Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.09.1994, Side 111

Tímarit Máls og menningar - 01.09.1994, Side 111
hefur verið tekin að fjalla um það sem ritað er á norrænu, án þess að reyna að draga það í dilka eftir ritunarstöðum eða uppruna höfunda, þegar það er óvíst. Þess vegna saknar maður þess að Kon- ungsskuggsjá skuli ekki vera gert hærra undir höfði: hún er merkasta heim- spekiritið á norræna tungu á miðöldum, og þótt hún sé sannanlega norsk, ætti það ekki að vega þungt á móti því að hún er hluti af bókmenntahefð á tungumáli sem íslendingar skilja mætavel ennþá en Norðmenn alls ekki. Hún sýnir betur en flest annað hvað íbúar norðurslóða voru skapandi á þessum tíma. Kúíbein og kyngreining Um þá galla sem sprottnir eru beint upp úr reglum þeirrar bókmenntagreinar sem bókmenntasögur mynda er varla ástæða til að fjölyrða, þar sem þeim er í hóf stillt og væri sennilega erfiðara að hafa minna af þeim. Þó skal bent á ein- stök atriði. Við samningu bókmennta- sögu verður að styðjast við frumrann- sóknir ýmis konar og þá sérstakiega við bækur um afmörkuð efni eins og áður var minnst á. En sú mynd sem þær gefa af bókmenntum fýrri tíma er jafnan gloppótt, þar sem rannsóknirnar spanna gjarnan þröng svið hver um sig og eru gerðar á mismunandi tímum og á mis- munandi forsendum. Auk þess tengja þær oft efhisatriðin öðru vísi saman en hægt er að gera í bókmenntasögu. Engar nýjar og auknar rannsóknir geta í raun- inni bætt úr þessu: þótt til væru afmörk- uð rit um hvert einasta eddukvæði í sama gæðaflokki og „Völuspá" Nordals væri ekki hægt að fá úr þeim bók- menntasögu eddukvæðanna með því að tengja þau saman eins og vagna í lest. Vandinn verður vitanlega enn meiri, þegar nýjar rannsóknir á takmörkuðu sviði benda til þess að taka þurfi til end- urskoðunar ýmsar fýrri hugmyndir um heila bókmenntagrein, því til slíks er lít- ið svigrúm í yfirlitsriti. Þessir gallar koma mest fram, þegar verið er að fjalla um svið, eins og eddu- kvæði eða íslendingasögur, þar sem nauðsynlegt er að gera hverju verki ein- hver skil, og verður varla hjá því komist að þar verði umfjöllunin brotakennd: mætti finna um það dæmi í þessu verki. Ef litið er á bókmenntasögu út frá því hlutverki sem hún á að gegna, skiptir þetta þó ekki ýkja miklu máli. Því fer líka fjarri að það sé jafnan til bóta að reyna að taka tillit til nýrra viðhorfa, sem fá kannske mikinn hljómgrunn um stund en eru þó á hæpnum rökum reist, og verður að leggja á það áherslu. Einu sinni rakst ég á teikningu, þar sem gat að líta bókabúð með veggi þakta hillum með bókum um ýmisleg efni og væntanlega lesendur þeirra fýrir ffam- an: þar var á ferðinni kórónaður kon- ungur að rýna í sagnfræðirit, skáld ríðandi á Pegasó að glugga í ljóðabækur, innbrotsþjófur með grímu, kúbein og poka á baki að skoða glæpasögur og geimvera að fletta vísindaskáldsögum. Ég gat ekki gert að því að mér kom þessi mynd í hug, þegar ég rakst á setningar eins og þessar: „Mjög sennilegt er að þetta kvæði sé ort af konu og einkum til flutnings í dyngjum kvenna“ (1,154), „kvæðið er á allan hátt hið besta fallið til að kveða fyrir herkonung" (1,163), og þar fram eftir götunum. Þar sem fýrir því eru allgóðar heimildir að gamlar konur eigi til að skrifa glæpasögur og innbrotsþjófar að yrkja ljóð, er augljóst að það er í meira lagi erfið list og stund- um fánýt að álykta ffá efni og stíl kvæða eða sagna til stéttar eða kynferðis skáld- anna. En mann grunar reyndar að setn- ingar þær sem hér var vitnað í séu einhvers konar reimleikar og sé hér enn á ferli vofa „munnlegu kenningarinnar“ TMM 1994:3 109
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124

x

Tímarit Máls og menningar

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.