Dagblaðið Vísir - DV - 04.11.2009, Qupperneq 24
Anna Kjartansdóttir
starfsmaður við Landsbankann
Anna fæddist í Reykjavík og ólst
þar upp í Skuggahverfinu. Hún var
í Miðbæjarskólanum og Lindar-
götuskólanum, stundaði nám við
Bankamannaskólann, lauk stúd-
entsprófi frá Nigulagskolen í Hels-
ingborg í Svíþjóð 1980 og hefur sótt
fjölda námskeiða tengd störfum
sínum.
Anna sinnti verslunarstörfum
við verslun föður síns í nokkur ár
en hefur starfað við Landsbankann
í þrjátíu ár, við ýmis útibú bankans,
auk þess sem hún var deildarstjóri
þjónustuvers Landsbankans um
árabil. Hún var búsett í Svíþjóð á ár-
unum 1978-’81.
Anna æfði og keppti í hand-
bolta með KR á unglingsárunum
og keppti þá m.a. í meistaraflokki.
Hún sat í stjórn Sambands íslenskra
bankamanna í níu ár og hefur sinnt
ýmsum nefndarstörfum á vegum
þess og FSLÍ.
Fjölskylda
Anna giftist 18.4. 1971 Sigurði O.
Péturssyni, f. 2.7. 1949, d. 9.1. 2000,
bankamanni. Hann var sonur Pét-
urs Ottesen og Ágústu Ágústsdótt-
ur.
Synir Önnu og Sigurðar eru
Kjartan Hauksson, f. 25.2. 1970,
rekstrarhagfræðingur í fjármála-
ráðuneytinu, kvæntur Karinu Ped-
ersen iðjuþjálfa og eru börn þeirra
Selma Kjartansdóttir, f. 6.11. 2001,
Magnús Kjartansson, f. 2.4. 2004
og Ágúst Kjartansson, f. 4.9. 2009,
en dóttir Kjartans og Huldu Karen-
ar Auðunsdóttur er Sara Rut Kjart-
ansdóttir, f. 18.12. 1996; Pétur Sig-
urðsson, f. 23.9. 1971, dr. í lífaflfræði
og kennari við HR en kona hans er
Harpa Sigurðardóttir og eru börn
þeirra Sigurður Alex Pétursson, f.
20.11. 1999, Elísa Sól Pétursdótt-
ir, f. 28.2. 2003, og Sóley Lilja Pét-
ursdóttir, f. 27.3. 2007; Gunnar Þór
Sigurðsson, f. 8.6. 1980, nemi í há-
tækniverkfræði við HR.
Systkini Önnur eru Vilhjálmur
Þór, f. 28.12. 1943, verkfræðingur
og háskólakennari, kvæntur Guð-
rúnu Hannesdóttur félagsfræðingi;
Magnús Rúnar, f. 7.6. 1946, leið-
sögumaður í Reykjavík, en kona
hans er Jóhanna Björk Jónsdóttir
þroskaþjálfi; Kjartan Gunnar Kjart-
ansson, f. 27.6. 1952, blaðamaður
við DV, kvæntur Mörtu Guðjóns-
dóttur, kennara og varaborgarfull-
trúa; Ingibjörg Ósk, f. 17.2. 1957,
aðstoðarleikskólastjóri, gift Garðari
Mýrdal, eðlisfræðingi við Landspít-
alann; Birgir, f. 16.3. 1962, vélvirki;
Sveinn Sigurður, f. 6.7. 1967, fram-
kvæmdastjóri en kona hans er Stella
Sæmundsdóttir kaupmaður.
Foreldrar Önnu: Kjartan Magn-
ússon, f. 15.7. 1917, d. 3.12. 1998,
kaupmaður í Kjartansbúð í Reykja-
vík, og k.h., Guðrún H. Vilhjálms-
dóttir, f. 3.11. 1922, húsmóðir og
kennari.
