Tímarit Máls og menningar - 01.09.1987, Blaðsíða 131
Fengur fyrir bókmenntakennsluna
Gegnum Ijóömúrinn - safn Ijóða á 20. öld
Aðgengilegt Ijóðasafn til að nota við kennslu í nútímaljóðlist. f safninu
eiga 86 höfundar liðlega 200 Ijóð, hið elsta erfrá 1910 en þau yngstu
frá því í ár. Ritstjórarnir, Ingi Bogi Bogason, Sigurður Svavarsson og
Vigdís Grímsdóttir, hafa miðað val sitt við að Ijóðin höfði til ungra les-
enda og sýni jafnframt þróun nútímaljóðsins eins glöggt og kostur
er.
Napóleon Bónaparti og tólf aðrar smásögur 1880-1960
Sögur eftir Gest Pálsson, Kristínu Sigfúsdóttur, Guðmund G. Haga-
lín, Pórberg Pórðarson, Þóri Bergsson, Halldór Laxness, Halldór
Stefánsson, Ragnheiði Jónsdóttur, Halldóru B. Björnsson, Ólaf Jó-
hann Sigurðsson, Indriða G. Þorsteinsson, Geir Kristjánsson og
Thor Vilhjálmsson.
Guðmundur Andri Thorsson valdi sögurnar og ritar inngang um
helstu einkenni smásagna.
Sýnisbók íslenskra þjóðfræða
í bókinni eru allir helstu flokkar þjóðfræða kynntir: ævintýri, trölla-
sögur, huldufólkssögur, útilegumannasögur, draugasögur og
galdrasögur. Auk þess eru dæmi um dansa, viðlög, helgisögur,
kímnisögur, bænir og hjátrú. Bókinni er ætlað að auka veg þessara
spennandi en vanræktu alþýðumennta í skólakerfinu.
Guðrún Bjartmarsdóttir valdi efnið í sýnisbókina og ritar ítarlegan
mngang um söfnun og varðveislu þjóðfræða, tilurð sagnanna, hlut-
verk þeirra og hugmyndafræði.
Tristrams saga
Frægasta riddarasaga allra tíma er nú loksins fáanleg í aðgengilegri
útgáfu, í ritröðinni Sígildar uglur við hliðina á Snorra-Eddu og Völs-
ungasögu.
Vésteinn Ólason annaðist útgáfuna.
Mál og menning