Þjóðlíf - 01.10.1987, Qupperneq 36

Þjóðlíf - 01.10.1987, Qupperneq 36
INNLENT líða stundir kippa stoðunum undan því vel- ferðarþjóðfélagi sem nú er í uppbyggingu. Um þessar mundir eru sex vinnufærir íslend- ingar um hvert gamalmenni og ellilífeyris- þega. Með hækkun meðalaldurs þjóðarinnar mun hlutfallið raskast. Árið 2020 er áætlað að vinnufæru fólki á hvern ellilífeyrisþega hafi fækkað um 50% (4:1). Á árunum þar á eftir mun hlutfall gamalmenna vaxa mjög ört. Það blasir því við að framfærslubyrði landsmanna vegna gamalmenna og sjúkra mun hækka gífurlega, að öllum líkindum talsvert meira en sem nemur framangreind- um 50%. Erfitt er að segja til um áhrifin á atvinnu- og efnahagslífið, en víst er að þau verða margvísleg. Þar er fyrst að taka að hjúkrun og þjónusta við aldraða mun krefjast stór- aukins mannafla. Hlutfall landsmanna sem starfar að verðmætasköpun hlýtur að lækka. Líklega verður mannekla í atvinnulífi varan- leg og engu minni en nú er. Afleiðingin yrði áframhaldandi þensla og illviðráðanleg verðbólga. Atvinnuvegirnir þyrftu á öllum að halda; jafnt gamalmennum og konum sem stálpuðum börnum og unglingum. Skólarnir myndu lenda í erfiðri samkeppni við atvinnulífið sem byði nemendum gull og græna skóga. Önnur leið til að sigrast á manneklunni væri að ttytja inn vinnuafl frá öðrum löndum, sem settist hér að. Þessi framtíðarsýn minnir um margt á það ástand sem nú ríkir í atvinnu- og efnahags- málum hér á landi. Því liggur beint við að spyrja: Etum við nú þegar of fá? Um þessar mundir er bullandi góðæri og aldurssamsetning þjóðarinnar afar hagstæð með tilliti til útgjalda vegna velferðarmála. Þrátt fyrir það er halli á ríkissjóði, og skuldir við útlönd halda áfram að vaxa. Við getum ekki treyst á góðæri og hagstæð viðskipta- kjör um alla framtíð. Það er til mikils ætlast af fámennri kynslóð vinnandi fólks í fram- tíðinni að hún bæði annist hinn mikla fjölda gamalmenna og borgi óráðsíu fyrri kynslóða. LÆKKANDI FRJÓSEMI er ekki séríslenskt fyrirbæri. Hún er löngu þekkt meðal svo- kallaðra „velferðarríkja" á Vesturlöndum. Beinn samanburður í þessum efnum á ís- landi og öðrum löndum er varasamur. Menn virðast gleyma því að ísland er miklu skemur á veg komið í sinni þjóðfélagsmótun en þessi lönd. Því eru miklar líkur á að mannfjölda- stöðnun hér hafi aðrar og verri afleiðingar en annars staðar. ísland sker sig úr hvað öll eftirtöld atriði varðar: • Hinar þjóðirnar eiga að baki langvinna og stöðuga samfélagsþróun allt frá árdögum iðnbyltingar. Á meðan við bjuggum enn í torfkofum, dreifð um landið, var iðnvæð- ing og borgarmyndun vel á veg komin í þessum löndum. • Atvinnulíf þessara landa er í föstum skorðum. Þar fylgist að kyrrstaða í mann- fjölda og atvinnulífi. Sökum meiri afkasta og hagkvæmni í atvinnulífi eru þessar þjóðir yfirleitt betur undir mannfjölda- stöðnun búnaren við. • Vinnumarkaðurinn er mettaður. Það er ekki þörf fyrir meira vinnuafl. • Þessar þjóðir eru yfirleitt tug-, hundrað- og jafnvel þúsundfalt mannfleiri en við. Þar er því ákveðin mannfjöldamettun. • Aðstæður á Íslandi eru eins ólíkar og frekast getur orðið hvað öll framangreind atriði varðar. Hér er „gróandi þjóðlíf" Við erum ung þjóð í ungu landi. Verkefn- in blasa við hvert sem litið er. Hér skortir fólk til vinnu. Það getur ekki samræmst þeim markmiðum sem þjóðfélagið hefur sett sér að nýhafið uppbyggingarstarf leggist af vegna fólksfæðar. ORSAKIR. Umbylting íslensks samfélags úr bændaþjóðfélagi í hátæknivætt nútímasam- félag hefur gengið miklu hraðar fyrir sig en annars staðar á Vesturlöndum. Því fer fjarri að öldurót umbreytinganna hafi lægt ennþá. Vegna þess hve þróunin hefur verið ör hafa viðhorf okkar til barna, barneigna og margra annarra mála ekki náð að breytast til sam- ræmis við nýjar aðstæður. Til skamms tíma höfðu foreldrar verulegt gagn af börnum. Börnin voru vinnuafl og gátu hlaupið undir bagga með foreldrunum, og þau styrktu afkomumöguleika tjölskyld- unnar. Börnin veittu foreldrunum ákveðið öryggi, og í ellinni áttu þeir vísan samastað hjá þeim. Fólki var því kappsmál að eignast börn, og gjarna mörg. Staða barna og barnafjölskyldna