Tímarit Máls og menningar - 01.12.1948, Blaðsíða 26
104
TÍMARIT MÁLS OG MENNINGAR
Slésvík er fornt danskt land, sem aldrei má verða viðskila Dan-
mörku. Landamæri Danmerkurríkis eru við Egðufljót, en Holstein
skal í sjálfsvald sett, hvort það vilji vera í sambandi við Dan-
mörku eða halla sér að Þýzkalandi. Stjórnarskrárkröfur frjálslynda
flokksins danska fólu því ekki aðeins í sér pólitískar kröfur, heldur
einnig þjóðernislegar kröfur: Slésvík skyldi fá stjórnarskrá og ríkis-
þing sameiginleg Danmörku, þótt taka mætti tillit til sérmála her-
togadæmisins í öðrum efnum. Þetta var Egðustefna frjálslynda
flokksins danska, sem nú hlaut nafnið Þjóðfrelsisflokkur — Nation-
alliberale.
Þannig var málum komið, er konungaskipti urðu í Danmörku í
janúarmánuði 1848 og Kristján 8. andaðist, en Friðrik 7. tók við
völdum. Hinn 28. sama mánaðar gaf Friðrik 7. út Opið bréf, þar
sem einveldisstjórnin lýsir því yfir, að hún muni kveðja saman alls-
herjarstéttaþing handa Danmörku og hertogadæmunum og skuli
það hafa ákvörðunarvald um sameiginleg málefni allra ríkishlut-
anna. Samkvæmt þessari ákvörðun stjórnarinnar skyldi Slésvík hafa
hina sömu réttaraðstöðu og Holstein, og með þessari alríkisstefnu
skyldi tryggður réttur allra ríkishluta, en stéttarþingin gömlu
halda áfram í sinni gömlu mynd. Tilhögun þessi gerði eng-
um til hæfis, hvorki Dönum sjálfum né íbúum hertogadæmanna.
Danir kröfðust þess, að Slésvík yrði tengd Danmörku nánari bönd-
um, þar sem hún væri fornt danskt land að tungu og þjóðerni, en
hertogadæmin óttuðust að vera ofurliði borin á allsherjarþingi rík-
isins. Yar nú mikil ólga í liði beggja, Dana og hertogadæmanna,
unz allt fór í bjart bál, er tíðindin bárust til Danmerkur um bylt-
ingarnar í hinum þýzku ríkjum. Hinn 18. marz söfnuðust um 70
fulltrúar á stéttaþingum hertogadæmanna til fundar í Rendsborg
og samþykktu að senda nefnd á konungsfund til að krefjast frjáls-
legri stjórnarskrár og upptöku Slésvíkur í Þýzka bandalagið. Þá
var teningunum kastað.
Þegar fréttir bárust til Kaupmannahafnar af Rendsborgarfund-
inum komu leiðtogar Þjóðfrelsisflokksins saman á ritstjórnarskrif-
stofu Fædrelandets og ákváðu að kveðja borgara bæjarins til fundar
í Kasínó í Kaupmannahöfn. Kasínófundurinn var haldinn 20. marz,
en áður en hann hófst höfðu bæjarfulltrúarnir samþykkt ávarp, er