Tímarit Máls og menningar


Tímarit Máls og menningar - 01.09.1994, Page 113

Tímarit Máls og menningar - 01.09.1994, Page 113
ingar allt í einu mikinn og varanlegan áhuga á þessu verki um úrelta hirðsiði og riddaramennsku, ef marka má vitn- isburð handrita. Reyndar verð ég að skjóta því inn að mér fyndist það þarf- legri sýsla að athuga þennan vitnisburð til að fá einhverja vitneskju um vinsæld- ir fornra bókmennta heldur en reyna að kyngreina nafnlausa höfunda. En kann- ske er þetta frekar kafli úr hugarfarssögu en bókmenntasögu. Voru ástimar saklausar? Böðvar Guðmundsson hefur fengið það erfiða og vanþakkláta starf að skrifa um bókmenntir milli 1550 og 1750, og er sá kafli hinn læsilegasti, en það kemur alls staðar fram hve gífurlega þessi hluti ís- lenskra bókmennta hefur verið van- ræktur: mestur hluti verkanna liggur í handritum og hefur ekki verið gefinn út, rannsóknir eru af skornum skammti og flest er óljóst—t.d. hvort verkin eru eign- uð réttum höfundi eða ekki. Má mikið vera ef ekki væri hægt að grafa einhvers staðar upp gleymda fjársjóði. Stundum eru íslensk kvæði borin saman við hlið- stæð verk erlend, og er það gagnleg ný- lunda: greinilegt er að íslensk Ijóðagerð á 17. öld var í barokk-stíl líkt og tíðkaðist í nágrannalöndum. En ég hnaut um eft- irfarandi setningu: „Hin fornu borgar- skáld Grikkja og Rómverja lofsungu einfalt sældarlíf sveitanna og saklausar smalaástir“ (11,468). Það skáld sem lang- mestan þátt átti í að skapa hjarðljóða- hefð á Vesturlöndum var vafalaust Virgill. Þar sem hann ólst upp með ann- an fótinn uppi í sveit og dvaldist senni- lega löngum fjarri borgarysnum, er hæpið að kalla hann „borgarskáld“, sveitalífið sem hann lýsir í „Búnaðar- bálki“ sínum er heldur ekkert sældarlíf og smalaástirnar allt annað en saklausar. En hitt er svo annað mál, að vel má vera að verk hans hafi komið lesendum á 17. og 18. öld fyrir sjónir nokkuð svipað og ofangreind setning segir. Og það leiðir hugann að því að fjölmargir rithöfundar þessa barokk-tíma á Islandi voru gegn- sýrðir af latneskum og jafnvel grískum bókmenntum, í verkum sínum voru þeir undir sterkum áhrifum af þessum fornritum og þeir áttu það til að skrifa og yrkja á latínu, eins og félagar þeirra gerðu annars staðar í álfunni. Svo öm- urlega vill til að þessi sterka hefð í Evr- ópu er nú nánast gleymd, jafnvel fræðimenn eru ekki lengur læsir á lat- ínubækur og mörgum bókmenntafræð- ingum sem fást við skýringar verka á þjóðtungunum virðist vera um megn að ráða fram úr einföldum tilvísunum í fornrit, þó svo þær séu þýddar. En við slíkt má ekki una, og á íslandi er greini- lega mikið verk að vinna við að rannsaka áhrif fornmennta á barokk-bókmenntir og hlut íslendinga í latneskri hefð þessa tímabils. Og þá skiptir ekki minnstu máli hvernig þeir skynjuðu rætur þess- arar hefðar. Islensk bókmenntasaga I—II er ákaf- lega vel úr garði gerð, með miklum fjölda mynda sem eru vel valdar og lífga upp á efnið. Höfundar hafa tekið þá stefnu að hafa allar tilvitnanir í fornald- arbókmenntir með nútímastafsetningu — án þess þó að gera það að sáluhjálp- aratriði með stórorðum yfirlýsingum á annarri hverri síðu eins og sumir — en þó þannig að fornar beygingarendingar eru yfirleitt látnar halda sér. Má það telj- ast mjög viðunandi lausn, en af því leiðir samt einstaka sinnum klaufalegt mis- ræmi þegar verið er að vitna í ljóð bæði frá miðöldum og síðar, t.d.: „Sumir prestar hófust hér á hofgarðana ólærðir...“ (11,444), en sem betur fer er þó sveigjanleiki stafsetningarinnar oftast hafður meiri. Einar Már Jónsson TMM 1994:3 111
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124

x

Tímarit Máls og menningar

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit Máls og menningar
https://timarit.is/publication/1109

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.