Tímarit Máls og menningar - 01.05.1987, Blaðsíða 81
Irskar nútímabókmenntir
My grandfather cut more turf in a day
Than any other man on Toner’s bog.
Once I carried him milk in a bottle
Corked sloppily with paper. He straightened up
To drink it, then fell to right away
Nicking and slicing neatly, heaving sods
Over his shoulder, going down and down
For the good turf. Digging.
The cold smell of potato mould, the squelch and slap
of soggy peat, the curt cuts of an edge
Through living roots awaken in my head.
But I’ve no spade to follow men like them.
Between my finger and my thumb
The squat pen rests.
I’ll dig with it.
í seinni bókum sínum hefur Heaney brotið til mergjar sjálfan sig og eigin
hefðir af æ dýpra innsæi. Uppruni hans hefur smámsaman öðlast víðsæi og
styrk goðsagnarinnar. Heildarhugmyndir, svosem móðerni jarðar sem er
löðrandi í blóði og faðerni þeirra sem plægja hana með ofbeldi eða ástúð,
eru orðnar annað eðli ljóða hans. Siðgæðishugmyndir kaþólikka og mót-
mælenda, baráttan fyrir sjálfsforræði og sjálfsþroska eru lífrænn partur af
uppruna hans og bylgjast um ljóð hans af undraverðu áreynsluleysi innan-
um gamalkunn tákn úr daglegu lífi. Einkalegar athuganir verða athuganir
heillar kynslóðar, heillar þjóðar, heillar aldar. Astin og bókmenntirnar
sjálfar verða von mannkyns, karlmannlegur kraftur og kvenleg blíða renna
saman, og leyndardómur þeirra verður andvægi við hrylling samtímans.
„The Tollund Man“ og önnur skyld ljóð byggja á sögnum um víkinga og
uppgötvunum fornleifarannsókna sem verða leiðarljós í könnun skáldsins á
sjálfum sér og samtímanum, dauðanum og ofbeldinu; uppgröftur fornleifa
skilar stundum furðulegum ávöxtum og birtir fróðlega mynd af réttlæti,
lögum og reglu á fyrri tímaskeiðum.
„Field Mork“ (1979) sagði skilið við goðsagnir og gerði opinskárri og
skuldbundnari reikningsskil við líðandi stund: bein könnun á grimmdar-
verkunum á Norður-Irlandi mergsaug ljóðin í vissum skilningi, en gerði
þau spámannlegri, beinskeyttari og djarfari, tillitslausari varðandi opinbera
ímynd skáldsins. Og hann fjallar af miklu öryggi um það sem er nákomið,
kunnuglegt og hversdagslegt. „The Strand at Lough Beg“ er persónulegt
ljóð og áhrifasterkt, biðlar til anda Dantes um fræðslu og styrk. í síðustu
207