Dagblaðið Vísir - DV - 04.11.2009, Page 6
6 miðvikudagur 4. nóvember 2009 fréttir
Ætlar að standa
í lappirnar
Sigmundur Davíð Gunnlaugs-
son, formaður Framsóknarflokks-
ins, spurði Kristján Þór Júlíusson,
þingmann Sjálfstæðisflokksins, á
þingfundi í gær út í afstöðu hans
til frumvarps um ríkisábyrgð
vegna Icesave. „Getur þingmað-
urinn staðfest að hann mun sýna
staðfestu í þessu máli?“ spurði
Sigmundur. Hann vísaði til orða
Lilju Mósesdóttur, þingmanns
vinstri-grænna, sem sagði að
óvissa um afstöðu sjálfstæðis-
manna hefði ruglað suma þing-
menn vinstri-grænna.
Kristján sagðist ekki ætla
að styðja frumvarpið. „Ég mun
standa í lappirnar í þessu máli
og treysti á að þið gerið það líka,
framsóknarmenn,“ sagði hann.
Dómari víkur sæti
Sigríður Ingvarsdóttir, dómari
við Héraðsdóm Reykjavíkur, vík-
ur sæti í máli
Guðmundar
Kristjánsson-
ar gegn Árna
Mathiesen,
fyrrverandi
fjármálaráð-
herra, og ís-
lenska ríkinu.
Guðmundur
sótti um embætti héraðsdóm-
ara við Héraðsdóm Norðurlands
eystra og Héraðsdóm Austur-
lands. Sérstök matsnefnd mat
Guðmund hæfari en Þorstein
Davíðsson, en Þorsteinn var engu
að síður skipaður í embættið.
Guðmundur ákvað því að stefna
íslenska ríkinu og Árna Mathiesen
sem var settur dómsmálaráðherra
við skipunina. Stefndu kröfðust
þess að Sigríður viki sæti vegna
ummæla hennar í útvarpsviðtali
um málið og var á það fallist í gær.
Íslensku gúrkurn-
ar bestar
„Allt þinghúsið myndi rúma um
300 tonn af agúrkum. Þetta er
spurning um
að horfast
í augu við
möguleik-
ana,“ sagði
Árni Johnsen,
þingmaður
Sjálfstæðis-
flokksins, í
þingumræð-
um um hátt raforkuverð til garð-
yrkjubænda. Við þessi orð sín
dró Árni síðan upp agúrku. Hann
sagði miður að við garðyrkju-
bændum blasti að hætta að rækta
agúrkur. „Þær bestu í heiminum,“
eins og Árni komst að orði.
Húsleitir vegna
erlendra korta
Farið var í nítján húsleitir á vegum
efnahagsbrotadeildar ríkislög-
reglustjóra í gær. Skattrannsókn-
arstjóri hefur kært til deildar-
innar fjórtán mál þar sem erlend
greiðslukort eru notuð hérlendis
en skuldfærð erlendis, einkum í
Lúxemborg. Með því komast við-
komandi hjá því að greiða skatta
af tekjum sínum. Húsleitirnar
fóru aðallega fram á höfuðborg-
arsvæðinu en ein húsleit var gerð
á Ísafirði og tóku um fimmtíu
manns þátt í þeim.
Nýja Kaupþing hefur gefið Jón Ásgeiri Jóhannessyni og aðilum honum tengdum tvo
mánuði til að koma með 7,5 milljarða króna í nýtt hlutafé. Vilhjálmur Bjarnason telur
eðlilegt að Hagar fari í almenna gjaldþrotameðferð. Guðmundur Franklín Jónsson seg-
ist fara fyrir 100 fjársterkum aðilum sem vilji gera tilboð í 60 prósenta hlut í Högum.
Átök um Haga
„Er ekki eðlilegt að félagið fari í al-
menna gjaldþrotameðferð?“ segir
Vilhjálmur Bjarnason, lektor við við-
skiptafræðideild Háskóla Íslands og
formaður Félags fjárfesta, um hvað
honum finnist um þær hugmyndir að
Jóni Ásgeiri og aðilum honum tengd-
um verði gefinn kostur á að koma
með 7,5 milljarða króna hlutafé til að
bjarga Högum. Honum finnst eðlilegt
að Hagar verði sett í útboð með svip-
uðum hætti og gert var með Árvak-
ur. Hann sagðist ekki hafa kynnt sér
reikninga eignarhaldsfélagsins 1998.