Ætt
Kjartan var bróðir Jóhannesar kaup-
manns, föður Skúla í Tékkkristal,
afa Unnar Birnu Vilhjálmsdóttur
alheimsfegurðardrottningar. Systir
Kjartans var Rósbjörg Beck, móð-
ir Þórólfs Beck, KR-ings, landsliðs-
manns og annars atvinnumanns
Íslendinga í knattspyrnu. Annar
bróðir Kjartans er Bjarni, fyrrv. yf-
irvélstjóri hjá Landhelgisgæslunni.
Kjartan var sonur Magnúsar, sjó-
manns á Hellissandi og í Reykjavík
Sigurðssonar, útvegsb. í Ólafsvík
Sigurðssonar. Móðir Sigurðar var
Anna Pálsdóttir, b. í Vindási Jóns-
sonar, bróður Ingveldar, langömmu
Bryndísar, ömmu Geirs Hallgríms-
sonar forsætisráðherra.
Móðir Kjartans kaupmanns var
Guðrún Jóhannesdóttir, b. í Vind-
ási í Eyrarsveit Bjarnasonar. Móðir
Guðrúnar var Rósbjörg Hallgríms-
dóttir, b. í Fossárdal Hallgrímsson-
ar, b. í Blönduhlíð Magnússonar,
bróður Þóru, langömmu Bergs, föð-
ur Guðbergs rithöfundar.
Hálfbróðir Guðrúnar, móður
Önnu, var Óskar, fyrsti garðyrkju-
stjóri Reykjavíkur. Guðrún er dótt-
ir Vilhjálms, húsasmíðameistara í
Reykjavík, hálfbróður Gróu, móð-
ur Helga Sigurðssonar, fyrsta hita-
veitustjóra Reykjavíkur. Hálfbróðir
Vilhjálms var Teitur, b. á Ferjubakka,
afi Teits Jónassonar forstjóra og Ás-
gerðar Búadóttur veflistakonu,
og langafi Trausta Jónssonar veð-
urfræðings. Vilhjálmur var sonur
Árna, b. á Ausu Jónssonar, b. þar
Pálssonar, b. í Ártúni á Kjalarnesi,
bróður Tómasar í Auðsholti í Bisk-
upstungum, afa Sigrúnar, móður
Þorsteins hagstofustjóra og Hann-
esar, ritstjóra og alþm. Þorsteins-
sona. Systir Sigrúnar var Steinunn,
móðir Tómasar Guðmundssonar
skálds. Móðir Árna var Gróa Gissur-
ardóttir, b. í Skeljabrekku Ólafsson-
ar, bróður Helgu, langömmu Magn-
eu, ömmu Matthíasar Johannessen
skálds, föður Haralds ríkislögreglu-
stjóra. Móðir Vilhjálms var Ingi-
björg Teitsdóttir, ættföður Teitsætt-
ar Símonarsonar.
Móðir Guðrúnar var Þórey, syst-
ir Klemensar, hreppstjóra og skóla-
stjóra á Álftanesi, og Ísleifs, föður
Jóns söngstjóra og organista í Nes-
kirkju. Þórey var dóttir Jóns, b. í Jór-
vík í Álftaveri Jónssonar, og Guðríð-
ar Klemensdóttur.
