Þjóðlíf - 01.10.1987, Side 24

Þjóðlíf - 01.10.1987, Side 24
ERLENT Eyrarsundsbrú Byggd á næstu árum EFTIR ARATUGA umræöur virðist nú svo sem loks hylli undir „endanlega" lausn sam- gönguvandamála yfir Eyrarsund. Nú nýlega lagöi sænsk-dönsk Eyrarsundsnefnd fram álit sitt og mælti þar eindregið með því að ráðist yrði í að byggja brú yfir sundið. Skyldi að því stefnt að hún stæði fullbúin 1995. Nefndin athugaði nokkra möguleika hvað varðar staðsetningu og gerð brúar. Niður- staðan varð sú að raunhæfast væri að byggja sameiginlega bíla- og járnbrautarbrú milli Málmeyjar og Kaupmannahafnar. Skyldi sú hafa fjórar akreinar og tvöfalt járnbrautar- spor og hafa sem endastöð Danmerkurmeg- in nýja neðanjarðarjárnbrautarstöð rétt fyrir norðan Kastrup. Leiðin frá miðborg Málm- eyjar til Kastrup yrði þá lögð að baki á u.þ.b. 15 mínútum í bíl og 10 ef járnbrautin er notuð. í dag tekur slíkt ferðalag minnst tvo tíma og verður þá vel að ganga. Hér í Svíþjóð hefur lengi verið mikill áhugi á föstum tengslum milli Skánar og Danmerkur. Áhuginn hefur verið öllu minni hinum megin við sundið. Það hefur verið ríkjancji sú stefna að brú yfir Stórabelti hafi forgang. Nú mun hins vegar óhætt að segja að hafist hafi verið handa um þá brú og því eru Danir ekki lengur jafn neikvæðir. Hér kemur einnig til að reiknað er með að Eyrar- sundsbrúin verði fjármögnuð með láni til þrjátíu ára en komi til með að hafa borgað sig á tuttugu árum með vegatollum. Fjárhags- lega virðist brú því ekki þurfa að verða baggi á ríkinu. Það er einnig tímanna tákn að þeir sem enn efast um brúna eða eru henni and- snúnir eru það fyrst og fremst á grundvelli náttúruverndarsjónarmiða en fyrir nokkrum árum var það kostnaðarhliðin sem aðallega olli andstöðu. Samkvæmt Eyrarsundsnefnd- inni þarf þó ekki að hafa stórar áhyggjur af náttúrunni þó svo brú verði byggð. Náttúru- verndarmenn hafa nefnt þrjár ástæður til andstöðu. í fyrsta lagi hafa menn óttast nei- kvæðar afleiðingar á dýralífið á hinum frið- lýsta Salthólma. Lausnin á því mun vera að u.þ.b. 700 metra frá Salthólma lækkar brúin og hverfur í göng undir sjávarmál. í öðru lagi hefur verið talið að hin aukna bílaumferð sem óhjákvæmilega fylgdi brú myndi leiða til slíkrar mengunaraukningar að það riði hin- um skánsku skógum að fullu. Samkvæmt út- reikningum Eyrarsundsnefndarinnar mun þó ekki verða aukning á heildarmenguninni í og með brúnni þegar reiknað er með að ferj- urnar muni að mestu leggjast niður. í þriðja lagi hefur verið bent á að brúin muni hugsan- lega hafa óheppileg áhrif á strauma í Eyrar- sundi og þannig skaða dýra- og plöntulíf. Nefndin hefur komist að þeirri niðurstöðu að koma megi í veg fyrir það vandamál með því að auka dýpið við Drogden úr 8 í 10 metra. Heildarniðurstaða nefndarinnar er þannig að brú yfir Eyrarsund þurfi því alls ekki að hafa í för með sér skaðleg áhrif á umhverfið. Sjálfsagt hefur umhverfis- og orkumála- ráðherra Svía, Birgittu Dahl, létt mikið við þessa niðurstöðu. Hin síðari ár hefur komið upp þó nokkur brúarandstaða á Skáni, að stórum hluta byggð á umhverfisverndar- sjónarmiðum. Sænskir sósíaldemókratar hafa einnig verið í óða önn að reyna að þvo af sér stimpilinn sem „steinsteypuflokkur" ekki hvað síst eftir að ljóst varð að stórar líkur eru á að sænskir græningjar komist á þing við næstu kosningar. Við slíkar kringumstæður hefði verið erfitt að ráðast í jafn feiknastóra framkvæmd ef verulegur grunur léki á að hún hefði neikvæð áhrif á náttúruna. En sem stendur virðist svo sem Birgitta geti vel varið stuðning við brúna. Andstaðan innan sósíaldemókrataflokks- ins hefur verið bundin við nokkrar deildir á Skáni en svo til allir forystumenn flokksins og hin sterka Málmeyjardeild eru brúnni mjög fylgjandi. Nú síðast hefur Stig Malm, formaður sænska alþýðusambandsins, lýst sig fylgjandi brú og forsætisráðherrann, Ingvar Carlson, er einnig jákvæður. Það