Því gæti hann ekki tjáð sig um hvort fé-
lagið væri meira virði en 12,5 milljarða
króna.
Annað tilboð
Rúmlega eitt hundrað fjársterkir að-
ilar ætla að gera ríkisbankanum Nýja
Kaupþingi tilboð í 60 prósenta hlut í
Högum. Miklar umræður hafa verið
um málefni fyrirtækisins undanfarna
daga. Hagar eru í eigu eignarhalds-
félagsins 1998. Fréttastofa Stöðvar 2
sagði frá því á sunnudag að áform væru
um að Jón Ásgeir Jóhannesson og aðil-
ar honum tengdir fengju að halda 60
prósenta hlut í Högum. Til þess þyrftu
þeir að leggja fram 7,5 milljarða króna
í nýtt hlutafé innan tveggja mánaða.
Nýja Kaupþing myndi síðan eiga 40
prósent í félaginu. Þannig metur Nýja
Kaupþing Haga á 12,5 milljarða króna.
Margir telja þó að verðmat félagsins
liggi nær 18 til 22 milljörðum króna.
Skuldirnar við Kaupþing nema hins
vegar 48 milljörðum króna.
Jóhanna Sigurðardóttir forsætis-
ráðherra sagði á blaðamannafundi í
gær að ef til mikilla afskrifta kæmi væri
óeðlilegt að fyrri eigendur kæmu að
stjórn fyrirtækja. Steingrímur J. Sigfús-
son fjármálaráðherra sagðist treysta
því að bankar og bankasýsla fylgdu
verklagsreglum við meðferð fyrir-
tækja.
Milljarða afskriftir
Guðmundur Franklín Jónsson fjárfest-
ir er einn talsmanna hópsins sem ætlar
að gera tilboð í 60 prósenta hlut í Hög-
um. Í samtali við DV segir Guðmund-
ur að tilboð hópsins sé nokkuð hærra
en það sem Jón Ásgeir og aðilar tengd-
ir honum hyggjast leggja fram. Miðað
við að 60 prósenta hlutur fáist fyrir 7,5
milljarða króna metur Kaupþing Haga
á 12,5 milljarða króna. „Ríkið ætlar að
fella niður 45 milljarða króna skuld
Haga. Ég held að Kaupþing viti vart
hvað eigi að gera. Í öllu þessu gegn-
sæi er mikil þoka,“ segir Guðmundur
Franklín.
Aðspurður hvort verið sé að reyna
að láta Jón Ásgeir Jóhannesson fá fyr-
irtækið aftur áður en kröfuhafar yfir-
taka það segir hann að það sé engin
spurning. „Það vita það náttúrlega all-
ir að hann hefur ágætis tök inn í Sam-
fylkinguna,“ segir Guðmundur Frank-
lín. Hann segir hópinn vera kominn
með upphæðina fyrir hlutnum í Haga
en hann segir skynsamlegt að fá sem
flesta inn í hópinn til að eignarhlutur-
inn dreifist á sem flesta. Auglýst verð-
ur eftir fleirum í hópinn í blaðaauglýs-
ingu á næstunni.
Varð gjaldþrota
Guðmundur Franklín þekkir það af
eigin raun að tapa peningum á fyr-
irtækjarekstri á Íslandi. Árið 1999
aðstoðaði hann Lífeyrissjóð Austur-
lands með því að kaupa verðbréfa-
fyrirtækið Handsal. Var nafni Hand-
sals í kjölfarið breytt í Burnham
International. Árið 2001 var starfs-
leyfi verðbréfafyrirtækisins Burnham
International á Íslandi afturkallað
og í kjölfarið var fyrirtækið tekið til
gjaldþrotaskipta. Burnham tapaði
meðal annars miklu vegna kaupa á
hlutafé í bresku netfyrirtæki.
Lífeyrissjóður Austurlands tap-
aði miklum peningum á gjaldþroti
Burnham. Þurfti sjóðurinn að skerða
lífeyrisréttindi sjóðfélaga vegna taps-
ins. Tryggingarsjóður innstæðueig-
enda varð einnig fyrir tjóni. Voru
lýstar 300 milljóna króna kröfur í
Tryggingarsjóðinn vegna málefna
Burnham. Sjóðurinn borgaði hins
vegar einungis 40 milljónir króna.
Má segja að þetta sé stærsta tjón
Tryggingarsjóðs innstæðueigenda
þar til krafan um Icesave kom til.