miðvikudaginn 4. nóvember
30 ára
n Elena Bautista Renegado Leirubakka 32,
Reykjavík
n Katarzyna Lenska Súlunesi 24, Garðabæ
n Carlos Manuel Oliveira Campos Álftamýri 8,
Reykjavík
n Rósa Sveinsdóttir Faxabraut 5a, Reykjanesbæ
n Bjarki Hólm Skólagerði 5, Kópavogi
n Bjarki Þór Baldvinsson Bólstaðarhlíð 37,
Reykjavík
n Svavar Halldór Jóhannsson Borgarbraut 36,
Borgarnesi
n Sigurður Páll Guðbjartsson Fálkagötu 14,
Reykjavík
n Kristján Páll Kristjánsson Fálkagötu 4, Reykjavík
n Árni Víðir Hjartarson Fossheiði 18, Selfossi
n Erna Sólveig Júlíusdóttir Fagrahorni, Selfossi
n Kristján Friðrik Jónsson Bollagötu 8, Reykjavík
40 ára
n Piotr Karol Murawski Eyjabakka 12, Reykjavík
n Katarzyna Monika Kromer Þrastarhöfða 6,
Mosfellsbæ
n Erik Holm Hjalmarsson Holtabyggð 4, Hafnarfirði
n Hans Guðmundur Magnússon Þorláksgeisla 6,
Reykjavík
n Eyrún Björnsdóttir Skútahrauni 17, Mývatni
n Ingileif Eyleifsdóttir Lautasmára 22, Kópavogi
n Hafdís Ingadóttir Grófarseli 16, Reykjavík
n Magnús Jón Áskelsson Mýrum 17, Patreksfirði
n Jón Björn Björnsson Barðastöðum 57, Reykjavík
n Gunnar Þór Valsson Muruholti 6, Álftanesi
n Gísli Björnsson Grenigrund 5, Selfossi
n Daði Valdimarsson Smáravegi 1, Dalvík
n Hildur Hauksdóttir Borgarhlíð 7f, Akureyri
n Margrét Óladóttir Flugumýri, Varmahlíð
50 ára
n Sigrún Júlía Kristjánsdóttir Laugalæk 19,
Reykjavík
n Guðmundur Jóhann Jónsson Álfhólsvegi 101,
Kópavogi
n Óskar Skúlason Munaðarhóli 6, Hellissandi
n Dagbjört Aradóttir Hálsvegi 11, Þórshöfn
n Smári Hjaltason Laufengi 24, Reykjavík
n Hjördís Haraldsdóttir Hvammabraut 8, Hafnarfirði
n Lárus Mýrdal Svarfhóli, Reykhólahreppi
n Valdís Þóra Valdimarsdóttir Stillholti 19, Akranesi
n Rakel Benediktsdóttir Mávatjörn 10,
Reykjanesbæ
n Björn Blöndal Prestbakka 21, Reykjavík
n María Þórðardóttir Lerkilundi 28, Akureyri
n Ásta Jóna Guðmundsdóttir Lagarfelli 17,
Egilsstöðum
n Jóhanna Harðardóttir Hvassaleiti 30, Reykjavík
n Helena Högnadóttir Álfholti 34b, Hafnarfirði
60 ára
n Gunnar Ragnarsson Hvassaleiti 8, Reykjavík
n Halldóra Þórðardóttir Lækjasmára 13, Kópavogi
n Guðlaug Ólafsdóttir Þjóðbraut 1, Akranesi
n Jón Örn Guðmundsson Möðrufelli 13, Reykjavík
n Vasilij Simutin Víkurbraut 24, Grindavík
n Einar Símonarson Tryggvagötu 6, Reykjavík
n Karl Davíðsson Vanabyggð 8d, Akureyri
n Albert Sigurjónsson Sandbakka, Selfossi
n Guðrún Jóna Erlendsdóttir Maríubakka 8,
Reykjavík
n Jónína Sturludóttir Melateigi 1, Akureyri
70 ára
n Guðrún Jónasdóttir Silfurbraut 37,
Höfn í Hornafirði
n Guðmundur Marinósson Kópsvatni 2, Flúðum
n Kristján Torfason Blönduhlíð 17, Reykjavík
n Lilja Sigrún Jónsdóttir Fiskinesi, Drangsnesi
75 ára
n Ragnar Þorsteinsson Berjavöllum 2, Hafnarfirði
n Gísli Sigurjón Sigurðsson Smáraflöt 15, Akranesi
80 ára
n Agnar R. Hallvarðsson Hraunvangi 1, Hafnarfirði
85 ára
n Sigríður Ólafsdóttir Ártúnum, Blönduósi
n Óttar I. Karlsson Sæviðarsundi 78, Reykjavík
90 ára
n Gísli Guðmundsson Asparfelli 6, Reykjavík
n Sigríður Jónsdóttir Dvalarheimilinu Höfða,
Akranesi
95 ára
n Gyða Björnsdóttir Hraunvangi 7, Hafnarfirði
Til
hamingju
með
afmælið!
