Dagblaðið Vísir - DV - 04.03.2013, Qupperneq 4
„Stefán
einar
hótaði mér“
n Formaður VR og stjórnarmaður í hár saman n Ásakanir ganga á víxl
4 Fréttir 4. mars 2013 Mánudagur
S
tefán Einar hótaði mér. Þetta
er ekkert annað en hót-
un. Hann notar greinilega
þessa taktík á fólk. Svo ger-
ir hann þetta við starfsfólk-
ið líka. Það er eins og hann sé alltaf
að rannsaka fólk,“ segir Ragnar Þór
Ingólfsson, stjórnarmaður í VR, um
viðskipti sín við formann VR, Stefán
Einar Stefáns son. Ragnar Þór segist
hafa fengið tölvupóst með hótunum
frá Stefáni Einari.
Í samtali við DV þvertekur Stef-
án Einar fyrir að hafa hótað Ragnari
Þór í tölvupósti. Hann segist ekki
beita slíkum aðferðum. „Nei, það hef
ég ekki gert. Ég ber af mér slíkar sak-
ir. Ég hef hins vegar sagt honum, sem
að rétt er, að í öllum þeim persónu-
legu árásum sem hann hefur stund-
að í minn garð, hefur fólk komið til
fundar við mig og borið sig mjög illa
undan samskiptum við Ragnar Þór
Ingólfsson,“ segir formaðurinn.
„Upplýsingar um
framgöngu þína“
Í tölvupóstinum til Ragnars Þór sagði
Stefán Einar að hann hefði undir
höndum upplýsingar um framgöngu
hans sem kæmu sér ekki vel fyrir
hann. „Hins vegar hefur það gerst,
á meðan ófrægingarherferð þinni
gegn mér hefur staðið, að nokkrir
aðilar hafa komið til mín og látið
mér í té upplýsingar um framgöngu
þína í ýmsu tilliti á síðustu árum. Það
varðar bæði þín persónulegu mál
og opinber mál tengd þér. Þar hafa
menn undir höndum upplýsingar og
gögn sem þeir hafa afhent mér, jafnt
persónuleg og opinber skjöl stofn-
ana. Þessi gögn bera þér sannast
sagna ekki fagurt vitni og staðfest-
ir raunar það sem ég hef lengi haft
grun um, að kastað sé steinum úr
völtu og brothættu glerhúsi.“
Stefán Einar segir að þetta orðalag
hafi ekki falið í sér hótun: „Nei, þetta
er alls ekki hótun. Mér dytti ekki hug
að hóta Ragnari Þór Ingólfssyni. Ég
hef sýnt honum fyllstu kurteisi öll
þau ár sem hann hefur staðið í sinni
ófrægingarherferð gegn mér. Ég er
bara að viðurkenna það fyrir honum
að þetta séu gögn sem mér hafa borist.
Ég var bara að láta hann vita og stað-
festa það. Mér berast ýmis gögn, líkt
og þér í þínu starfi,“ segir Stefán Ein-
ar og bætir því við að gögnin hafi sýnt
mér hvernig Ragnar Þór hafi „sviðið“
fólk í viðskiptum. „Þessi gögn eiga fullt
erindi við almenning en ég er bara
ekki þeirrar gerðar að ég komi slíkum
gögnum í fjölmiðla,“ segir Stefán Einar
í samtali við DV.
Orð Stefáns Einars í tölvupóstinum
til Ragnars Þórs voru sams kon-
ar eðlis en þó kom þar fram að hann
gæti notað upplýsingarnar í varnar-
skyni: „Þessar upplýsingar hyggst ég
ekki nota gegn þér – en ég áskil mér
rétt til þess að vísa til þeirra þegar ég
ver hendur mínar gagnvart þeim
aurburði sem þú virðist orðinn sér-
fræðingur í að moka í minn garð,“
sagði Stefán Einar.
Næturfundur að sumri
Tölvupósturinn var hluti af
skeytasendingum á milli Stef-
áns Einars og Ragnars sem áttu
sér stað eftir að stjórnarmað-
urinn bar það upp á formann-
inn að hafa ekki sagt satt um
upphaf samskipta sinna og
Söru Lindar Guðbergsdóttur,
starfsmanns VR og núver-
andi sambýliskonu Stefáns
Einars. DV fjallaði um það
mál í blaðinu í lok desember
síðastliðinn. „Bara orðalagið
í bréfinu, að hann hafi upp-
lýsingar um mig, er ótrúlegt.