Guðmundur Franklín hefur undan-
farin sjö ár rekið Bellagio-hótelið í
Prag en sneri nýverið heim.
30 prósenta eigið fé 2008
Samkvæmt ársreikningi Haga fyrir
árið 2007 námu heildareignir félags-
ins þá um 28 milljörðum króna. Skuld-
ir námu 19 milljörðum króna og var
eiginfjárhlutfall 32 prósent. Hagar áttu
á þeim tíma 43 prósent í Húsasmiðj-
unni. Hlutafé Húsasmiðjunnar var
fært niður í núll í byrjun október 2009.
Í maí 2008 var eignarhaldsfélagið 1998
stofnað. Í byrjun júlí 2008 tilkynnti
Baugur um miklar breytingar á starf-
semi sinni. Hagar var þá fært frá Baugi
undir félagið Gaum. FL Group breytt-
ist í Stoðir. Þar með hafði Baugur losað
sig við allar eignir sínar á Íslandi. 1998
var skráð í 82,3 prósenta eigu Gaums,
8,9 prósent voru í eigu Ingibjargar
Pálmadóttur og 8,8 prósent í eigu fé-
lagsins Bague SA. Eigendur Bague SA
eru Hreinn Loftsson, Guðrún Péturs-
dóttir og börn Péturs Björnssonar sem
kenndur er við Vífilfell.
Samkvæmt lánabók Kaupþings
sem lak á vefsíðuna Wikileaks skuld-
aði félagið 1998 Kaupþingi 260 millj-
ónir evra í lok september 2008. Það
eru um 48 milljarðar króna miðað við
gengi evrunnar gagnvart krónu. Í dag
sitja tveir fulltrúar Nýja Kaupþings í
stjórn Haga. Sigurjón Pálsson og Reg-
inn Freyr Mogensen, lögmenn hjá
Nýja Kaupþingi, skipa nýja stjórn fé-
lagsins auk Jóhannesar Jónssonar.
Á Jón Ásgeir fjármagn?
Ekki liggur ljóst fyrir hvaðan Jón Ás-
geir og aðilar honum tengdir ætla að
fá 7,5 milljarða króna til að setja inn
í Haga. Í lok ágúst sagði Jón Ásgeir
frá því í viðtali við Viðskiptablaðið
að félag í eigu þriggja fjárfesta hefði
skrifað undir viljayfirlýsingu um að
koma með nýtt hlutafé inn í Haga.
Átti það að nema 75 milljónum
punda eða 16 milljörðum íslenskra
króna. Vonaðist hann til þess að
samningur yrði gerður um málið
innan nokkurra mánaða. Nokkrum
dögum áður hafði hann sagt í viðtali
við Morgunblaðið að breskir fjár-
festar kæmu með hlutafé inn í Haga
innan tveggja ára.
Í byrjun október tilkynnti Hag-
ar um að samið hefði verið um sjö
milljarða króna endurfjármögnun
félagsins. Var það háð fyrirvara um
áreiðanleikakönnun og samþykki
lánanefnda bankanna. Helstu við-
skiptafélagar Jóns Ásgeirs í Bret-
landi hafa verið þeir Kevin Stanford,
Sir Tom Hunter og Don McCarthny,
stjórnarformaður House of Fras-
er. Bæði Kevin Stanford og Sir Tom
Hunter hafa misst mikið af auði sín-
um. Don McCarthny er þó talinn
eiga 90 milljónir punda eða um 18
milljarða íslenskra króna.
AnnAs siGMundsson
blaðamaður skrifar: as @dv.is
Óvíst með fjármagn
Ekki liggur ljóst fyrir hvaðan Jón Ásgeir
Jóhannesson ætlar að fá 7,5 milljarða.
króna. Mynd steFÁn KArlsson
Haga í gjaldþrot Vilhjálmur Bjarnason,
lektor og formaður Félags fjárfesta,
telur að Hagar eigi að fara í almenna
gjaldþrotameðferð. Mynd GunnAr GunnArsson
Vill kaupa Fjárfestirinn Guðmundur
Franklín Jónsson er einn talsmanna hóps
sem vill kaupa 60 prósenta hlut í Högum.
Mynd rÓBert reynisson
Óvissa með Haga Nýja
Kaupþing hefur gefið Jóni
Ásgeiri Jóhannessyni og
aðilum honum tengdum
tvo mánuði til að útvega
7,5 milljarða króna í nýtt
hlutafé.
Mynd rÓBert reynisson