Dagblaðið Vísir - DV - 04.11.2009, Blaðsíða 22
Kannski er bara best að halda sig við Football Manager, þá er alla vega víst að sama hvað maður gerir í leik-
mannamálum er víst að maður fær
ekki dóm á sig fyrir að vera ráðríkur
og frekur. Þannig getur maður selt
leikmenn út og suður og farið með
úrvalsdeildarlið langleiðina í neðstu
deild án þess að kveðinn verði upp sá
dómur að maður sé slettireka.
Þó Svarthöfði hafi löngum leikið sér í Football Manager, Championship Manager, Ultimate Manager og öllum
þessum snilldar fótboltaþjálfaraleikj-
um verður því ekki neitað að hann
öfundaði dálítið þá Björgólf Guð-
munds- son og
Egg- ert
Magnússon þegar þeir keyptu West
Ham. Þetta eru menn sem létu sér
ekki nægja að fá útrás fyrir dagdraum-
ana í tölvuleikjum heldur keyptu sér
heilt fótboltalið til að leika sér með.
Það er auðvitað miklu svalara að eiga
enskt úrvalsdeildarlið og geta keypt
og selt raunverulega leikmenn heldur
en að setjast niður við tölvuna síðla
kvölds til að leika sér í tölvunni. (En
höfum það samt alveg á hreinu að það
er ekkert barnalegt við að miðaldra og
þaðan af eldri menn leiki sér í tölvu-
leikjum.)
En gamanið getur kárnað í al-vörunni þegar sígur á ógæfu-hliðina í raunveruleikanum. Og þarf jafnvel ekki að vera
ýkja slæm staða. Það getur meira að
segja komið manni í koll að verða vin-
sæll meðal stuðningsmanna liðsins.
Þannig getur aðaleigand-
inn kallað mann
Coca
Cola-skilti og síðan rekið mann fyrir
að eyða of miklum peningum. Og allt
fyrir að semja við Freddie Ljungberg,
eina bestu ljósmyndafyrirsætu sem
iðkað hefur knattlist sína á enskum
knattspyrnuvöllum.
Og þó fótboltamenn viti að ekki þýði að deila við dóm-arann er ekki fjarri lagi að mann kynni að langa að
rífa smá kjaft ef maður fengi á sig svip-
aðan dóm og fyrrverandi ráðamenn
West Ham fengu í gær. Þegar einhver
breskur dómari taldi sig þess umkom-
inn að segja að maður væri að skipta
sér of mikið af og trufla manninn sem
maður hafði ráðið sem knattspyrnu-
stjóra. Eða hvað heldur Alan Curbis-
hley að hann viti um fótbolta sem
góðir og gegnir Valsarar og KR-ingar
vita ekki?
Og eftir stendur að peningurinn er guf-aður upp, aðrir teknir við stjórn fótboltafé-
lagsins og dýrðin hefur á köfl-
um breyst í háðung. Já, það
er kannski betra að spila
Football Manager heldur
en kaupa alvöru fótbolta-
lið, því í Football Manager
getur maður alltaf byrjað
upp á nýtt, startað nýjum
leik og leiðrétt þau mistök
sem maður hefur gert áður.
Án þess að tapa krónu...
eða dómsmáli.
Game over
Spurningin
„Eflaust þjóðarhagur,“ segir Guð-
mundur Franklín Jónsson fjárfestir.
Hann er í forsvari fyrir hóp sem hyggst
gera Nýja Kaupþingi tilboð í 60
prósenta hlut í Högum.
verður haGur af
þessum kaupum?
„Bankinn var
ekkert að
benda okkur á
þetta.“
Einar Örn Jónsson, faðir tveggja barna sem
fengu kúlulán hjá Glitni til að kaupa stofnfé í Byr
árið 2007, segist ekki hafa vitað að hugsanlega
væri það lögbrot að skuldsetja börnin sín. – DV
„Fólk verður að
hætta að lifa í
blekkingu.
Þetta eru bara
glæpamenn á
mótorhjólum.“
Kanadíski rannsóknarblaðamaðurinn Julian
Sher í samtali við DV. Hann hefur skrifað tvær
bækur og fjöldann allan af blaðagreinum um
Hells Angels. – DV
„Hún er bara mjög vinsæl,
mjög vinsæl.“
Sigríður Regina Waage um eina ástæðu þess
að Kleopatra Kristbjörg var ráðin forstjóri Gunnars
Majoness hf. – DV
„Ég fór fram úr
mér með því
að segja að við
hefðum sætt
kúna.“
Sverrir Þór Sverrisson, betur þekktur sem
Sveppi, um að hann hefði hlaupið á sig í öllum
hasarnum í kringum þáttinn Auddi og Sveppi.
