Dagblaðið Vísir - DV - 04.11.2009, Blaðsíða 11
hausinn
neytendur 4. nóvember 2009 miðvikudagur 21
30 leiðir til að fara á
krónur. Sá sem fiktar við fíkniefni á borð við kókaín, og ánetjast því þannig
að hann þarf að nota efnið daglega, þarf að greiða 465 þúsund krónur á
mánuði.
Byrjaðu í skotveiði
Eyðsla í upphafi: 400.000 kr.
Skotveiði er skemmtileg leið til að leggja fjárhaginn í rúst, sérstaklega
ef hann er bágur fyrir. Farðu á skotvopna- og veiðikortanámskeið og 30
þúsund kall er fokinn. Keyptu þér 100 þúsund króna haglabyssu, fatnað
fyrir 50 þúsund, skotfæri fyrir 20 þúsund og gervigæsir fyrir 30 þúsund
krónur. Ekki gleyma gæsaflautu, áttavita og GPS; 70 þúsund krónur. Leigðu
þér kornakur eða rjúpnalendur og þú borgar á að giska 80 þúsund krónur.
Ferðakostnaður: 20 þúsund krónur, og þú ert endanlega farinn á hausinn.
Ef þú ert heppinn tekst þér að veiða í jólamatinn í fyrstu ferð.
fáðu Bíladellu
Eyðsla á ári: 500.000 kr.
Það er rosalega skemmtilegt að eiga nýjan bíl. Skiptu um bíl einu sinni á ári
og þá ertu alltaf á nýjum kagga og getur heillað dömur eða herra upp úr
skónum. Verðrýrnun á fimm milljóna króna bíl er um 500 þúsund krónur á
ári, eða um 13 prósent.
eignastu Barn
Eyðsla á mánuði: Lágmark 30.000 kr.
Ein skilvirkasta leiðin til að setja fjárhaginn í uppnám er að eignast barn.
Samkvæmt Ráðgjafarstofu um fjármál heimilanna kostar 30 þúsund krón-
ur að lágmarki að eiga barn í einn mánuð. Á ári nemur kostnaðurinn 360
þúsund krónum en ljóst má vera að „stofnkostnaður“ (rúm, barnavagn, föt
og fl.) er margfalt meiri en 30 þúsund krónur, auk þess sem barninu verður
seint skilað. Það þýðir auðvitað ekki að fá notaða hluti handa glænýju
barninu. Á hinn bóginn verður ekki fram hjá því litið að barnauppeldi er
líklega mest gefandi og heillandi starf í heimi. Fjárhags-
lega er þó slæm ákvörðun að eignast mörg börn.
forðastu tilBoð
Eyðsla á mánuði: 6.000 kr.
Vörur fara oft á tilboð vegna þess að þær eru við
það að renna út eða enginn vill þær. Tilboðsvör-
um fylgir oft mannþröng og hamagangur sem
getur raskað ró þinni. Ekki láta helmingsafslátt
blekkja þig út í aðstæður sem þér finnast
óþægilegar. Þannig geturðu í það minnsta aukið
matarútgjöld heimilisins um 10 prósent, eða um
sex þúsund krónur á mánuði ef venjuleg eyðsla er
60 þúsund krónur. Þú færð minna fyrir meira.
hættu að Borga
Eyðsla: 15.000.000 kr.
Þeir sem hætta alfarið að borga af lánum sínum
hafa oft mikinn pening á milli handanna fyrst um
sinn. Þá geta þeir leyft sér flest sem hugurinn girnist.
Innan fárra mánaða verða póstberar reglulegir gestir
á kvöldin með alls kyns ábyrgðarbréf sem þú þarft
að kvitta á. Innheimtukostnaðurinn hrannast upp og
þú verður á endanum borinn út úr húsinu þínu. Þrjá-
tíu milljóna króna húsið verður selt og þú situr uppi
eignalaus en skuldar enn helming lánsupphæðarinnar. Ef
þú hefðir borgað áfram hefðirðu á endanum eignast kofann.
farðu á djammið
Eyðsla á mánuði: 50.000 kr.
