Dagblaðið Vísir - DV - 04.03.2013, Qupperneq 9
10 Fréttir 4. mars 2013 Mánudagur
Í
febrúar kláruðu allir flokkar sem
eiga sæti á þingi landsfundi sína
og mótuðu þar með stefnu sína
og áherslur fyrir kosningarn-
ar í apríl. Eins og búast mátti við
eru flokkarnir alls ekki sammála um
mörg mál og ljóst að einhver þarf að
gefa eftir í stjórnarmyndunarviðræð-
um. DV tók saman stefnu flokkanna í
ellefu málaflokkum sem jafnan vekja
athygli kjósenda og bar saman hvaða
flokkar eiga málefnalega saman. Auk
þess kannaði DV afstöðu Bjartrar
framtíðar, flokks Guðmundar Stein-
grímssonar og Heiðu Kristínar
Helgadóttur, sem mælst hefur með
mikið fylgi í skoðanakönnunum
undanfarið, langmestu nýrra fram-
boða. Það var hins vegar ekki hægt
að nálgast neina fastmótaða stefnu
hjá framboðinu og því er ekki hægt
að bera stefnu flokksins saman við
stefnu hinna flokkanna sem mælast
með nógu mikinn stuðning til að fá
þingmenn eftir komandi kosningar.
Samstaða um gjaldeyrishöftin
Við samanburðinn kemur í ljós að
samstaða virðist aðeins vera um
afnám gjaldeyrishaftanna. Enginn
flokkur hefur aftur á móti sett fram
einhverja lausn á málinu eða áætl-
un um hvernig eigi að afnema höft-
in. Það er því með öllu óljóst hvort
raunveruleg samstaða er um leiðir til
afnáms haftanna.
Flestir flokkanna eru þá sammála
um að krónan sé gjaldmiðill Íslands
í fyrirsjáanlegri framtíð en Samfylk-
ingin talar í sínum ályktunum um
mikilvægi Evrópusambandsaðild-
ar til að gera upptöku evru mögu-
lega. Þannig fjallar flokkurinn ekki
um krónuna á næstu árum en talar
um jafnvægi í efnahagsmálum sem
rímar við stefnu hinna flokkanna
varðandi umhverfi krónunnar.
Stefnubreyting í Evrópumálum
Ríkisstjórnarflokkarnir vilja báðir
ljúka aðildarviðræðum við Evrópu-
sambandið á meðan Sjálfstæðis-
flokkurinn og Framsókn vilja slíta
viðræðunum strax og ekki hefja þær
að nýju nema að undangenginni
þjóðaratkvæðagreiðslu um málið.
Evrópumálin hafa verið mikið þrætu-
epli innan ríkisstjórnarflokkanna, þá
sérstaklega innan Vinstri grænna.
Þingmenn flokksins hafa bókstaf-
lega flúið annað meðal annars
vegna aðildarumsóknarinnar, sem
var þó samþykkt í stjórnarsáttmál-
anum sem gerður var áður en sam-
starf flokkanna hófst að loknum
kosningum.
Þetta er stefnubreyting hjá bæði
Vinstri grænum og Framsóknar-
flokknum frá síðustu kosningum.
Vinstri græn vildu ekki aðild eða að-
ildarviðræður í kosningunum 2009
en samþykktu þó að sækja um þegar
mynduð var ríkisstjórn með Samfylk-
ingu að loknum kosningum. Fram-
sókn vildi hins vegar sækja um að-
ild og leggja samning í dóm kjósenda
fyrir kosningarnar 2009 en síðan þá
hefur flokkurinn horfið frá þeirri
stefnu og hafnar nú áframhaldandi
viðræðum um aðild að sambandinu.
Allir tala um verðtrygginguna
Flokkarnir fjórir tala allir um verð-
trygginguna í sínum landsfundar-
ályktunum. Enginn flokkur nema
Framsókn gengur hins vegar svo
langt að segja að afnema skuli verð-
trygginguna. Sjálfstæðismenn
tókust mikið á um verðtrygginguna
á sínum landsfundi og var stór hluti
flokksmanna sem vildi álykta um að
afnema ætti verðtrygginguna. Lyktir
urðu þó þær að frekar ætti að álykta
um að auka framboð af óverðtryggð-
um lánum. Vinstri græn tala um að
draga úr vægi verðtryggingarinnar
og að skoða 2 prósenta þak á verð-
bætur.
