Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.11.1985, Blaðsíða 110

Tímarit Máls og menningar - 01.11.1985, Blaðsíða 110
Tímarit Máls og menningar Séu sýningar Alþýðuleikhússins eingöngu skipaðar konum sem stendur, þá gefur EGG-leikhúsið mótvægi, þar hafa fram að þessu aðeins karlar verið á ferð og þó fremur einn en fleiri. EGG-leikhúsið er, eins og flestum mun kunnugt, barn Viðars Eggertssonar leikara, hann hefur verið þetta leikhús, þó að nú síðast hafi þar fleiri komið við sögu. Leikrit Arna Ibsen sem hann stýrði sjálfur, um skáldin Williams og Pound var merkur listviðburður, glæsilegur árangur tveggja sem tilbúnir eru að leggja á sig ómælda vinnu til að koma list sinni á framfæri. Bæði þessi leikhús ætla, trúi ég, að láta gæðin sitja í fyrirrúmi fyrir kynjaaðskilnaðinum, og á þessu stigi á þroskaferli þeirra er aðeins eitt að segja: ÁFRAM! Hitt-leikhúsið sýndi Litlu hryllingsbúbina og sú sýning var sökksess í orðsins fyllstu merkingu, enda í alla staði vel gerð, mikið í hana lagt og fagmannlega unnið. En skemmtilegra hefði verið að sjá meira í uppsetning- unni frá leikstjórunum sjálfum. Því miður virtust íslensku leikararnir vera settir um of inn í sýningu að útlenskri fyrirmynd, svo mjög að hreyfingar, uppstillingar og ýmis smáatriði virtust eftirmynd einhvers annars. Revíuleikhúsið er og vill vera skemmtileikhús, gamanleikurinn er viðfangs- efni þess og barnaleikrit sýnir það líka. Yngstu áhorfendurnir hafa löngum farið varhluta af leiksýningum — en þeir eru óumdeilanlega þakklátastir áhorfenda. Því er gott að auka fjölbreytni og möguleika barna til að fara í leikhús og eru ævintýri H.C. Andersen ekki síst til þess fallin að skemmta börnum. Gamanleikurinn Grœna. lyftan er heldur innantómt leikrit og margir betri og bitastæðari farsar til, en það má að sjálfsögðu skemmta sér þokkalega eina kvöldstund við að horfa á það. Leikhópurinn Svart og Sykurlaust er blanda áhugaleikara og atvinnuleikara, en menntaðir leikarar eru burðarás hópsins. Leikhópurinn er feikna skemmtilegt vandræðabarn í íslensku leikhúsi — það er hvergi hægt að skipa honum í flokk. Aðallega hefur Svart og Sykurlaust starfað sem götuleikhús, virkjað með sér hópa af unglingum og sett upp viðamiklar, litríkar og skrautlegar sýningar hist og her; notað risastórar grímur og stultur. Á Listahátíð, 17. júní og við önnur tækifæri hefur leikhúsið óneitanlega gefið annars oft stöðnuðum útihátíðum nýstárlegan og spennandi svip, meðlimir leikhússins hafa þróað með sér tækni sem fram að því var óþekkt hérlendis og komið með nýtt blóð og nýtt andlit inn á leikhúsmynd landsmanna. Af sjálfu leiðir að hópur sem þessi getur svo til eingöngu starfað á sumrin. 508
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116
Blaðsíða 117
Blaðsíða 118
Blaðsíða 119
Blaðsíða 120
Blaðsíða 121
Blaðsíða 122
Blaðsíða 123
Blaðsíða 124
Blaðsíða 125
Blaðsíða 126
Blaðsíða 127
Blaðsíða 128
Blaðsíða 129
Blaðsíða 130
Blaðsíða 131
Blaðsíða 132

x

Tímarit Máls og menningar

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.