– Fréttablaðið
„Þetta var ótrúlegt.“
Katrín Hall sem samdi dansinn fyrir nýjasta
myndband stórstjörnunnar Shakiru. Hún segir svo
marga hafa komið að gerð þess að þetta hafi
verið eins og í bíómynd. – Fréttablaðið
Hinir raunverulegu þjófar
Leiðari
Föstudag nokkurn í lok febrúar fór hungraður, geðsjúkur maður í 10-11 og borðaði þar súpu að andvirði 250 krónur, sem hann gat ekki borgað.
Á sunnudeginum fór hann í Hagkaup og tók
mat fyrir 769 krónur sem hann gat ekki held-
ur borgað. Fyrir nokkrum vikum var hann
dæmdur í fimm mánaða fangelsi og til greiðslu
185 þúsunda króna í sakarkostnað, sem er um
185-föld upphæð þess sem hann tók.
Félag Bjössa í World Class tapaði 270 millj-
ónum í fyrra. Hann greiddi sér samt 6 milljón-
ir í arð. Og nú er hann að skipta um kennitölu
á félaginu.
Í fyrra tapaði eignarhaldsfélag Þórðar Más
Jóhannessonar 62 milljónum króna og útlitið
var afar slæmt. Þá borgaði hann sér persónu-
lega 300 milljónir króna í arð. Ef eignarhalds-
félagið fer á hausinn ber hann enga ábyrgð á
því og heldur 300 milljónunum.
Bjarni Ármannsson komst nýlega að þeirri
niðurstöðu að hann ætti ekki að borga 800
milljóna króna skuld eignarhaldsfélags síns,
þótt hann ætti tæpa tíu milljarða króna. „Enda
væri það náttúrulega bara óábyrg meðferð á
fé af minni hálfu að gera það,“ útskýrði hann
í samtali við DV.
Eftir efnahagshrunið hófst innbrotafarald-
ur á höfuðborgarsvæðinu. Talið er að heildar-
tjónið vegna innbrota á Íslandi nemi hundruð-
um milljóna króna á ári, eða á svipuðu bili og
arðgreiðsla Þórðar Más til sjálfs sín og skulda-
aflausn Bjarna Ármannssonar milljarðamær-
ings. Tryggingarfélögin bæta almenningi að
mestu tjónið af völdum innbrotsþjófa.
Við fjármálahrunið hækka bankarnir
skuldir heimilanna um 300 til 500 milljarða
króna. Almenningur tapar því þúsundfalt
meira á aðgerðum bankanna en innbrotsþjóf-
um. Nú í byrjun mánaðarins hækka bankarn-
ir verðtryggð fasteignalán um 0,5 prósent. Sá
sem skuldar 20 milljónir missir þar með 100
þúsund krónur um þessi mánaðamót. Fjár-
hagslega séð er þetta líkt því að bankinn sendi
mann til að taka eina fartölvu af heimilinu um
hver mánaðamót. Þetta hefur reyndar skán-
að. Fyrir nokkrum mánuðum tóku þeir tvær
á mánuði.
Bankarnir buðu almenningi upp á að kaupa
bíla á erlendum lánum. Félagsmálaráðherr-
ann Árni Páll Árnason hefur komið almenn-
ingi til bjargar. Samkvæmt tilboði hans mun
fólk að lokum hafa keypt einn bíl, en borgað
bönkunum fyrir tvo til þrjá bíla, allt eftir um-
fangi björgunarinnar.
Hér hefur verið búið til kerfi þar sem auð-
menn geta ábyrgðarlaust sogið peninga úr
fyrirtækjum sínum og fyrirtæki þeirra geta
skipulega og löglega svipt almenning eigum
sínum. Þeir senda ekki menn til þín, því þeir
þurfa þess ekki. Það gerist í heimabankanum.
Þetta er ekki aðeins sjálfkrafa eða kerfis-
lægt. Ríkisstjórnin ákvað við hrunið að bjarga
þeim sem áttu hundruð milljóna króna inni á
bankareikningum. Þannig hefur hún bjargað
Þórði Má, ef hann kaus að leggja 300 milljón-
irnar sínar inn á bankareikning.
