Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.06.2001, Blaðsíða 75

Læknablaðið - 15.06.2001, Blaðsíða 75
UMRÆÐA & FRÉTTIR / ALÞJÓÐAFÉLAG LÆKNA Fundur Alþjóðafélags lækna í Divonne-les Bains, Frakklandi VORFUNDUR ALPJÓÐAFÉLAGS LÆKNA (WORLD Medical Association, WMA) var að venju haldinn í smábænum Divonne les Bains í Frakklandi dagana 3.-6. maí síðastliðinn, en skrifstofa samtakanna er í nánd við fundarstaðinn. Frá LÍ fóru formaður, varaformaður og formaður Siðfræðiráðs. Helstu málefni fundanna voru eftirfarandi. 1. Gagnagrunnar á heilbrigðissviði Fyrir fundinum lá tillaga frá vinnuhópi að stefnu Alþjóðafélags lækna varðandi söfnun upplýsinga í gagnagrunna á heilbrigðissviði og notkun þeirra. Þessi tillaga hafði verið til umræðu í öllum aðildar- félögum Alþjóðafélagsins, 72 að tölu og höfðu athugasemdir komið frá 12 þeirra, sumar ítarlegar. Umræður stóðu í þrjár klukkustundir í einni af fastanefndunum og þótt flestallir virtust vera sama sinnis varðandi meginreglur var ekki unnt að ljúka verkinu í nefndinni. Þó tókst að mestu að ljúka vinnu við ráðleggingar (recommendations) sem eru stuttar og almenns eðlis, en töluvert vantar á að forsendur (preamble) og útskýringar (principles) væru komnar í endanlegt horf. Drögin ásamt athugasemdum verða nú send vinnuhópnum að nýju sem eftir endur- skoðun verður að senda drögin út aftur til allra læknafélaga innan Alþjóðafélags lækna. Vinnu- hópurinn var jafnframt stækkaður og hefur nú fulltrúa frá níu löndum. A þessari stundu er erfitt að sjá hvort endanleg yfirlýsing verður afgreidd á ársfundi Alþjóðafélags lækna í haust eða hvort frekari umræður þurfi að fara fram sem er þó líklegra. Stórir, samsettir gagnagrunnar af því tagi sem áætlað er að koma á fót á íslandi, eru ný fyrirbæri og vegna þeirrar umræðu sem íslensku hugmyndirnar vöktu innan samtakanna eru þau meðal þeirra fyrstu á alþjóðavettvangi sem taka þetta efni til umræðu. Af þeim ástæðum líta samtökin á þetta málefni sem mjög mikilvægt fyrir þau og vilja því vanda vel til myndunar sameiginlegrar yfir- lýsingar. Af íslands hálfu var lögð áhersla á tvö atriði, að fyrirframgefið samþykki verði regla með fáum, vel skilgreindum afmörkuðum undantekningum, og að möguleiki verði gefinn á að taka gögn úr grunninum ef farið væri fram á það svo framarlega sem þau væru ekki komin á úrvinnslustig. 2. Helsinkiyfirlýsingin Síðasta útgáfa var samþykkt síðastliðið haust á ársfundi Alþjóðafélags lækna eftir meiri umræður en áður hafa farið fram um nokkra yfirlýsingu sam- takanna. Einnig höfðu fleiri aðilar en áður, bæði lærðir og leikir, tekið þátt í umræðunni. Eftir að þessi útgáfa var samþykkt hefur hún verið kynnt alþjóð- lega og fengið mjög góðar viðtökur með tveimur undantekningum. FDA í Bandaríkjunum og lyfja- stofnun Evrópusambandsins hafna lúlkun Alþjóða- félags lækna í yfirlýsingunni, að það sé ósiðlegt að setja upp lyfjarannsóknir með lyfleysu ef til væri viðurkennd meðferð við umræddum sjúkdómi. Samþykkt var að vinnuhópur innan Alþjóðafélags lækna fylgdist með umræðunni á næstunni og kæmi með ráðleggingar til samtakanna um hvort og til hvaða viðbragða ætti að grípa vegna þessara gagnrýnisatriða, en vinnuhópurinn fékk ekki umboð til að endurskoða yfirlýsinguna að öðru leyti. 3. Líknardráp Fram var borin tillaga frá norska læknafélaginu þar sem áréttað var álit Alþjóðafélags lækna í fyrri ályktunum að líknardráp væri undir engum kring- umstæðum réttlætanlegt. Þessi ályktun var viðbragð samtakanna við nýsettum lögum í Hollandi sem leyfa líknardráp undir vissum, ströngum kringumstæðum og var hún samþykkt með öllum atkvæðum gegn atkvæði hollenska fulltrúans. Gagnrýnin sem fulltrúi Hollands fékk var svo ákveðin og hörð, að formaður stjórnarinnar sá ástæðu til að minna fulltrúa á að sýna hver öðrum kurteisi. Það er hins vegar staðreynd sem ekki er hægt að horfa framhjá að hollenska læknafélagið var samþykkt setningu laganna og að umræða af þessu tagi á sér stað víðar í heiminum. 3. Bann við tóbaksauglýsingum Fram var sett hörð gagnrýni á Alþjóðheilbrigðis- stofnunina (WHO) sem hefur dregið til baka tillögu um bann við tóbaksauglýsingum vegna þrýstings. Það merkilega er að þessi þrýstingur hefur ekki komið beint frá tóbaksfyrirtækjum heldur frá aðilum sem hafa verið háðir tóbaksauglýsingum svo sem ýmsum íþróttasamtökum og menningarstofnunum. Tillaga um gagnrýni á WHO var samþykkt og verður þegar notuð í viðræðum við stofnunina, en að öðru leyti eru mjög góð tengsl við hana. 4. Notkun geðdeilda í refsingarskyni Aftur koma fréttir af misnotkun geðdeilda og með- höndlunar við meintri geðveiki hjá stjórnarand- stæðingum í vissum löndum svo sem í Kína, en fréttir af þessu tagi voru algengar á tímum Sovétríkjanna. Samþykkt var ályktun sem fordæmir aðferðir af þessu tagi. Læknablaðið 2001/87 575
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.