60 ára í dag
24 miðvikudagur 4. nóvember 2009 ættfræði
Jóhanna fæddist á Akureyri og ólst
þar upp og á Húsabakka í Aðaldal.
Hún var í Hafralækjarskóla og Gler-
árskóla. Jóhanna vann við ræsting-
ar og verslunarstörf á Akureyri en
hefur sinnt uppeldis- og heimilis-
störfum á undanförnum árum.
Fjölskylda
Eiginmaður Jóhönnu er Haraldur
Vilhjálmsson, f. 21.11. 1979, nemi
í bifvélavirkjun og starfsmaður hjá
Brimborg.
Börn Jóhönnu og
Haralds eru Alexandra
Guðný Berglind Har-
aldsdóttir, f. 7.10. 1998;
Helgi Örn Ingi Haralds-
son, f. 21.2. 2008.
Systkini Jóhönnu eru
Helgi Sveinn Ingólfsson,
f. 5.4. 1976, starfsmað-
ur hjá Útrás á Akureyri;
Elín Svana Lárusdóttir,
f. 7.8. 1989, sjúkraliði á
Akureyri.
Foreldrar Jóhönnu
eru Guðný Kristinsdótt-
ir, f. 24.4. 1954, húsmóð-
ir á Akureyri, og Ingólfur
Arnar Helgason, f. 3.2.
1953, bóndi á Lundum í
Borgarfirði.
Maður Guðnýjar og
stjúpfaðir Jóhönnu er
Lárus Örn Steingríms-
son, f. 24.4. 1955, vöru-
bílstjóri. Kona Ingólfs er
Guðrún Marín Sigurðardóttir.
Jóhanna Sigurbjörg Ingólfsdóttir
húsmóðir á akureyri
30 ára í dag
Jóhann fæddist á Húsavík og ólst
þar upp. Hann var í Borgarhóls-
skóla og Framhaldsskólanum á
Húsavík.
Jóhann starfaði við Mjólkur-
samlagið á Húsavík og í rækju-
vinnslu þar, vann við Mjólkursam-
söluna á Akureyri og starfaði hjá
Samskipum í Reykjavík 2004-2006.
Hann starfar nú hjá Mjólkursam-
sölunni á Akureyri þar sem hann
er birgðatæknir.
Fjölskylda
Systkini Jóhanns eru Borgar Þór
Heimisson, f. 21.11. 1970, starfs-
maður við sambýli í Kaupmanna-
höfn; Gísli Arnar Guðmundsson,
f. 25.11. 1972, vélstjóri á Akureyri;
Olga María Hermannsdóttir, f.
18.7. 1976, búsett á Álftanesi.
Foreldrar Jóhanns eru Her-
mann Jóhannsson, f. 26.5. 1954,
mjólkurfræðingur á Akureyri, og
Gerður Gísladóttir, f. 20.3. 1955,
leikskólakennari á Akureyri.