Það eru ellefu starfsmenn
hættir eftir að hann tók við. Tveir af
þeim voru verktakar í Miðhúsaskógi
sem staðfestu að hann hefði átt þar
næturfund með Söru Lind í sumar-
húsi VR löngu áður en hann sagði að
samband þeirra hefði átt sér stað,“
segir Ragnar Þór en með orðum sín-
um vísar hann til þess að Stefán Ein-
ar og Sara Lind hafi nýtt sér orlofs-
hús VR síðastliðið sumar, nokkru
áður en samband þeirra á að hafa
hafist samkvæmt orðum sem Stefán
Einar lét falla við stjórn VR.
Eldheitar persónulegar deilur
Ragnar Þór segir aðspurður um þetta
atriði að hann hafi enn frekari upp-
lýsingar um að Stef-
án Einar hafi
ekki greitt
fyrir næt-
ur-
gistinguna í orlofshúsi VR síðastliðið
sumar. „ Formaður VR greiddi ekki
fyrir nætur gistingu í Miðhúsaskógi í
júní. Hann lýsir því yfir bréflega að
það fáist hvergi staðfest að hann hafi
eytt nótt með umræddum starfs-
manni þó svo að starfsmenn félags-
ins geti vitnað þar um ásamt sam-
tali sem ég átti við umsjónarmann
svæðisins sem nú hefur verið rek-
inn. En formaður hafði samband við
umræddan starfsmann Miðhúsa-
skóga og hellti sér yfir hann,“ seg-
ir Ragnar Þór en út frá samskiptum
formannsins og stjórnar mannsins
er ljóst að deilur þeirra eru afar
persónulegar.
Eitt af því sem Stefán Einar sagði
í tölvupóstinum til Ragnars Þórs
þar sem þeir tókust á um þessi
mál er að hann skilji ekki hvað
hann hafi gert á hlut stjórn-
armannsins. „Sannast
sagna veit ég ekki hvað ég
hef gert þér, enda hef ég
alltaf reynt að mæta þér
af yfirvegun og sann-
girni, þó sannarlega
séum við ekki alltaf
sammála.“
Ljóst má vera út
frá þessum sam-
skiptum Stefáns
Einars og Ragnars
Þórs að hart er deilt inn-
an stjórnar VR. n
Í hár saman Ragnar Þór
Ingólfsson sakar Stefán
Einar Stefánsson, formann
VR, um að hafa hótað sér.
Formaðurinn þvertekur
fyrir það.
„Mér dytti
ekki hug
að hóta Ragnari
Þór Ingólfssyni
Ingi Freyr Vilhjálmsson
fréttastjóri skrifar ingi@dv.is
„Það eru
ellefu
starfsmenn
hættir eftir að
hann tók við
Harma hóp-
uppsagnir
Fyrirtækið Icewear, sem á
og rekur Víkurprjón, hefur
sagt upp þrettán starfsmönn-
um sínum í prjónastofu
fyrir tækisins á Vík í Mýrdal
og á Suðurnesjum og auk
þess tveimur starfsmönn-
um í verslun í Bankastræti.
Skammt er síðan meirihluti
þessa fólks var ráðinn til
starfa.
Tilkynnt
var um upp-
sagnirnar
á fimmtu-
daginn var
en um mik-
ið áfall er að
ræða því flestir
þeirra sem upp-
sagnarbréf fengu fluttu sér-
staklega til landsins frá Pól-
landi nýlega til að hefja störf
hjá fyrir tækinu.Víkurprjón
rekur tvær saumastofur í Vík
og á Suðurnesjum en á síð-
arnefnda staðnum opnaði
fyrirtækið útibú síðasta sum-
ar eftir að fyrir tækið Icewear
festi kaup á Víkurprjóni vor-
ið 2012.
Fyrirtækið sendi frá sér
tilkynningu eftir að DV.is
greindi frá hópuppsögninni
þar sem hún er hörmuð en
fyrirtækið hafi farið „full-
bratt“ í uppbyggingu fram-
leiðslueininga „miðað við
eftirspurn á markaði.“
Tveir blaða-
menn DV
tilnefndir
Blaðamenn DV eru tilnefndir til
tveggja Blaðamannaverðlauna
fyrir árið 2012. Kristjana Guð-
brandsdóttir, blaðmaður DV, er
tilnefnd fyrir Umfjöllun ársins en
Kristjana skrifaði viðamikinn og
vandaðan greinaflokk um ein-
hverfu, ýmsar birtingarmyndir
hennar og vandamál við grein-
ingu, ekki síst hjá stúlkum.
Þá er Ingi Freyr Vilhjálms-
son, blaðamaður DV, tilnefndur
til Blaðamannaverðlauna Íslands
fyrir umfjöllun um fiskveiðar
Íslendinga við Afríku og ýmis skrif
um viðskipti og uppgjör í kjölfar
hrunsins.