt á stofnfundi Vina Vigdísarstofnunar þann 26.
september síðastliðinn.
með þjóðinni sem aldrei fyrr. Það fer því vel á því að
alþjóðleg stofnun um rannsóknir og styrkingu tungu
mála sé staðsett hér, vel að merkja ef okkur auðnast
gæfa til að skapa slíkri stofnun burði til að bera sitt
nafn með rentu.
Mig langar að nota þetta tækifæri og minnast á það
að við í Landnámssetri Íslands höfum sett okkur það
markmið að sjóngera þá sögu sem við eigum hvergi
varðveitta nema í tungumálinu. Sjóngera hina skrifuðu
sögu og þýða yfir á önnur tungumál á einfaldan hátt
til að vekja áhuga erlendra manna á þeim verðmætum
sem hafa verið skrifuð fyrir hljóðfærið okkar, íslensk
una.
Ég talaði um það hér áðan að hvert hljóðfæri í
tungumálafjölskyldunni hefði sinn hljóm, sína sál.
Því getur verið snúið að þýða hugsun af einu tungu
máli yfir á annað, stundum nánast ógerlegt. Mér finnst
alltaf skemmtileg sagan um HKL og latneska orðatil
tækið „per ardua ad astra,” orðrétt þýðing eitthvað
á þessa leið; „í gegnum þjáninguna liggur leiðin til
stjarnanna.” Þetta þótti Halldóri Laxness tilgerðarleg
skrúðmælgi á íslensku, hann vildi þýða þetta einfald
lega með íslensku orðatiltæki, „enginn verður óbarinn
biskup.”
En sem sagt staða okkar tungu er sterk og ég held að
við höfum mikið að gefa í þeim efnum, t.d. er lifandi
áhugi alls almennings á nýyrðasmíð gott dæmi um
gróskuna. Tölva, gemsi, skjár, einhver vill segja spila
dós í stað Ipott og annar vill nota orðið kjölturakki
fyrir laptopp. En auðvitað þurfum við alltaf að vera á
varðbergi og höfum verið það svo lengi sem ég man
eftir mér. Mamma mín tæplega níræð, sem var í Versló
Ég ætla rétt að segja nokkur orð og reyna að forð
ast klisjuna um að tónlistin sé tungumálið sem allir
skilja, að hún brúi bilið milli þjóðtungna og mál
lýskna Reyndar má vera að allir skilji tónlist, þó
hver á sinn hátt, en ég hef um ævina aðeins kynnst
örfáum snillingum sem virðast eiga músíkölsku að
móðurmáli – tala hana gersamlega reiprennandi.
Því er samt ekki að neita að tónlistin vekur spurn
ingar um eðli tungumálsins og mörk þess, en einnig
um samband mannsins við sérhverja einstaka tungu.
Í fyrirlestrum sínum benti Leonard Bernstein oft á
þau fótspor þjóðtungunnar sem finna má í verkum
meistaranna. Frá löngum og flæðandi frjálsum mel
ódíum frönskunnar til hinna skorinorðu og hryn
föstu þýsku laglína.
Ólíkindatólið Glenn Gould gekk enn lengra, þótt
í gríni væri, og taldi grundvallarmun á hinni heild
rænu þýsku þögn – og þeirri frönsku, sem augljós
lega væri til skrauts.
En nú er ég kominn út á hálan ís, mér fer betur að
halda ræður í tónum. Mig langar til að sýna stuðn
ing minn við þrotlaust og fallegt starf frú Vigdísar í
þágu menningarinnar með því að leika fyrir ykkur
á flygilinn.
Víkingur Heiðar Ólafsson.
Örstutt tækifærisræða á stofnfundi
Vina Vigdísarstofnunar 26. september 2010
10 MÁLFRÍÐUR