Þessi dæmi sýna hvað kerfið er vanþroskað
þegar kemur að því að gæta hagsmuna fjöld-
ans. Harðar refsingar smáþjófa og löglegt arð-
rán aðalsmanna á almenningi líkist meira
lénsskipulagi en sanngjörnu lýðræði.
Jón TrausTi reynisson riTsTJóri skrifar. Hér hefur verið búið til kerfi þar sem auðmenn geta ábyrgðarlaust sogið peninga úr fyrirtækjum sínum.
bókStafLega
22 miðvikudaGur 4. nóvember 2009 umræða
Sandkorn
n Jón Þorsteinn Jónsson,
kenndur við Nóatún, hefur
öðlast nokkra frægð eftir að
upplýst var að hann skuld-
setti börn sín vegna kaupa á
hlut í Byr.
Jón Þor-
steinn, sem
er lærður
kokkur, var
á meðal
auðugustu
útrásarvík-
inganna en
hefur tapað
stórt eftir hrunið. Þann 24.
september varð kappinn fer-
tugur. Haldið var upp á afmæl-
ið með pompi og prakt og fékk
hann margar gjafir. Sérstæðust
var vafalítið ferð með loftbelg
sem vinir hans gáfu honum.
n Marta Guðjónsdóttir, for-
maður sjálfstæðisfélagsins
Varðar, ætlar að taka slaginn
í prófkjöri Sjálfstæðisflokks-
ins fyrir næstu borgarstjórn-
arkosn-
ingar og
stefnir hátt.
Marta þykir
hafa unnið
gott verk
í að sætta
stríðandi
fylkingar í
flokknum
í kringum REI-málið. Ekki er
talið ólíklegt að hún nái að
velta Jórunni Frímannsdóttur
borgarfulltrúa úr sessi. Jórunn
tók þátt í prófkjöri flokksins til
alþingiskosninga og mun hafa
sagt við það tækifæri að hún
væri búin með „to do“ listann
sinn í borginni. Hún náði ekki
árangri.
n Umræðan á netinu á það til
að vera dálítið firrt og minn-
ir um sumt á þá tíma þegar
Jónas Jónsson frá Hriflu var
úrskurðaður geðveikur. Nú
hafa komið upp efasemdir um
geðheilsu Björns Bjarnason-
ar, fyrrverandi dómsmálaráð-
herra. Hann á reyndar sjálfur
frumkvæðið með því að gefa
til kynna að Steingrímur J.
Sigfússon vilji láta senda sig
á geðveikrahæli, rétt eins og
gert var við uppreisnarmenn í
Sovétríkjunum á sínum tíma.
n Um það bil helmingur allra
ráðninga í embættismanna-
kerfi ríkisins fellur að öllu eða
einhverju leyti undir póli-
tískar ráðningar samkvæmt
rannsókn
Gunnars
Helga Krist-
inssonar,
prófessors í
stjórnmála-
fræði. At-
hygli vakti
að í upphafi
kynningar
Gunnars Helga á rannsókn-
inni sat einn maður fremst-
ur fyrir miðju og fylgdist vel
með. Þar var kominn Hannes
Hólmsteinn Gissurarson en
harðlega var deilt um ráðn-
ingu hans í Háskóla Íslands á
sínum tíma og hefur hún löng-
um verið talin til pólitískra
ráðninga.
LyNgHáLs 5, 110 ReyKjavíK
Útgáfufélag: Útgáfufélagið Birtíngur ehf.
Stjórnarformaður: Hreinn Loftsson
framkvæmdaStjóri: sverrir arngrímsson
ritStjórar:
jón Trausti Reynisson, jontrausti@dv.is
og Reynir Traustason, rt@dv.is
fréttaStjórar:
Brynjólfur Þór guðmundsson, brynjolfur@dv.is
og Þórarinn Þórarinsson, toti@dv.is
auglýSingaStjóri:
elísabet austmann, elisabet@birtingur.is
dv á netinu: dv.is
aðalnÚmer: 512 7000, ritStjórn: 512 7010,
áSkriftarSími: 512 7080, auglýSingar: 512 7050.
SmáauglýSingar: 515 5550.
umbrot: dv. Prentvinnsla: Landsprent. dreifing: árvakur.
dv áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins á stafrænu
formi og í gagnabönkum án endurgjalds.
Öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð.