Læknablaðið

Ukioqatigiit

Læknablaðið - 15.01.2004, Qupperneq 30

Læknablaðið - 15.01.2004, Qupperneq 30
FRÆÐIGREINAR / D - V ÍTA M f N B Ú S K A P U R lengd 290-315 nm) og er sólarljós því langmikilvæg- asta uppspretta D-vítamíns. Húðin getur undir viss- um kringumstæðum séð okkur fyrir 80-100% af D- vítamínþörfum okkar (1, 4) en einnig fáum við D- vítamín úr fæðu. D-vítamínþörf úr fæðu er mismun- andi eftir löndum og legu á jarðkringlunni og því nauð- synlegt að rannsaka D-vítamínbúskap í hverju landi fyrir sig. Núgildandi ráðlögð neysla D-vítamíns á Is- landi er 10 míkrógrömm (pg) á dag fyrir börn, ung- linga og fólk eldra en 60 ára en 7 pg fyrir fólk á miðj- um aldri (5). Algengustu orsakir D-vítamínskorts eru skortur á sólarljósi og/eða skortur á D-vítamíni í fæðu en það er helst að finna í sjávarfangi, eggjum og lifur en einn- ig þar sem því er bætt út í fæðu en hér á íslandi er það til dæmis smjörlíki, Dreitill, Fjörmjólk og ýmsar teg- undir morgunkorns (6). Beinkröm (rickets) í börnum og beinmeyra (osteomalacia) í fullorðnum eru alvar- legustu afleiðingar D-vítamínskorts (7). Afleiðingar truflunar á D-vítamínbúskap geta komið fram löngu áður en bein merki um áðurnefnda sjúkdóma koma fram (7, 8). Þetta hefur almennt verið viðurkennt og hefur styrkur 25(OH)D í sermi verið notaður sem mælikvarði á eðlilegan D-vítamínbúskap (9,10). Til að verða virkt þarf D-vítamín að gangast undir tvö efnahvörf. í lifur myndast 25(OH)D (calcidiol) og í nýrum myndast l,25(OH)D sem er hið virka form D- vítamíns. Á síðustu árum hefur þannig verið sýnt fram á tengsl vægari D-vítamínskorts við beinþynningu hjá eldra fólki valdandi hækkun á kalkhormóni og auknu beinniðurbroti (2, 7, 11, 12). Pá hefur verið bent á tengsl D-vítamínskorts við minnkaðan vöðvakraft og auknar líkur á byltum (13). Einnig er líklegt að verk- un D-vítamíns skipti máli fyrir ýmsa aðra líkamsstarf- semi, meðal annars ónæmiskerfið (14-16). Skilgreining á eðlilegum neðri mörkum á styrk 25(OH)D í sermi eru nokkuð mismunandi eftir rann- sakendum og löndum en hafa verið talin vera á bilinu 20-37,5 nmól/1 (10). Styrkur PTH (primary hyper- parathyroidism hefur nýlega einnig verið notaður sem mælikvarði á D-vítamínskort þar sem miðað er við að seyting PTH sé í lágmarki við æskilegan styrk 25(OH)D (17,18). Tilgangur þessarar rannsóknar var að kanna árstíða- bundnar sveiflur á D-vítamínbúskap Islendinga á aldr- inum 30-85 ára og meta með mælingum á D-vítamín- inntöku, hversu miklu máli mataræði skipti í D-vítamín- búskapnum. Með því að skoða samband 25(OH)D og PTH var ætlunin að finna æskilegan styrk 25(OH)D í sermi og áætla æskilega D-vítamínneyslu út frá því. Rannsóknarhópur og aðferðir Úrtak Slembiúrtak var tekið úr íbúaskrám Reykjavíkur og nágrannasveitarfélaga og þátttakendur valdir úr ár- göngum fæddum árin 1916-1961 með fimm ára milli- bili, alls 10 árgangar. Upprunalega endurspeglaði úr- takið því aldurinn 40-85 ára, 144 konur í hverjum ár- gangi og 96 karlar. Ári síðar var bætt við 144 körlum og 96 konum sem fædd voru árið 1972 og var þeim skipt niður á þá 12 mánuði rannsóknarinnar sem eftir voru. Heildarúrtak var því 2640 einstaklingar á ald- ursbilinu 30-85 ára. Ástæða þess að fleiri konur en karlar voru í úrtakinu var sú að gert var ráð fyrir því að fleiri konur yrðu útilokaðar frá öðrum hlutum rann- sóknarinnar, til dæmis vegna notkunar hormónalyfja sem áhrif gætu haft á sumar niðurstöður en í þessari rannsókn voru allir teknir með. Rannsóknin stóð frá byrjun febrúar 2001 til loka janúar 2003 og spannar því samtals tveggja ára tímabil. Þeir einstaklingar sem voru útilokaðir frá þátttöku í rannsókninni voru barnshafandi konur, konur með barn á brjósti og út- lendingar með skammtímadvöl á Islandi, en jafn- framt þeir sem reyndust brottfluttir (alls 330). Einnig voru þátttakendur með kalkvakaóhóf (PTH >65 pmól/1 og jónað kalsíum >1,30 mmól/1) útilokaðir þar sem sá sjúkdómur raskar eðlilegum tengslum 25(OH)D og PTH (alls 21 einstaklingur). Rannsókn- in var framkvæmd með samþykki Persónuverndar og Vísindasiðanefndar. Almennur spurningalisti Send var út skrifleg þátttökubeiðni með reglubundnu millibili (mánaðarlega) og þeir sem svöruðu játandi varðandi þátttöku fengu sent annað bréf ásamt spurningalista þar sem rneðal annars var spurt um heilsufarssögu, notkun lyfja og bætiefna. Við komu var farið í gegnum spurningalistann og aðstoð veitt við útfyllingu þar sem þess var þörf. Könnun á kalk- og D-vítamínneyslu Stuðst var við staðlaðan spurningalista frá Manneld- isráði um mataræði sem hannaður var með það að markmiði að meta neyslu valinna næringarefna, meðal annars D-vítamíns og kalks. Listinn tekur því nákvæmar til þeirra fæðutegunda sem vega þyngst í neyslu Islendinga á þessum næringarefnum, til dæmis mjólkurvara, fisks og lýsis (12). Islenski gagnagrunn- urinn um efnainnihald matvæla (ÍSGEM) (19) var lagður til grundvallar við útreikninga ásamt upp- skriftagrunni Manneldisráðs. Svör þátttakenda voru skönnuð inn á tölvu og reikniforrit Manneldisráðs ICEFOOD var notað til útreikninga á fæðu og nær- ingarefnum. Síðustu þrír mánuðir eru hafðir í huga við útfyllingu listans og niðurstöður eru birtar sem meðaltalstölur yfir neyslu næringarefna dag hvern á því tímabili. Sólskinsstundir Fjöldi sólskinsstunda var fenginn frá Veðurstofu ís- lands fyrir rannsóknartímabilið til að gefa mynd af áhrifum sólarljóss á D-vítamínbúskap. 30 Læknablaðið 2004/90
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96

x

Læknablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Læknablaðið
https://timarit.is/publication/986

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.