Málfríður - 15.10.2010, Page 19
(20 ára) frá Tokyo. Í B2 bar Armina Alic (18 ára) frá
BosníuHersigóvínu sigur úr býtum. Efsta sætið í C1
hlaut Mihaela Antonova (16 ára) frá Búlgaríu. Þessir
þrír nemendur hlutu öll þýskunámskeið í Þýskalandi
sumarið 2011 að launum. Sérstök verðlaun voru veitt
fyrir samskiptahæfni. Þau verðlaun komu í hlut Angele
Djufono Tsamene (18 ára) frá Kamerún.
Eftir tveggja vikna dvöl héldu allir til síns heima.
Fyrir nemendurna var þetta einstakt tækifæri til að
fara til Þýskalands, kynnast menningu og þjóð, þjálf
ast í þýskunni og hitta krakka á svipuðum aldri sem
líka eru að læra þýsku.
Fyrir tungumálakennara er nauðsynlegt að fara
af og til á málsvæðið þar sem tungumálið, sem þeir
kenna, er talað. Það er ein leið til að halda færninni í
tungumálinu við og styrkja tengslin við menninguna.
Ég hafði aldrei dvalið til lengri tíma í Hamborg og því
þótti mér gaman að kynnast þessari borg. Námskeiðið
var mjög gagnlegt og á því lærði maður ýmsar nýjar
kennsluaðferðir og komst í tæri við nýtt kennsluefni.
Það sem stendur upp úr eru kynnin af þýskukennur
um frá öllum heimshornum. Vinnuaðstæður kennara
eru mjög mismunandi eftir löndum. Einn kennarinn
er til að mynda með 50 nemendur í bekk, ein tafla er
í stofunni, krít og ein innstunga! Það er því óhætt að
segja að þessi Þýskalandsferð hafi víkkað sjóndeildar
hringinn og styrkt tengsl þýskukennara um heim allan.
Áslaug Harðardóttir
hópur að fara í ákveðið hverfi og skoða það í þaula.
Hópurinn sem ég var í fór til Blankenese sem er eitt
af úthverfum Hamborgar. Þar býr að mestu leyti ríkt
fólk, í stórum húsum, í fallegu umhverfi. Daginn eftir
var síðan hist á námskeiðsstaðnum og hver hópur átti
að kynna sitt hverfi með leikrænum hætti. Vakti það
mikla lukku og kátínu.
Eitt kvöldið fórum við í siglingu um höfnina í
Hamborg í frábæru veðri. Það var ógleymanleg upp
lifun að sigla um króka og kima hafnarinnar og virða
fyrir sér öll þessi stóru skip, óteljandi gámastæður og
heilan skóg af krönum.
Það var margt fleira sem við kennararnir tókum
okkur fyrir hendur. Við borðuðum á ýmsum veitinga
húsum og brögðuðum á fjölmörgum réttum sem eru
einkennandi fyrir Hamborg og svæðið þar í kring.
Hluti af því að upplifa menningu ákveðins lands eða
svæðis er að smakka þá rétti sem þar eru eldaðir. Fyrir
áhugamanneskju um mat og menningu var þetta að
sjálfsögðu mjög ánægjulegt.
Næstsíðasta námskeiðsdaginn komu allir, bæði
nemendur og kennarar, saman í ráðhúsi Ham
borgar. Þangað voru líka komnir þeir sem sáu um
Ólympíuleikana, umsjónarmenn kennaranámskeiðs
ins, blaðamenn og fulltrúar úr borgarstjórninni. Komið
var að verðlaunaafhendingu vegna Ólympíuleikanna.
Veitt voru verðlaun fyrir þrjú efstu sætin fyrir hvert
færnistig. Sigurvegarinn í A2 var Kenichi Kiyohara
Willkommen in der Welt des Lernens
Multitalent
Cornelsen Verlag • 14328 Berlin
9783060936717 x1AN_4C_stud Malfridur 1010.indd
20 x 13,8 cm, 4c
Malfridur, Zeitschrift für isländische Fremdsprachenlehrer
Kataloge und nähere Informationen erhalten Sie bei:
friederike.obermeier@cornelsen.de oder unter www.cornelsen.de/daf
Wer als Erwachsener eine Fremdsprache lernen möchte,
braucht ein erstklassiges Lehrwerk. Ein Lehrwerk wie studio d.
studio d berücksichtigt die Erwartungen und Lerngewohn-
heiten Erwach sener. Abwechslungsreiche Arbeits- und
Übungsformen garantieren lebendige Unterrichtsstunden.
Und dank modernster didaktischer Methoden haben Ihre
Kursteil nehmer schnell sprachliche Erfolge.
Auch das Medienangebot begeistert, u.a. mit Video-DVDs,
interaktiver Unterrichtsvorbereitung, Whiteboardmaterialien,
Lernersoftware und Audiotraining.
MÁLFRÍÐUR 19