Þjóðlíf - 01.10.1987, Page 42

Þjóðlíf - 01.10.1987, Page 42
LISTIR staö þjóðfélagshneigðar er komin efahyggja og innhverf tjáning. Viðbrögð þeirra við andstæðum tilverunnar birtast í margbrotn- um og stundum torræðum myndum sem í knöppu umfangi geta geymt stórt inntak og fjölþættar skírskotanir. Hugarflug er leyst úr læðingi..." Hugarflug er leyst úr læðingi - það gætu verið einkunnarorð Nýmæla. í stað hvers- dagsmálfars, stóryrða og slangurs setjast nú í öndvegi myndir og tákn, auk þess sem málið er vandaðra og fágaðra þótt möguleikar þess séu enn kannaðir af miklum þrótti. Að þessu leyti er unnt að tala um e.k. afturhvarf til þeirra ljóða sem stundum eru kennd við modernisma eða jafnvel atómkveðskap. Allt tengist þetta því að nú beina skáldin athyglinni inn á við, inn í botnlausar dýptir hugarfylgsna. „Hafi atómskáld og aðrir módernistar dregið sig inn í skel eins og Hannes Sigfússon í Birtingi árið 1958 talaði um, þá má segja að ungu skáldin núna fari svipað að,“ segir Eysteinn í inngangi sínum. Ahuginn beinist nú að einstaklingnum, upp- lifun hans á flóknum samhengjum sem hon- um er gert að mæta og takast á við. Til þess duga skammt einföld orð. I inngangi gerir Eysteinn grein fyrir yrkis- efnum ungskáldanna og bendir á þá megin- breytingu að nú „hefur fjölgað þeim ljóðum sem fjalla um einkalíf einstaklingsins, um vandamál hans, firringuna og lífsangist, og jafnframt eykst þeim Ijóðum ásmegin sem vegsama ástina en hún var nánast sett á guð og gaddinn á 8. áratugnum". Sem sé, aftur- hvarf frá nýraunsæi til modernisma með (ný)rómantísku ívafi. Varla leikur á tveimur tungum að þessi ljóð muni í heild reynast lesendum þeirra tormeltari fæða en ljóð nýgræðinganna. Þeim verður gert að kafa í undirdjúpin með skáldunum og dvelja þar lengi meðan þeir venjast myrkrinu og eygja skímu. Þeir sem þekkja vita þó að slík ljóð launa oft betur en hin sem eru nær yfirborðinu og dagsbirtunni. Til Nýmæla hefur verið vandað. Til vals ljóðanna hefur verið vandað og inngangur Eysteins er greinargóður og skýr. Þá ber að geta þess að aftast í bókinni er upptalning ljóðabóka ungskáldanna á því tímabili sem Ijóðin spanna sem enn eykur gildi Nýmæl- anna þar sem slíkar upplýsingar liggja hreint ekki á lausu vegna þeirrar leyndar sem hvílt hefur yfir útgáfunum. Nýmœli er nauðsynleg bók. Hún er nauð- synleg öllum þeim sem vilja fylgjast með bókmenntum samtímans, hún er nauðsynleg kennurum og nemendum - og hún er nauð- synleg skáldunum sjálfum. Hér að framan var að því vikið að ástin ætti sér fleiri málsvara nú en á síðasta áratug þegar alvarleg útmálun ástarinnar þótti bera vott um ábyrgðarleysi og flótta frá veru- leikanum. Þvíerekki úrvegi að Ijúka þessum pistli með ljóði Margrétar Lóu Jónsdóllur sem fyrirverður sig greinilega ekkert: Brimgnýr Pó þú hafir enn ekki sagt mér frá kristalshöllinni geymdri í óráðnum draumnum þá finn ég þig best milli vara minna En þegar þú ákveður daginn og tímann viltu þá láta mig vita • Þórður Helgason METSÖLULISTI ÞJÓÐLÍFS Tekið skal fram til að fyrirbyggja misskiln- ing, að listi þessi er byggður á upplýsingum úr nokkrum bókaverslunum landsins og sýnir söluhæstu bækur undangengins mánaðar. Septembermánuður bar öll merki þess að skólar voru að hefja starfsemi sína. Skólabækur seldust mjög vel, eins og við var að búast, en aðrar bækur síður. í sumv um bókaverslunum var haft á orði, að venjulegt fólk forðaðist að hætta sér inn í bókabúðir þegar skólafólkið væri að birgja sig upp! Bóksalan var í heild góð í mánuð- inum, en mestamegnis af skólabókum. Af þessum sökum tókum við aðeins átta bækur á listann að þessu sinni, fjórar á íslensku og fjórar á erlendum málum. Bækur á íslensku: 1. Hús andanna. Isabel Allende. Mál og menning. 2. Orðabók menningarsjóðs. Menningar- sjóður. 3. Ég tek Manhattan. Judith Krantz. Regnbogabækur. 4. Ensk-íslensk skólaorðabók. Örn og örlygur. Bækur á erlendum málum: 1. WindmilLs of the Gods. Sidney Sheldon. 2. It. Stephen King. 3. House ofthe Spirits. Isabel Allende. 4. Red Storm Rising. Tom Clancy. Gallerísýningar Á döfinni Gallerí Borg Dagana 1.-13. október sýnir Bragi Hannesson bankastjóri olíumálverk í sal gallerísins að Pósthússtræti 9. Þetta er þriðja einkasýning Braga. Þann 15. októ- ber hefst sýning Kjartans Guðjónssonar hjá galleríinu og stendur hún til 27. októ- ber. Louisa Matthíasdóttir verður næsti gestur gallerísins og stendur sýning henn- ar yfir frá 29. október til 10. nóvember. Samtímis mun bókaforlagið Mál og menning gefa út bók um ævi og störf listakonunnar. Að lokinni þeirri sýningu tekur við sýning Jóhönnu Kristínar Y ngvadóttur og stendur sú sýning frá 12.- 24. nóvember. Gallerí Svart á hvítu Sýning Sigurðar Örlygssonar stendur til 11. október. Þann 17. október tekur við sýning á verkum Georgs Guðna og mun hún standa til 1. nóvember. Margrét Árnadóttir Auöuns sýnir málverk > galleríinu dagana 7.-22. nóvember. Kjarvalsstaðir Þann 11. október lýkur sýningu Katrínar H. Ágústsdóttur í vesturforsal og sýningu Rúríar í austursal og austurforsal. Þann 17. október mun Kristján Steingrímur sýna í vestursal og lýkur þeirri sýningu þann 1. nóvember. Á sama tíma stendur sýning Félags íslenskra gullsmiða í vestur- forsal og sýning Guðmundar Thoroddsen o.tl. í austursal. Þann 7. nóvember mun Björn Birnir sýna í vestursal, Lýður Sigurðsson í vesturforsal og Rúna Gísla- dóttir í austursal. Þessum sýningum öllum lýkur 22. nóvember. Listasafn ASÍ Þann 1.-15. nóvember verður sýning Blaðamannafélags íslands í tilefni 90 ára afmælis félagsins. Norræna húsið Þann 24. október hefst sýning á grafík- verkum Asgers Jorns í neðri sal og lýkur henni þann 16. nóvember. Þann lT- október til 1. nóvember verður sýning a verkum finnsku grafíklistakonunnar Out' Heiskanen. Nýlistasafnið Þann 2.október-18.október verður Hulg' Sigurðsson með sýningu í safninu. Þann 23. október tekur síðan við sýning Jó'11' Laxdals. 40

x

Þjóðlíf

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðlíf
https://timarit.is/publication/1099

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.