Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.06.2001, Blaðsíða 34

Læknablaðið - 15.06.2001, Blaðsíða 34
FRÆÐIGREINAR / VIÐ RUMSTOKKINN I Mynd 1. Lungnamynd. Örvarnar benda á eitlastœkkanir í báðum My nd 2. Petta er sneið úr TS-rannsókn aflungum og miðmæti. Sneiðin er í lungnahliðum (hili). Einnig sjáum við eitlastœkkanir í miðmœti, það hœð við berkjuskiptingu (carina). Löngu örvarnar benda á stœkkaða eitla. er þykknun meðfram barka báðum megin, meira vinstra megin. Stutta örin sýnir okkur loft í vélinda aftan við berkjuskiptingu. sést íferð í efri- og miðlappa hægra lunga og smáar þéttingar neðarlega í vinstra lunga. Vélindamynd sýnir 3 cm svæði í miðju vélinda sem er samandregið og hangir skuggaefni í vélinda fyrir ofan þetta svæði eftir kyngingu. Þetta svæði nær þó að víkka að hluta og þá er slímhúðarmynstrið eðlilegt. Við kyngingu fer örlítið af skuggaefni niður í efsta hluta barka. Tölvusneiðmynd af brjóstholi leiðir í ljós eitla- stækkanir í miðmæti og hnútlaga þéttingar í báðum lungum. Segulómun af höfði sýndi töluverða slím- húðarbólgu í fleygbeinsholu (sinus sphenoidalis). Auk þess beinbreytingar í hnakkabeinsklif (clivus) og fleygbeinsvængnum. En við munum fá nánari lýsingu á myndgreiningarannsóknum síðar. Konan var lögð inn á sjúkrahús og rannsókn gerð til greiningar á sjúkdómnum. Samantekt Brynjar Viðarsson blóðfrœðideild Landspítala: Áður hraust 55 ára gömul reykingakona, með átta mánaða sögu um risafrumuæðabólgu, sem svaraði hefðbundinni sterameðferð, en er nú aftur komin með almenn einkenni, slappleika og þyngdartap og einkenni frá meltingarvegi sem virðast reyndar aldrei hafa horfið. Aðalvandamálið nú eru vaxandi kyngingarerfiðleikar og nýtilkomið hæsi sem reynist stafa af lömun í koki og raddbandi hægra megin. Sjúklingur er með hátt einstofna (monoclonal) IgA og afbrigðilegar eitilfrumur á blóðstroki. Má ég sjá röntgenmyndirnar. Myndgreining Eyþór Björgvinsson Röntgen Domtts Medica: Á lungnamynd (mynd 1), sem tekin er við komu sést fyrirferð í báðum lungnahliðum (hili) og tvöfaldur skuggi við ósæðarbogann ásamt þykknun á mjúkvef meðfram barkanum. Þetta útlit bendir eindregið til eitlastækkana í miðmæti og við lungnahlið. Síðan er fyrirferð út frá hægra lungnahliði, gæti verið æxli. Auk þessa sjást litlar hnökróttar þéttingar í neðri hluta lungna. Á hliðarmyndinni sést, eins og venju- lega, loft í barkanum, en einnig önnur loftsúla þar fyrir aftan. Þetta er loft í vélinda sem getur tengst kyngingarörðugleikunum sem talað var um. Skuggaefnisrannsókn af vélinda sýnir ásvelgingu (aspiration) yfir í barka við kyngingu og þrengingu á vélinda í hæð við berkjuskiptingu (carina). í þessari þrengingu er órofin slímhúð og ekki yfirhangandi brúnir eins oft sést þegar æxlisvöxtur er í slímhúð. Tölvusneiðmynd af brjóstholi (mynd 2) sýnir stækkaða eitla í miðmæti. I hæð við ósæðarbogann er töluvert loft í vélindanu en neðar, í hæð við berkju- skiptingu, fellur vélindað saman í miðju eitlaberði. Á sneiðunum fyrir neðan sést þrenging á berkju til hægra lunga. Það eru því eitlastækkanir í fram- og miðhluta miðmætis. I báðum lungunum eru dreifðir litlir hnútar sem ganga bæði út frá fleiðru og í lungnavef. Segulómun af heila (mynd 3) sýnir slímhúðar- bólgu í sáldbeins- (ethmoidal) og fleygbeinsholum. Fleygbeinsholan er alveg þétt og í henni stutt vökvaborð. Það er aukið segulskin í beininu (T2 534 Læknablaðið 2001/87
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.