Læknablaðið

Árgangur

Læknablaðið - 15.06.2001, Blaðsíða 41

Læknablaðið - 15.06.2001, Blaðsíða 41
UMRÆÐA & FRÉTTIR / FORMANNARÁÐSTEFNA Formannaráðstefna LÍ Formannaráðstefna LÍ var haldin í húsnæði læknasamtakanna að Hlíða- smára 8 hinn 11. maí síðastliðinn. Fundinn sóttu formenn aðildarfélaga LÍ auk formanna og/eða fulltrúa fasta- nefnda og einstakra starfshópa. Formaður, Sigurbjörn Sveinsson, gerði grein fyrir starfi stjórnar frá síðasta aðal- fundi og hvernig unnið hefur verið að framkvæmd samþykkta þess fundar. Mikill tími stjórnar hefur farið í umfjöllun um væntanlegan miðlægan gagnagrunn á heilbrigðissviði, Sigurbjörn rakti þá sögu og samskipti LÍ við fulltrúa íslenskrar erfðagreiningar. Hann gerði einnig grein fyrir umræðu á nýlegum fundi Alþjóða- félags lækna sem þrír fulltrúar LÍ sátu, en skýrslu frá þeim fundi má lesa annars staðar í blaðinu. Læknaskortur í máli formanna einstakra aðildarfélaga bar hátt mönnunarmál og lýstu menn þungum áhyggjum vegna þess skorts sem þegar er orðinn á læknum hér á landi. Fulltrúar svæðafélaga, einkum utan Stór- Reykjavíkur hafa miklar áhyggjur af mönnunarmálum þar sem víða eru ósetnar stöður og viðvarandi lækna- skortur sem ekki er fyrirsjáanlegt að rætist úr. Ágúst Oddsson formaður Félags landsbyggðarlækna benti á að á lands- byggðinni eru 85 stöðugildi lækna, af þeim eru 15-20 ósetin. Einungis eru um 50% setin sérfræðingum í heimilislækningum. Svipað kom fram í máli formanns Félags sjálfstætt starfandi heimilislækna og eins fulltrúa Félags ungra lækna, Þorvarðar Jóns Löve. Þorvarður Jón benti á þann skort sem þegar er orðinn á ungum læknum. Á sama tíma og sjúklingum fjölgar fækkar læknum. Hann fjallaði einnig um það gífurlega álag og aðstöðu- leysi sem unglæknar búa við og kvað unglækna hafa dregist aftur úr sambæri- legum háskólamenntuðum stéttum kjara- lega. Aðrir tóku undir það álit að fjölga þyrfti útskrifuðum læknum. Jón Snædal benti á skýrslu sem Læknafélag Dan- merkur fékk Vinnueftirlitið þar í landi til að taka saman um starfsaðstöðu unglækna og deildarlækna. Niðurstöður Vinnu- eftirlitsins voru missvartar skýrslur um einstaka spítala, en allar svartar. Ýmis mál Nokkuð var fjallað um samninga deCode og einstakra heilbrigðisstofnana sem þegar hafa verið gerðir eða eru í undirbúningi. Fram kom að í samninga- viðræðum milli félagsins og Heilbrigðis- stofnunar Vesturlands hefði verið gengið framhjá læknaráði stofnunarinnar og mönnum þar þótti í raun að tjáningarfrelsi í opinberri þjónustu hefði verið afnumið. Á vegum Skurðlæknafélags íslands hefur allnokkur umræða átt sér stað um kjaramál og hvaða leiðir geti verið færar til úrbóta. Lítil nýliðun er meðal skurðlækna, námið er langt og meðalaldur hár. Helgi H. Sigurðsson formaður félagsins sagði skurðlækna langþreytta á stöðunni og menn íhuguðu jafnvel hvort vænlegt væri að segja sig úr LÍ til þess að ná þeim markmiðum sem sett hefðu verið fram. Ólöf Sigurðardóttir formaður Félags kvenna í læknastétt á ísland skýrði frá starfsemi félagsins til þessa, en mikil gróska hefur verið þau tvö ár sem félagið hefur starfað. Hún greindi frá fyrirhuguðu málþingi þann 17. maí en um það má lesa annars staðar í blaðinu. Á fundinum varpaði formaður LÍ fram þeirri spurningu hvort mönnum þætti for- mannafundir sem þessi nauðsynlegir eða hvort þetta væri ef til vill arfur liðins tíma sem rétt væri að leggja af. Fundarmenn lýstu almennt þeirri skoðun að formannafundir væru afar gagnlegir til þess að skiptast á skoðunum og bera saman bækur, hvort heldur væri um kjaramál, tryggingamál eða önnur heilbrigðispólitísk mál svo sem gagna- grunninn. Hér væri afar góður vettvangur til umræðna, sem vert væri að viðhalda. Sigurbjörn lýsti því jafnframt yfir að á aðalfundi LÍ næsta haust myndi hann gefa kost á sér til áframhaldandi starfa for- manns næstu tvö árin. Gerðu aðrir fundarmenn góðan róm að því. -bþ dæmið er af unglingi sem gegn sínum vilja (en með vilja foreldranna) sér að gögn um hann fara í grunninn, en getur við 18 ára aldur látið eyða þeim gögnum. Annað dæmi er af einstaklingi sem gefur þessu máli ekki gaum en skiptir af einhverjum sökum um skoðun og getur þá látið farga upp- lýsingum um sig. Síðast en ekki síst hefur almenningur möguleika á að hafa veruleg áhrif á afdrif grunnsins ef fyrirtækið glatar trausti hans. Rekstrarleyfishafi getur einnig haft af þessu hag því þetta fyrirkomulag er einfalt og þarfnast ekki sérstakrar útfærslu eða kostnaðar. Líklega verður meiri friður um fyrirOtækið en verið hefur og hugsanlegt er að færri verði í úrsagnargrunni fyrir vikið. Rétt er að taka fram að stjórn LÍ hefur þegar þetta er skrifað ekki samþykkt þessa hug- mynd, en er með hana til umfjöllunar. Er þessi lausn of dýru verði keypt? Verður Læknafélagið trúverðugt eftir alla þá vinnu sem lögð hefur verið í að breyta því fyrirkomulagi sem nú er? Þessu verður hver að svara fyrir sig en undirritaður telur að ef félagið ákveður að standa að slíkri lausn sé náð áfanga að því lokatakmarki að enginn sjái á eftir upplýsingum um sig í gagnagrunn án þess að hafa gefið til þess ótvírætt, skriflegt samþykki. Læknablaðið 2001/87 541
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96

x

Læknablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.