Tímarit Máls og menningar - 01.12.1948, Blaðsíða 74
152
TÍMARIT MÁLS OG MENNINGAR
Kauðleitu loðstígvélin hans skullu við steinlagða götuna. Drengur-
inn vildi óðfús heimsækja Yeru frænku. Nú var um að gera að flýta
sér.
Þegar mæðginin komu að húsi Pavlovski-hjónanna, brá þeim í
brún. A veginum framan við húsið hafði verið kveikt bál, og kring-
um það sátu þýzkir hermenn og ornuðu sér. Hliðinu var lokað
með slagbrandi. Það var auðséð á öllu, að hér fór fram húsrann-
sókn. Allir þeir, sem ætluðu inn í húsið eða út úr því, urðu að sýna
skilríki sín. Móðirin lét sem hún væri að flýta sér. Hún gekk hratt
fram hjá hliðinu. Enginn tók eftir henni.
Nú fór drengurinn aftur að skjálfa. Móðirin tók hann í fang sér
og hljóp við fót eftir götunni, sem lögð var blágráum hellusteinum.
Enn á ný hóf hún stefnulausa för sína um götur borgarinnar. Henni
fannst reyndar, að það væri all-varhugavert að hringsóla alltaf á
sömu slóðum. Slíkt gæti vakið óþarfa athygli. Þá datt henni snjall-
ræði í hug. Hún ætlaði að eyða þrem til fjórum stundum í ein-
hverju kvikmyndahúsinu. Sýningar byrjuðu snemma, því að dauða-
refsing lá við, ef menn voru á ferli á götunum eftir klukkan átta á
kvöldin.
Móðirin fann til klígju og svima, er hún kom inn í sýningarsal-
inn. Loftið var kæfandi og þrungið megnri fýlu. Salurinn var þétt-
skipaður hermönnum og borgurum, sem auðsjáanlega höfðu farið
þangað inn utan af götunni til þess að hlýja sér. Móðirin fékk sér
sæti svo lítið bar á og losaði um sjalið á hálsi drengsins. Hann hall-
aði sér að brjósti hennar og sofnaði vært.
Tvær myndir voru sýndar, án þess að móðirin gerði sér fulla
grein fyrir efni þeirra. Fyrri myndin var víst fréttamynd frá víg-
stöðvunum, og á eftir henni var sýnd einhvers konar gamanmynd,
en móðirin átti erfitt með að skilja, í hverju það gaman var fólgið.
Ógnarhraði og ringulreið var á allri viðburðarás myndarinnar. A
tjaldinu sást yndisleg, Ijóshærð telpa, sem hallaði höfðinu að brjósti
hávaxins, höfuðlauss manns, og þau sungu saman eitt lag með
hljómsveitarundirleik. Rétt á eftir kom sama telpan akandi í litlum
kappakstursbíl. Bíllinn flaug áfram yfir hvern sprengj ugíginn á
fætur öðrum, hátt, skerandi hljóð kvað við, eins og verið væri að
rífa þakjárn í stórar lengjur, moldarkögglarnir þeyttust hátt í loft