Breiðholtsblaðið - 01.04.2008, Side 8
8 Breiðholtsblaðið APRÍL 2008
“Ég flutti í Breiðholtið þegar
ég var 15 ára 1976. Ég hóf einnig
minn búskap sem ungur maður í
verkamannabústöðunum í Efra
Breiðholtinu. Ég hef reyndar
búið út um alla borg ef svo má
segja en er nú búsettur í Selja-
hverfinu. Ég kann mjög vel við
mig þar og er ánægður með að
vera kominn aftur á þessar slóð-
ir. Það er stutt fyrir mig að fara í
Elliðaárdalinn og líka stutt í hest-
húsið því ég get labbað þangað.
Ég get ekki hugsað mér að búa
annars staðar en þar sem ég er.
Áhugamál mín snúa einkum að
útivist og hestamennsku og því
er stutt fyrir mig að fara að hver-
ju þeirra sem ég vil sinna,” segir
Óskar Bergsson, borarfulltrúi í
samtali við Breiðholsblaðið.
Göngustígar og sam-
göngumiðstöð í Mjódd
Breiðholtið hefur verið svo-
lítið á milli tannanna á fólki að
undanförnu og rætt hefur verið
um að lítið hafi verið gert í því
hverfi af hálfu borgarinnar á und-
anförnum árum. Breiðholtið hafi
bara byggst og gleymst. Hvernig
sérð þú fyrir þér næstu skref í
Breiðholtinu sem íbúi í hverfinu,
áhugamaður um borgarmál og
borgarfulltrúi? “Áhugi íbúanna í
Breiðholti á umhverfi sínu kom
snemma fram og sést einkar vel
á því hversu flestir húseigendur
hafa haldið eignum sínum vel
við. Ég vona að þessi hugsjón
lifi áfram og fólk verði vel með-
vitað um hversu mikilvægt er
að huga vel að eigum sínum og
því umhverfi sem það býr við. Á
sama hátt er mikilvægt að sveit-
arfélagið, í þessu tilviki Reykjavík-
urborg, vinni með fólkinu og leggi
sitt af mörkum til þess að lagfæra
umhverfið og fegra. Ég held að
það sem nú liggi fyrir sé að endur-
gera alla göngustíga í Breiðholts-
hverfunum. Einnig verði hugað
að endurbyggingu ákveðna gatna
sem ekki hafi notið nægjanlegs
viðhalds eins og t.d. Seljabrautin
og einnig að almenningssamgöng-
urnar verið efldar og þá ekkert
síður innan hverfisins en utan.
Ég held að nú sé orðið nauðsyn-
legt bæði fyrir Breiðholtsbúa og
raunar Reykvíkinga og íbúa höfuð-
borgarsvæðisins að byggð verði
samgöngumiðstöð í Mjóddinni.
Mér finnst tími kominn til þess að
samgöngum innan Breiðholtsins
sé þannig háttað að fólk geti kom-
ið úr hverfinu niður í Mjóddina
hvort sem er á eigin bílum eða
með skipulögðum almenningssam-
göngum innan hverfisins og síðan
átt kost á ferðum þaðan niður í
bæ eða til annarra staða. Þetta
myndi bæði draga úr umferð og
einnig styrkja Mjóddina sem versl-
unarmiðstöð og þjónustukjarna
eða einskonar miðbæ Breiðholts-
ins. Þetta er sú framtíðarsýn sem
ég hef fyrir Breiðholtið auk þess
sem íþróttafélögin í Breiðholti
hafa setið eftir um ýmsar fram-
kvæmdir. Það er mikið hagsmuna-
mál fyrir Breiðholtsbúa að búið
verði vel bæði að Leikni og ÍR og
þegar lokið verður við þær fram-
kvæmdir sem stefnt er að þá tel
ég að það verði mikil lyftistöng
fyrir starfsemi beggja félagana og
allt Breiðholtið.”
