Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.09.1994, Page 49

Tímarit Máls og menningar - 01.09.1994, Page 49
Aftanmálsgreinar 1. Finnur Sigmundsson, bls. 10. Gísli Konráðsson taldi Níels þó fæddan í Hafhar- firði, eins og ff am kemur í sömu heimild. — Þar sem síðutölur koma fyrir í sviga í ritgerðinni er vísað til þessarar bókar Finns nema annað komi fram. 2. August Heinrich Julius Lafontaine (1752-1829); Níels nefnir skáldsögu hans Rúdolph og Júlía eða Hjartans eftirmynd (á frummálinu Rudolph und Julie: ein gemalde menschlichen Herzens, Berlín 1801-1802, 2 bindi; kom út sömu ár á dönsku). Kvæðið sem Níels byggir á sögunni heitir „Þær sundurlyndu reisusyst- ur, Lukkan og Dygðin.“ — Sigurður Breiðfjörð orti rímur út af sögu sama höfundar um Aristómenes og Gorgus frá árinu 1796 (á dönsku 1800). 3. Nafnið Ninon kann að eiga rætur að rekja til sögu Lafontaines um Henríettu Bellman (Henriette Bellman, ein gemalde schöner Herzen (Berlín 1802), því þar heitir einn kaflinn einmitt Ninon og er nafnið sagt vísa til þekktrar franskrar kvenpersónu. Sú kona var Ninon de Lenclos (1620-1705), fræg léttúðardrós og gáfukona og meðal vina hennar voru margir af frægustu mönnum samtíðar- innar, svo sem Richelieu og Moliére. 4. Sbr. Páll Eggert bls. 91, Hannes Pétursson bls. 168 og Steingímur bls. 227. 5. Jón Ólafsson ritstjóri segir að Níels hafi samið fjóra ritlinga: Um forlög ogfrívilja, Kall ogskyldur rithöfunda, Vina-málog Ánœgju og rósemi, en sjálfur hafði Jón þó ekki séð neina þessara ritgerða. Ritgerðin um Kall og skyldur rithöfunda gæti annaðhvort verið formálinn, sem hér er vitnað í, eða Athugasemdir um skáldskaparmenntina — ef það er þá ekld eitthvert enn annað verk um svipað efni. 6. Sbr. Árni Sigurjónsson 1991, 176-177 (kafli um Dante) og 184. í sama riti (bls. 33-36) má lesa um skilning Platons á skáldskap sem lygi. 7. Aristóteles greinir á milli Hómers, sem hann telur raunverulegt skáld, og heim- spekingsins EmpedóJdesar sem skrifaði í bundnu máli og var náttúrufræðingur en ekki skáld. Eins nefnir hann ritgerðir um læknisfræði og náttúrufræði sem geti verið í bundnu máli, en það er ekld hátturinn heldur eftirlíkingin sem að dómi hans gerir skáldið. 8. Skráningu í handritaskrá Landsbókasafnins og stærð handritsins ber ekki sam- an; skráin segir ritgerðina vera 48 blaðsíður, en eins og hún liggur fyrir nú er hún aðeins 43 síður (10+33). Niðurlagið kann að vera týnt. 9. Itarlegt yfirlit um rímnahætti er að finna í hinu merka háttatali Sveinbjarnar Beinteinssonar, og eru þar taldir flestir þeirra hátta sem Níels nefnir — þó sé ég þar ekki dellingshátt, sigurðarbrag og hrínanda nefnda þar á nafn. 10. Sama viðhorf kemur ffam hjá Platoni í samræðunni Ion, þar sem Sókrates gerir góðlátlegt grín að kvæðamanninum sem hún er kölluð eftir. — Síðutölur í hornklofum í því sem hér fer á eftir eiga við handrit Níelsar. 11. Sbr. Árni Sigurjónsson, bls. 71 (sbr. Brútus Ciceros, 25, 98). Sömu rök eru síendurtekin hjá endurreisnarhöfundum. 12. Trúlegt má telja að Níels sæki hugtakið „leiðarsteinn" í kvæði Eggerts Ólafssonar, sem heitir „Leiðar-steinn góðra farmanna í hafvillum heims þessa“ (Kvœði, bls. 56-62). 13. Gorgías segir: „Né heldur, það veit Seifur, bæri að leggja hatur á íþróttakennarana og herskólakennarana og reka þá í útlegð, þótt einhver ungur maður, sem gengi í glímuskóla og væri kominn í góða líkamsþjálfun og orðinn snjall hnefaleikari, tæki þá að berja föður sinn og móður sína eða aðra vini og vandamenn.“ (456, bls. 60 í ísl. útg.). 14. Mælskulistin virðist allfjarri skáldskap í nútímanum, en að fornu voru þessar TMM 1994:3 47
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.