Það er nauðsynlegt í kreppunni að skemmta sér
einu sinni í viku. Farðu með félögunum niður í bæ
og þambaðu bjór. Ef þú tekur vel á því gætirðu
komið niður um 10 bjórum. Kostnaðurinn
nemur líklega um 8.500 krónur auk þess sem þú
býður heillandi konum upp á drykki með þér.
Leigubíllinn heim kostar svo líklega um 4.000
krónur.
kauptu inn á næturnar
Eyðsla á ári: 662.000 kr.
Glæný verðkönnun ASÍ sýnir að meðaltals-
verðmunur á hæsta og lægsta verði í matvöruverslunum er 92
prósent. Ef þú vilt fyrir alla muni verja eins miklum peningum og þú getur
í mat ættirðu að hafa það sem reglu að gera bara innkaup á næturnar.
Ef miðað er við að sá sem gerir matarinnkaupin í Bónus eyði 60 þúsund
krónum á mánuði, getur sá sem kaupir inn á næturnar aukið útgjöld sín
um allt að 662 þúsund krónur á ári.
skiptu út fólksBílnum
Eyðsla á ári: 2.360.000 kr.
Veturinn er að nálgast og þá er nauðsynlegt að eignast jeppa. Seldu
fólksbílinn á slikk, taktu tvær milljónir af ævisparnaði þínum og keyptu
þér jeppa, helst amerískan. Ef þú ekur
20 þúsund kílómetra á ári hefði
það kostað 360 þúsund
krónur í bensín ef þú hefðir
átt fólksbílinn áfram. Jeppinn
eyðir 20 lítrum á hundraði
og bensínið kostar því 720.000
krónur. Þú festir þig allavega ekki
í skafli, eins og ræflarnir á fólksbíl-
unum.
stefndu einhverjum
Eyðsla: 750.000 kr.
Egndu einhvern sóðakjaft á spjallsíðum á netinu.
Espaðu hann upp þar til hann missir stjórn á sér og segir
eitthvað ljótt um þig. Kærðu hann svo fyrir meiðandi ummæli og
heimtaðu skaðabætur Ferlið er óhemju lærdómsríkt. Þú munt
til dæmis læra að lögfræðingar rukka 15 þúsund kall á tímann
og skrifa niður hverja einustu mínútu sem þeir vinna fyrir
þig. Þú munt að lokum tapa málinu þar sem sóðakjafturinn
var nafnlaus og ekki tókst að finna IP-töluna. Fimmtíu
vinnustundir lögfræðings kosta 750 þúsund.
stækkaðu við þig
Eyðsla á mánuði: 80.000 kr.
Flestallir Pólverjarnir eru farnir úr landi. Þeir byggðu fyrir okkur
mörg þúsund íbúðir sem nú standa auðar. Hví ættirðu að
kúldrast í kjallaraholu í miðbænum þegar þú getur
fengið íbúð með útsýni uppi í Mosfellsbæ?
Leigan hækkar ef til vill um helming, úr
80 í 160 þúsund krónur, en útsýnið og
olnbogarýmið er hverrar krónu virði.
Að stækka við sig er góð leið til að
setja fjárhaginn í uppnám.
vítamín og fjörefni
Eyðsla á mánuði: 20.000 kr.
Hversu oft hefur þú ekki heyrt að nútíma-
maðurinn fái ekki allt sem hann þarf úr
fæðunni. Þessar frönsku kartöflur eru
alls ekki eins hollar og af er látið. Birgðu
þig upp af A-, B-, C- og D-vítamínum.
Keyptu steinefni, járn, kalktöfl-
ur og fæðubótarefni. Hver
flaska/glas kostar 2.500
krónur og þú verður
heilsuhraustari en
nokkru sinni.