Samfylkingin nálgast málið út
frá Evrópusambandsaðild. Flokk-
urinn gerir ráð fyrir því að verð-
tryggingin verði óþörf þegar gengið
verður í sambandið þar sem það
muni skapa þann stöðugleika sem til
þarf til að afnema verðtrygginguna.
Flokkurinn leggur þó áherslu á, líkt
og Sjálfstæðis flokkur, að framboð á
óverðtryggðum lánum aukist í ná-
inni framtíð og leggur ekki til að verð-
trygging verði afnumin. Framsókn
gengur talsvert lengra og segir að
afnema þurfi verðtryggingu. Flokk-
urinn býður þó ekki upp á neina
hugmynd um hvernig það skuli gert
en í stefnunni segir að setja eigi á fót
nefnd til að skoða málið og koma
með hugmyndir fyrir árslok 2013.
Engin afstaða í olíuleit
Landsfundur Samfylkingarinnar
ályktaði um olíuleit og vinnslu á
Drekasvæðinu án þess að nein stefna
lægi fyrir. Flokkurinn ákvað einfald-
lega að marka þyrfti stefnu í málinu.
Vinstri græn viku ekki að hugsan-
legri olíuleit en einstaka flokksmenn
hafa tjáð sig um að marka þurfi skýr-
an ramma utan um hugsanlega
vinnslu olíu í kringum Ísland. Rík-
isstjórn þessara tveggja flokka hef-
ur hins vegar gefið út rannsóknar-
leyfi á Drekasvæðinu og því nokkuð
ljóst að báðir flokkarnir eru á því
að skoða eigi möguleikana á því að
olía finnist á svæðinu. Slíkt gæti þýtt
stórauknar tekjur fyrir Íslendinga
en olíuvinnsla rímar ekki endilega
við umhverfisstefnur flokkanna,
Svona er stefna flokkanna eftir landsfund
Sjálfstæðisflokkurinn Framsókn Samfylking Vinstri græn
Gjaldeyrishöft Afnám hafta en engin áætlun Afnám hafta en engin áætlun Afnám hafta en engin áætlun Afnám hafta en engin áætlun
Verðtrygging Auka framboð á óverðtryggð. lánum Afnema verðtryggingu Auka framboð á óverðtryggð. lánum Draga úr vægi verðtryggingar
Virkjanamál Endurskoða rammaáætlun Endurskoða rammaáætlun Rammaáætlun til grundvallar Rammaáætlun til grundvallar
Skuldaniðurfelling Engar frekari niðurfellingar Sértækar niðurfellingar Engar frekari niðurfellingar Engar frekari niðurfellingar
Evrópusambandið Hætta viðræðum strax Hætta viðræðum strax Klára aðildarviðræður Klára aðildarviðræður
Stjórnarskrá Litlar breytingar Breytingar Ný á grunni stjórnlagaráðs Ný á grunni stjórnlagaráðs
Skattar Lækka skatta Lækka skatta Lækka tryggingagjald Óbreyttir skattar
Olíuvinnsla Nýta tækifæri til olíuvinnslu Nýta tækifæri til olíuvinnslu Stefna ómótuð Óljóst
Stjórn fiskveiða (kvótakerfið) Nær óbreytt kerfi Nær óbreytt kerfi Gagnger endurskoðun Gagnger endurskoðun
Skuldavandi heimilanna Skattaafslættir Takmörk á gjaldtöku vegna lána Beita skattkerfinu og vaxtabótum Beita skattkerfinu og vaxtabótum
Gjaldmiðlamál Skoða upptöku nýs gjaldmiðils Halda í krónu Upptaka evru með aðild að ESB Halda í krónu
n Úttekt á stefnu flokkanna í ellefu málaflokkum n Aðeins samstaða um afnám gjaldeyrishafta n Svona eiga þeir saman
Aðalsteinn Kjartansson
blaðamaður skrifar adalsteinn@dv.is
Fundað í febrúar
Flokkarnir fjórir, sem
eiga sæti á Alþingi,
héldu allir lands-
fundi eða flokksþing
í febrúarmánuði.
Þar voru stefnumál
flokkanna mótuð fyrir
kosningarnar í lok apríl.
Myndir Sigtryggur Ari
Lítið sameiginLegt í
stefnum fLokkanna