hefur gjörbreyst með nýjum atvinnuháttum. Ólíkt því sem áður var eru börn ekki lengur virkir þátttakendur í þjóðlífinu. Grundvöllurinn að efnislegri velferð nútíma samfélags er menntun. Samfélagið krefst þess af börnum að þau eyði a.m.k. 9 árum og allt upp í aldar- fjórðungi á skólabekk. Börn gegna því engu hagnýtu hlutverki í samfélaginu. Fremur hið gagnstæða. Börn og barneignir fela í sér um- talsverðan kostnað jafnt fyrir foreldra sem stjórnvöld. Afstaða stjórnvalda til barna og barneigna er því skiljanlega nokkuð klofin, og henni verður kannski best lýst með orðunum „ill nauðsyn". Þannig halda framámenn í þjóð- félaginu oft langar ræður um ungviðið sem „verðmætasta framtíðarauð þjóðarinnar" og þaf fram eftir götunum, þó gerðir þeirra tali allt öðru máli. Hið opinbera leitar allra leiða til að spara kostnaðinn vegna uppeldis, eins og nánar verður vikið að síðar. í þeim efnum helgar tilgangurinn meðalið. Skammsýni ráðamanna stafar vafalítið af því hve seint menntun og uppeldisstarf skilar arði fyrir þjóðfélagið, auk þess sem árangurinn verður ekki metinn í krónutölum. Um leið og samfélagsaðstæður krefjast aukinnar atvinnuþátttöku kvenna hindra börn og barneignir þær í að komast út á vinnumarkaðinn. Af sömu ástæðu lítur at- vinnulífið börn og barneignir hornauga. Vegna barneigna eru konur ótraust vinnuafl. Þær geta þurt't að hverfa frá vinnu fyrirvara- laust, og aldrei að vita hvort þær snúi aftur. A tímum örra tæknibreytinga og sviftinga í at- vinnulífi hentar vel að vinnuaflið sé hreyfan- legt. Barneignir virka þveröfugt: Þær njörva foreldrana oft niður. Þjóðskipulagið felur því í sér illsættanleg- ar andstæður milli barneigna og atvinnulífs. Ef við gefum okkur þá líklegu forsendu að ungt fólk sækist eftir barneignum, segir sig sjálft að þessu ástandi fylgir vanlíðan og and- leg togstreita fyrir foreldrana sjálfa. Það er ekkert náttúrulögmál að barneign- ir og atvinnuþátttaka fari ekki saman. Ef vilji er fyrir hendi geta stjórnvöld gert ýmislegt til að draga úr þessum óæskilegu andstæðuni. Aðgerðir sem miðuðu að slíku gætu verið: • Aukið framboð ogódýrara dagvistarrými. • Lenging fæðingarorlofs. • Sveigjanlegur vinnutími fyrir smábarna- foreldra. • Réttur til launalauss leyfis til langs tíma. Ýmsar aðrar orsakir eru að baki lækkandt frjósemi. Hér skal aðeins einnargetið til við- bótar: Á sama tíma og foreldrar sjá aukinn kostnað og óþægindi sem hljótast af börnum er gífurlegt framboð af alls kyns varningi- þægindum og afþreyingu sem hægt er að kaupa fyrir peninga, sem jafnvel kemur „t staðinn fyrir börn". Fólk eygir möguleika a þægilegu lífi og að eignast það sem hugurinn girnist með því að afsala sér frekari barn- eignum. Um val af þessu tagi var ekki að ræða áður fyrr. Stjórnvöld geta sennilega lítið aðhafst til að sporna gegn þeirri þróun sem hér er síðast getið. KJÖR BARNAFÓLKS. Stefna stjórnvalda ■ peningamálum er órækasta vísbendingin um skilningsleysi á þjóðhagslegu gildi og stöðu fólks sem er að stofna fjölskyldu og er að .eignast sín fyrstu börn. Verðtrygging lána hefur bitnað langharðast á þessum hópi- Á þetta hefur margsinnis verið bent en stjórn- völd hafa jafnoft skellt við skollaeyrum- Fjöldi ungs fólks hefur þurft að sjá á ett>r aíeigu sinni í hendur lánadrottna, og hun hefur ekki einu sinni dugað upp í skuldirnat- Til marks um þungar álögur á ungt fð^ má geta að árið 1984 nam húsnæðiskostn- aður þeirra sem voru að kaupa sína fyrstt-1 íbúð að jafnaði 2/3 af fjölskyldutekjun1 (mælt á seinasta ársfjórðungi kaupárs; sJa könnun á vegum Húsnæðisstofnunar). Pa‘ segir sig sjálft að slíkir skuldafjötrar virka letjandi á barneignir. Mörgu ungu fólki (þ.á.m. smábarnatuf eldra) svíður þó sárast að það skuli sérstak lega hafa verið tekið út úr og látið berjast vt verðbólguna. Skuldlaust fólk þarf ekki, eða er a.m.k. í sjálfsvald sett, að taka verðtryga1 lán. Ungt fólk í fjölskylduhugleiðingum a engra kosta völ. 34
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Þjóðlíf

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðlíf
https://timarit.is/publication/1099

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.