Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.05.1987, Síða 38

Tímarit Máls og menningar - 01.05.1987, Síða 38
Tímarit Mdls og menningar vekjunni bresku, „terror tales“ eins og „Leyndardómum Udolfokastala“ eftir Anne Rathcliff, á sögum eftir Maturin og Lewis, eða „roman-feuil- leton“ frönskum — Leyndardómum Parísarborgar eftir Eugene Sue, Endur- minningum djöfulsins eftir Frederic Soulie og spennusögum Pauls de Cock. Og það var skemmra en margir ætla á milli þessara bókmennta í hugum manna og í reynd og svo sögulegra skáldsagna Walters Scotts og doðranta Victors Hugo og sjálfs Balzacs. Mætti kannski segja sem svo að meira flakk hafi þá verið stundað á milli hámenningar og lágmenningar en síðar varð, þegar hrollvekjan og morðgátan voru orðnar að sérhæfðri fjöldaframleiðslu, sem lifir um marga milliliði sníkjulífi á þeim reyfurum og ævintýrasögum, sem menn vita að Dostojevskí las í æsku og var mjög hrifinn af. I þessum sögum fann hann saklausa fegurð í bráðum háska, hann fann þar hið háskalega örlagakvendi sem ögrar körlum frá viti og ráði, hann fann hinn fagra og heillandi freistara, sem á ættir að rekja til Satans sjálfs, hins fallna engils. Hann fann þar skírlífi skækjunnar, háskalega töfra kvalalostans og margt fleira sem gengur aftur í flestum hans sögum. Endurminningar andskotans eftir Soulié hafa sett sinn svip á djöfulinn sem Ivan Karamazov ræðir við áður en hann hrekkur upp af standinum. Hjá Eugene Sue í Leyndardómum Parísarborgar, rekst hann á Rúdolf, dularfullan og fríðan aðalsmann, sem er á spilltu flakki meðal úrþvætta og öreiga stórborgarinnar — og flytur þessar áráttur yfir á Stavrogín í Djöflunum, til þess m.a. að hefna sín á rússneskum róttæklingum. Svo mætti lengi áfram telja. Hugsum okkar sögu sem segir frá þessu hér: Illmenni af göfugum ættum, djöfullega fagur, dregur blíða og saklausa stúlku á tálar, hirðir eigur hennar og lætur hana lönd og leið. Stúlkan, sem elskhuginn hefur yfirgefið og strangur faðir rekið frá sér, sekkur í fátækt og örbirgð, veikist af berklum, missir vitið og þvælist í ráðleysi um götur stórborgarinnar og biður um ölmusu fyrir sig og barn sitt. Rétt áður en hún deyr úr hungr: og sorg ætlar faðir hennar að sættast við hana, en kemur of seint, hann hittir fyrir lík sem rétt er byrjað að kólna. Ný saga hefst af dóttur hennar, full með skelfilegar ofsóknir og undursamlega heppni — henni er misþyrmt, hún er seld í vændishús, en henni er bjargað fyrir kraftaverk og undir lokin kemur í ljós að hún er í rauninni dóttir frægs fursta, sem þar að auki var giftur móður hennar sálugu! Þetta er ekki Leyndardómar Parísarborgar, þetta er þráðurinn í skáld- sögunni Hin niðurlægðu og auðmýktu, sem Dostojevskí skrifaði um 1860. Hún er að sönnu ein lakasta saga hins rússneska jöfurs. En sjálf þessi endursögn minnir rækilega á það, hve ríkan þátt í aðferð Dostojevskís áttu þau meðöl, sem reyfarinn hefur stutt sig við, fyrr og síðar. Dostojevskí notaði þau til að verða ekki leiðinlegur, þá synd mátti skáldsagnahöfundur 164
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132
Síða 133
Síða 134
Síða 135
Síða 136
Síða 137
Síða 138
Síða 139
Síða 140

x

Tímarit Máls og menningar

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.