mun því óhætt að reikna með að sænska þingið ákveði á þessu ári eða næsta ári að ráðast í að byggja brú. I Danmörku virðist svo sem staðan sé svipuð. Borgaraflokkarnir munu allir, að Róttæka Vinstriflokknum undanteknum, vera fylgjandi brúnni og danskir kratar eru sama sinnis. Á danska þinginu er því stór meirihluti með brúarbyggingu. Þó er rétt að hafa í huga að áhugi Dana á brú hefur alltaf verið mun minni en Svía. Alls er óvíst hvaða afstöðu hin nýja stjórn dana muni taka. Hafi einhver flokkur sem mjög er andsnúinn brúnni úrslitaaðstöðu er hugsanlegt að ákvörðun verði enn frestað. Heldur er þó ólíklegt að svo fari, sér í lagi ef náttúrurök Eyrarsundsnefndarinnar standast nánari skoðun. Dönskum stjórnmálamönnum er umhugað að auka atvinnumöguleika og brú- in skapar mikinn fjölda nýrra starfa. Að auki gæti flugvöllurinn við Málmey, Sturup, þá létt eitthvað á Kastrup, sem nú er ákaflega þröngt setinn. Síðast en ekki síst skyldu menn ekki vanmeta áhrif þess að hinir vel- stæðu íbúar við strandsvæðin í nyrðri hlutum Kaupmannahafnar (hinu svokallaða „Whisky- belti") eygja þarna möguleika á að losna við mikinn hluta að þeirri llutningaferðum sem hefur hrjáð þá. Það má því mikið hafa gerst ef ekki verður ráðist í brúarbyggingu á næstu árum. • Ingólfur V. Gíslason Kona í Hvíta húsið? Patricia Schroeder líkleg til framboós LITLU EFTIR að þetta tölublað ÞJÓÐLÍFS kemur fyrir augu lesenda sinna ætti Pat Schroeder aö hafa tilkynnt opinberlega af eða á um það hvort hún gefi kost á sér í forkosningum innan Demókrataflokksins vegna forsetakosninganna í Bandaríkjunum. Schroeder fór ekki að íhuga framboð fyrr en eftir að Gary Hart hafði dregið sig í hlé, en þau Hart eru bæði þingmenn Demókrata- tlokksins fyrir Colorado-fylki. Hart hefur verið sótt að henni úr herbúðum kvenna t Demókrataflokknum, og konur í stærstu kvennasamtökum Bandaríkjanna, NOW og NWPC, hafa eindregið hvatt hana til að gefa kost á sér. Patricia Schroeder er 47 ára að aldri, tveggja barna móðir og gift lögfræðingi. Hún á að baki 14 ára setu í fulltrúadeild banda- ríkjaþings og nýtur mikils álits sem þing- maður. Sem dæmi um það má nefna að þing- menn fulltrúadeildarinnar eru 435 talsins, en aðeins u.þ.b. 20 þeirra eru þekkt nöfn utan sinnar heimabyggðar. Patricia Schroeder fyllir þann hóp. Hún á sæti í hernet'nd full- trúadeildarinnar og hefur markað sér sess sem eindreginn talsmaður friðar; hún hetur verið óhrædd við að tala fyrir fóstureyðing- um og það þrátt fyrir að fylki hennar tilheyn svokölluðu „biblíubelti" í Bandaríkjunum: hún er fylgjandi því að fylkin taki þátt í upp- byggingu dagvistarheimila; og Patricia Schroeder hefur reynst ötul talskona fátækra bandaríkjakvenna: einstæðra mæðra, kvenna í láglaunastörfum o.s.frv. Hún þykir ófeimin við að koma skoðunum sínunr a framfæri á skiljanlegu máli - er semsé ákveð- in í framkomu, sumir kynnu að segja frek, jafnvel kjaftfor. Enda er það svo að karl- menn veigra sér yfirleitt við að vera við hana kenndir pólitískt, forðast að ljá henni sæti i innstu hringjum þingsins, hlaupa útundan sér þegar þeir eru inntir eftir því hvort þe>r myndu styðja framboð hennar. Sjálf segir hún að konur verði um 35 prósent fulltrúa á þingi Demókrataflokksins og því ættu þeim að vera hæg heimatökin vilj1 þær á annað borð hreinsa ofurlítið til í sinu húsi. Framboð af hennar liálfu kom ekki til greina fyrr en í maí að Gary Hart hætti við framboð eftir að upp komst um strákmn Tuma, en þá segist hún líka hafa horft vendi- lega á þá sem kostur gafst á og vegið þá metið í bak og fyrir. Og hún komst að þessari niðurstöðu: „Því ekki? Fyrst hann getur, þvl þá ekki ég?" Þetta er hins vegar dýrt spaug. Patricn' segist ekki munu hella sér í slaginn nemu 22

x

Þjóðlíf

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðlíf
https://timarit.is/publication/1099

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.