Málfríður - 15.10.2010, Page 17
öðrum nemendum í skólanum, frá kennurum og
googleþýðingarvél. Foreldrar voru mjög spenntir að
fylgjast með og kom enskukunnátta barnanna þeim
nokkuð á óvart. Í þessu verkefni var einnig notuð önnur
upplýsingatæki en eTwinning, en Flash Meeting sam
skiptavefurinn var notaður á veffundum. Inn í þetta
tengdist líka ljósmyndaverkefni en nemendur fóru um
skólann og tóku myndir til að nota í kynningu á skól
anum sínum fyrir verkefnið.
Are we so different? / ¿Y tú cómo vives?
Hilda Torres, spænskukennari við Verzlunarskóla
Íslands, í samvinnu við kennara og nemendur í IES
Antonio Machado, Alcalá de Henares í Madríd.
Verkefnið hefur verið starfrækt síðustu tvö skólaár. Í
verkefninu voru lifnaðarhættir ungmenna á Spáni og
Íslandi kannaðir – af hverju hafa þau áhyggjur, hvað
gera þau í frítíma sínum. Hvaða tónlist hlusta þau á,
hvernig vilja þau breyta heimabæ sínum, hvaða skoð
anir hafa þau á vináttu, öðrum tungumálum og menn
ingu, hvaða augum líta þau foreldra, kennara, o.s.frv.
Verkefnið byrjaði á því að nemendur hver sínu
megin ákváðu hvaða viðfangsefni þeir tækju fyrir.
Síðan kynntu nemendur sig á TwinSpace og unnu
saman að sínu viðfangefni. Afrakstur þessarar vinnu
nemenda voru glærukynningar, hlaðvarp, myndir og
myndbönd, allt aðgengilegt á bloggsíðu verkefnisins.
Verkefnavinnan fór fram á spænsku. Í verkefninu voru
einnig nýtt önnur veftæki, eins og Magazine Factory.
Bloggsíða verkefnisins er aðgengileg á slóðinni: http://
arewesodifferent.blogspot.com/.
Lokaorð
Þessi kynning og dæmi um verkefni veita aðeins
litla innsýn í þá möguleika sem felast í eTwinning
fyrir kennslu tungumála. Að lokum er vert að undir
strika hlutverk landskrifstofunnar, Alþjóðaskrifstofu
háskólastigsins. Landskrifstofan er fyrir þátttakendur
og því er alltaf hægt að snúa sér til hennar varðandi
stuðning og ráðgjöf í stóru sem smáu – endurgjalds
laust. Allar nánari upplýsingar er að finna á heimasíðu
landskrifstofunnar, www.etwinning.is, eða aðalsíðu
eTwinning, www.etwinning.net. Einnig er hægt að
snúa sér beint til undirritaðs í síma 525 5854 eða á net
fangið gim@hi.is.
Dæmi um verkefni
Hér á eftir er að finna dæmi um þrjú ólík verkefni sem
öll snúa að tungumálum. Athugið einnig að á aðalsíðu
eTwinning, www.etwinning.net (undir „Inspiration“),
er að finna tilbúna verkefnapakka (kits) sem hægt er að
nota, aðlaga og breyta eftir því sem við á.
Dansk/islandsk sprog og kultur
Ingibjörg S. Helgadóttir, dönskukennari við
Verzlunarskóla Íslands, í samvinnu við Herlev
Gymnasium, Danmörku. Dönsku nemendurnir voru að
læra um Íslendingasögurnar en þeir íslensku í dönsku
námi. Verkefnið var starfrækt skólaárið 2006–2007,
og er dæmi um hvernig sáraeinföld hugmynd getur
virkað vel. Í stuttu máli fór verkefnið þannig fram að
dönsku nemendurnir sendu spurningar um íslenska
sögu og menningu til félaga sinna á Íslandi. Íslensku
nemendurnir svöruðu spurningunum á sinni brogede
dansk með stafsetningarvillum og öðrum ambögum,
sem þeir dönsku síðan leiðréttu. Á þennan sáraeinfalda
hátt voru nemendur látnir vinna saman og verkefnið
fléttað inn í dönskukennsluna. Þess má geta að dönsku
nemendurnir stóðu sjálfir illa í móðurmálinu en lærðu
heilmikið af því að leiðbeina íslensku nemendunum.
Let‘s read, write and talk together
Ingibjörg Baldursdóttir, bókasafnsfræðingur og
Kolbrún Svala Hjaltadóttir, kennsluráðgjafi, báðar í
Flataskóla í Garðabæ, unnu saman að verkefni með
nemendum og kennara í Carlton Primary School í
London. Verkefnið hófst í janúar síðastliðinn og tók 4.
bekkur OS í Flataskóla þátt í því ásamt enskum jafn
öldrum sínum í London. Markmið verkefnisins var að
efla læsi og lesskilning og tengjast bæði enskunámi og
móðurmálsnámi nemenda. Einnig átti það að opna sýn
inn í tölvu og netheima þar sem nemendur myndu
spjalla á veffundum undir umsjón kennara.
Nemendur lásu sömu bókina (Skúla Skelfi eftir
Tony Ross) á eigin móðurmáli og fjölluðu um innihald
hennar. Einnig var skyggnst inn í umhverfi þeirra,
t.d. skólastofuna og bókasafn. Þá voru teknar myndir
af umhverfi skólans og af nemendum að störfum við
verkefnið.
Íslensku nemendurnir útbjuggu glærukynningu
sem sett var á TwinSpace og notuð á veffundunum.
Nemendur fengu hjálp við að vinna enska texta frá
MÁLFRÍÐUR 17