Þjónustuíbúðir og efling
Mjóddarinnar
“Breiðholtið er að mestu byggt
en þó eru nokkrar framkvæmd-
ir fyrirhugaðar,” heldur Óskar
áfram. “Þar er um að ræða bygg-
ingu þjónustuíbúða fyrir aldraða
annars vegar í Mjóddinni en hins
vegar á svæðinu á milli Gerðu-
bergs og Fella- og Hólakirkju.
Bæði þessi mál eru komin á fullt
skrið hvað undirbúning varðar
og engin ástaða er til annars en
að ætla að þeim verði unnið eins
og stefnt hefur verið að. Nú hefur
verið samþykkt stækkun til suð-
urs á byggingu Sambíóanna við
Álfabakka og einnig þarf að leysa
ákveðinn bílastæðavanda sem far-
inn er að gera vart við sig í Mjódd-
inni og hugsanlega að koma á
betri nýtingu bílastæðanna þar
sem að starfsemi bíósins fer að
miklu leyti fram á öðrum tímum
heldur en verslananna og þjón-
ustuaðilanna þar. Eins og allir vita
þá hafa starfað þrír meirihlutar
í borgarstjórn Reykjavíkur frá
síðustu sveitarstjórnarkosning-
um. Fyrstu tveir meirihlutarnir
höfðu báðir ýmsar framkvæmdir
á prjónunum sem snertu Breið-
holtið. Góðar væntingar og vinnu-
semi einkenndu þá báða. Síðan
var þriðji meirihlutinn myndaður
í raun ekki eftir neinn pólitískan
ágreining og enn hefur ekki reynt
fyllilega á fyrir hvað hann stendur
þegar kemur að framkvæmdum.
Ég er búinn að vasast í borgar-
málunum um nokkurn tíma eða
frá 1994 með hléum þar sem ég
var að sinna öðru og þar á meðal
námi á árunum frá 2002 til 2006.
Ég hef verið varaborgarfulltrúi á
þessu kjörtímabili og átt aðild að
tveimur meirihlutum sem slíkur
en sama daginn og ég varð borg-
arfulltrúi þá lenti ég í minnihluta.
Því er spurning um hvort ég hef
haft meiri áhrif sem varaborgar-
fulltrúi í meirihluta eða sem borg-
arfulltrúi í minnihluta. Þetta er
auðvitað nýtt hlutverk fyrir mig
að vera í þessari borgarstjórn nú
sem aðalfulltrúi og einnig að vera
í minnihluta í fyrsta skipti. Þetta
nýja hlutverk felst í því að veita
þessum nýja meirihluta aðhald
og sýna málefnalega stjórnarand-
stöðu.
Flugvöllurinn út á grynn-
ingarnar eða áfram þar
sem hann er
Flugvallarmálið hefur verið til
umræðu að undanförnu og er
umdeilt í borarstjórninni. Ósk-
ar bendir á að framsóknarmenn
hafi lengi talað um mögulega
flugvallargerð á Lönguskerjum.