Jóhann Hermansson
birgðatæknir á akureyri
30 ára í dag
fimmtudaginn 5. nóvember
30 ára
n Julia McLaughlin Staples Skarphéðinsgötu 18,
Reykjavík
n Ausra Laukyté Hafnargötu 13, Fáskrúðsfirði
n Jerzy Sylwester Wlodarczyk Engjaseli 87,
Reykjavík
n Berglind Þorsteinsdóttir Skagfirðingabraut 1,
Sauðárkróki
n Þórunn Kristín Snorradóttir Ólafsgeisla 7,
Reykjavík
n Gunnar Örlygur Gunnarsson Klausturstíg 9,
Reykjavík
n Ásdís Halldórsdóttir Stapaseli 8, Reykjavík
n Kristín Ólafía Garðarsdóttir Engjavöllum 5a,
Hafnarfirði
n Vilhjálmur Hólmar Þorvarðarson Fjólugötu 2,
Akureyri
n Gísli Már Ragnarsson Fossheiði 60, Selfossi
n Friðrik Ragnar Grétarsson Nesbakka 5, Nes-
kaupstað
n Kristín Viktorsdóttir Meistaravöllum 7, Reykjavík
n Ragnheiður Kr Guðmundsdóttir Möðrufelli 13,
Reykjavík
40 ára
n Andrea Sigurjónsdóttir Miklubraut 44, Reykjavík
n Bjarni Ólason Gvendargeisla 88, Reykjavík
n Sigurþór Ólafsson Lækjasmára 17, Kópavogi
n Harpa Pétursdóttir Kjarrhólma 12, Kópavogi
n Jónas Hagan Guðmundsson Túnfit 1, Garðabæ
n Kristín Lúðvíksdóttir Miðbraut 25, Seltjarnarnesi
n Bryndís Bergmann Laufengi 12, Reykjavík
n Gróa Sigurðardóttir Rauðagerði 32, Reykjavík
n Bentína Ósk Gylfadóttir Miðdal 6, Eskifirði
50 ára
n Angur Panday Efstahjalla 19, Kópavogi
n Guðrún Inga Haraldsdóttir Fannafold 67,
Reykjavík
n Páll Bjarni Kjartansson Logafold 87, Reykjavík
n Gunnar Már Gunnarsson Baughúsum 32,
Reykjavík
n Þorvaldur Baldursson Veghúsum 31, Reykjavík
n Þorbjörg Guðbrandsdóttir Háabergi 35, Hafn-
arfirði
n Haraldur Brynjólfsson Sléttuvegi 7, Reykjavík
n Ásta María Einarsdóttir Presthúsabraut 38,
Akranesi
n Unnur Guðmundsdóttir Dalsflöt 1, Akranesi
n Þórdís Ólafsdóttir Álfahvarfi 5, Kópavogi
n Páll Kristinsson Bifröst Sjónarhóli, Borgarnesi
n Jóhanna Kristín Reynisdóttir Bugðugerði 1,
Selfossi
n Ríkharður Hinriksson Norðurgötu 52, Sandgerði
60 ára
n Ingibjörg A Faaberg Öldubakka 5, Hvolsvelli
n Jóhannes Norðfjörð Kópavogsbraut 95, Kópavogi
n Margrét Björgvinsdóttir Suðurbyggð 23, Akureyri
n Ásmundur Guðjónsson Hlíðarlundi 2, Akureyri
n Hannes Jóhannsson Hjallaseli 18, Reykjavík
n Gudrun Lange Bakkagerði 7, Reykjavík
70 ára
n Aðalbjörg Sigvaldadóttir Þórunnarstræti 133,
Akureyri
n Áslaug B Þórhallsdóttir Krókamýri 78, Garðabæ
75 ára
n Stefán Gunnar Jónsson Birkivöllum 11, Selfossi
n Hrafnhildur Jónsdóttir Syðra-Langholti 3, Flúðum
n Katrín Signý Hákonardóttir Lækjarbrún 10,
Hveragerði
n Eva Pétursdóttir Laufengi 78, Reykjavík
n Ásta Albertsdóttir Dvalarheimilinu Höfða, Akra-
nesi
80 ára
n Halldóra Jóhannesdóttir Álfkonuhvarfi 55,
Kópavogi
n Sigríður Björnsdóttir Öldugötu 17, Reykjavík
n Hjörtur Óli Halldórsson Sæbóli 11, Grundarfirði
n Þorbjörg Bjarnar Friðriksdóttir Grettisgötu 94,
Reykjavík
90 ára
n Sigríður Guðmundsdóttir Hlaðhömrum 2, Mos-
fellsbæ
n Haukur Kristófersson Norðurbrún 1, Reykjavík
n Margrét Larsen Hringbraut 50, Reykjavík
101 ára
n Sigríður Gísladóttir Hornbrekku, Ólafsfirði
Til
hamingju
með
afmælið!