“Þetta er gömul hugmynd sem
Trausti Valsson, arkitekt og skipu-
lagafræðingur setti fram fyrstur
manna. Guðmundur G. Þórarins-
son tók þessa hugmynd upp fyrir
um 35 árum og Steingrímur Her-
mannsson íhugaði hana einnig af
alvöru. Ég held að ef farið hefði
verið í skipulagsvinnu á þeim
tíma með langtímaverkefni í huga
þá væri þessi flugvöllur kominn
og menn þyrftu ekki að takast á
um framtíð Reykjavíkurflugvallar
í Vatnsmýrinni. Nægur uppgröft-
ur hefði lagst til á undanförnum
árum til þess að mynda þær land-
fyllingar sem til þarf. Við höfum
viljað halda þessari hugmynd
opinni vegna þess að við skiljum
alveg þau sjónarmið að byggja
upp borgarhluta í Vatnsmýrinni
þar sem flugvöllurinn er nú. En
náist ekki samkomulag um að
þróa flugvöllinn með einhverjum
hætti út á grynningarnar í Skerja-
firði þá er afstaða okkur sú að
hann verði áfram á þeim stað sem
hann er og hefur verið. Ég sé þá
framtíð ekki fyrir mér að Reykja-
vík verði algerlega án flugvallar
og allt flug flutt út á Keflavíkurflug-
völl. Ég held að hugmyndin um
að færa flugvöllinn að einhverju
leyti að minnsta kosti út á grynn-
ingarnar sé vel framkvæmanleg
og þá ekki síst í ljósi þess hvern-
ig Reykjavíkurhöfn hefur fengið
að þróast með sínum hætti á
norðanverðu nesinu. Höfuðborg-
in er samgöngumiðstöð eins og
höfuðborgir eru jafnan og Reykja-
víkurflugvöllur er þannig ein af
lífæðum hennar hvort sem um
innanlandsflug eða millilandasam-
göngur er að ræða. Þess vegna
er nauðsynlegt fyrir borgina að
halda flugsamgöngum hvort sem
notast verður við núverandi flug-
völl með óbreyttu sniði eða að
hann verður færður að einhverju
eða öllu leyti út í Skerjafjörðinn
til þess að skapa byggingarými
og möguleika á nýju borgarhverfi
sem vissulega getur verið hag-
stætt.”
Stofnun eignasjóðsins
var stórt og mikilvægt
skref
Nú eru ákveðnar blikur á lofti
í efnahagsmálum og hugsanlega
einhver samdráttur framundan í
atvinnulífinu. Getur Reykjavíkur-
borg eða sveitarfélögin almennt
komið til móts við atvinnulífið t.d.
með auknum framkvæmdum? “Á
tímapunkti sem þessum tel ég mik-
ilvægt að aðili eins og Reykjavíkur-
borg stígi fram og noti þann tíma
til þess að auka við framkvæmdir
sínar. Ég álít að ávinningur geti fal-
ist í því fyrir borgina að fara í stór
verkefni við slíkar aðstæður. Þær
auka við atvinnustigið og minni
hætta er á að þær skapi óeðlilega
þenslu auk þess sem auðveldara
ætti að vera að fá hagstæð tilboð
í verk en það hefur reynst erfitt
í því ástandi sem verið hefur að
undanförnu. Með tilkomu Eigna-
sjóðs Reykjavíkurborgar urðu
þær breytingar að framkvæmdir
koma inn í reikningshald á mun
lengri tíma og hafa ekki áhrif á
rekstur aðalsjóðs borgarinnar
frá degi til dags eins og áður var.
Af þeim ástæðum er auðveldara
að stýra framkvæmdum og nýta
þann tíma sem getur verið hag-
stæður út frá almennum og einnig
tímabundnum aðstæðum í þjóð-
félaginu án þess að það komi við
stöðu reikninga borgarinnar frá
einu ári til annars. Á meðan þetta
var allt undir einum rekstri þá gat
verið freistandi fyrir borgarstjórn
að skera stofnframkvæmdir nið-
ur til þess að spara og ná þannig
hagstæðari niðurstöðutölum í árs-
reikningi. Menn jafnvel sparað sér
til tjóns með þeim hætti en með
þessar breytingu er það ekki leng-
ur hægt og breytingin auðveldar
borginni einnig að vinna að stofn-
framkvæmdum eftir aðstæðum í
þjóðfélaginu hverju sinni. Kostn-
aður við stórframkvæmdir á veg-
um borgarinnar nú getur skapað
tekjur fyrir borgarstjóð á næstu
árum og einnig til framtíðar. Stofn-
un eignasjóðsins er því í mínum
huga bæði stórt og mikilvægt
skref fyrir rekstur borgarinnar og
ég hef mikla trú á þessum skipu-
lagsbreytingum,” segir Óskar
Bergsson, borgarfulltrúi.
Eigum að nýta tímann nú til framkvæmda
Óskar Bergsson.
Séð yfir hluta Vatnsmýrarinnar og Reykjavíkurflugvallar.
Sjónmælingar
linsumælingar
�������������