Dagblaðið Vísir - DV - 04.03.2013, Síða 21
22 Menning 4. mars 2013 Mánudagur
HönnunarMars að hefjast
n Sarah Cooper og Nina Gorfer í Norræna húsinu
H
önnunarMars fer fram í
fimmta skiptið, dagana 14.–
17. mars 2013. Það eru ís-
lenskir hönnuðir og arkitektar
sem bera hitann og þungann af dag-
skrá hátíðarinnar sem spannar langa
helgi og býður til ótal viðburða, inn-
setninga og sýninga.
HönnunarMars spannar vítt svið,
allt frá helstu hönnuðum þjóðarinn-
ar sem sýna hvað í þeim býr, til ný-
útskrifaðra hönnuða sem eru stíga
sín fyrstu skref. Á HönnunarMars
er hönnun kynnt sem atvinnugrein
sem byggir á traustum grunni og
gegnir veigamiklu hlutverki í sam-
tímanum.
Dagskráin hefst eins og áður
með fyrirlestradegi, á fimmtudeg-
inum 14. mars þar sem framúrskar-
andi erlendir hönnuðir og arkitektar
veita innblástur með þekkingu sinni
og reynslu. Á föstudeginum verð-
ur kaupstefnumótið DesignMatch
haldið í Norræna húsinu þar sem
íslenskum hönnuðum gefst tæki-
færi á að hitta norræna kaupendur.
Norræna húsið hefur tekið þátt í
HönnunarMars frá upphafi og fyrir
utan kaupstefnuna sem haldin er í ár
býður húsið enn fremur upp á sýn-
ingarnar Hið langa andartak og Láð
og lög.
Á sýningunni Hið langa andar-
tak - The Long Moment, verða sýnd-
ar ljósmyndir eftir Söruh Cooper og
Ninu Gorfer. Þær verða einnig sýn-
ingarstjórar Norræna tískutvíærings-
ins sem haldinn verður í Frankfurt
í mars á næsta ári. Sýningin er yfir-
litssýning þar sem sýnt verður úrval
ljósmynda frá ferli þeirra.
Sýningin Láð og lögur er samsýn-
ing af einstöku finnsku og íslensku
nútímaskarti sem er innblásið af
villtri náttúru. Sýningin stóð fyrst í
Hanaholmen í Finnlandi sem hluti
af World Design Capital Helsinki
2012-dagskránni, en verður í Nor-
ræna húsinu frá 14. mars til 14. apr-
íl 2013.
Doktor Fástus
á sviðinu
Leikfélag MR Herranótt, elsta leik-
félag Norðurlanda, sýnir í ár verk
Gertrude Stein, Doktor Fástus í
myrku ljósi. Brynhildur Guðjóns-
dóttir sér um leikstjórn. Margir
mætir listamenn hafa túlkað goð-
sögnina um Fást á eigin hátt, svo
sem Christopher Marlowe, Johann
Göthe og Thomas Mann. Í verki
Gertrude Stein selur Fástus djöfl-
inum sál sína fyrir rafmagnsljósið.
Leikritið hefst þegar Mefistó,
sendiboði djöfulsins, kemur að
innheimta borgun. Doktor Fástus
í myrku ljósi er sýnt í Tjarnarbíói
og fást miðar á midi.is, almennt
miðaverð er 2.000 kr.
Í
rska hljómsveitin My Bloody
Valentine gaf út eina áhrifa-
mestu plötu tónlistarsögunnar,
Loveless, árið 1991 og var eftir
það óvirk í mörg ár. Sú plata var
heljarinnar verk. Gerð hennar tók
næstum því tvö ár og plötufyrir-
tækið endaði á því að reka hljóm-
sveitina vegna samskiptavanda
og kostnaðar við gerð plötunnar.
Hljómsveitin starfaði nánast ekkert
á næstu árum og meðlimirnir tvístr-
uðust hver í sína átt.
Aðdáendur hljómsveitarinnar
hafa því þurft að bíða í rúm 20 ár
eftir nýrri plötu en í ár hefur þeim
orðið að ósk sinni; hljómsveitin
goðsagnakennda sendi frá sér nýju
plötuna m b v í febrúar.
Þá voru gamlar plötur og smá-
skífur hljómsveitarinnar endur-
hljóðblandaðar og endurútgefnar í
fyrra.
Með „skóstöruna“
My Bloody Valentine var stofnuð í
Dublin á níunda áratugnum og gaf
út nokkrar smáskífur þar sem í fyrstu
mátti finna hávaðasamt popp undir
áhrifum af tilraunagleði og fram-
sækni nýbylgjunnar og síðpönksins.
Á seinni hluta áratugarins fékk sveitin
samning hjá Creation Records og
sendi frá sér smáskífuna You Made
Me Realise árið 1988. Hljómblær
sveitarinnar var þá meira og meira
farinn að einkennast af lagskiptum
gítarhávaða, draumkenndum rödd-
unum og loftkenndum, bjöguðum
en jafnframt gullfallegum melódíum.
Bresku tónlistarblöðin hófu að kenna
þessa stefnu við „shoegazing“ sem
sumir íslenskir tónlistarspekúlant-
ar hafa útlagt sem „skóstöru“. Sagt er
að uppruna hugtaksins megi rekja til
þess að meðlimir hljómsveita sem
kenndar eru við þessa stefnu áttu
til að standa grafkyrrir og niðurlút-
ir á meðan þeir spiluðu á hljómleik-
um. Þaðan kemur hugmyndin um að
þeir hafi starað á skóna sína á með-
an þeir léku. Reyndar var hugtak-
ið í fyrstu notað um þær hljómsveit-
ir sem fylgdu í fótspor My Bloody
Valentine en hefur hún sjálf síðan
einnig fallið undir þessa skilgrein-
ingu á undanförnum árum. Þó hafa
margir tónlistar menn lýst yfir óá-
nægju sinni með hugtakið, til dæmis
Stuart Brathwaite úr hljómsveitinni
Mogwai, en hann er einmitt góðvin-
ur Kevins Shields sem er „primus
motor“ í My Bloody Valentine.
Hljómblærinn endurskapaður
Hluti af plötunni m b v var tekinn
upp á tíunda áratugnum stuttu fyrir
upplausn sveitarinnar en upptök-
um var bætt við eftir að hljómsveitin
tók upp þráðinn að nýju árið 2007.
Eins og gefur að skilja hefur það ver-
ið stórvirki að endurskapa eða bæta
hljómblæinn sem Loveless gerði
ódauðlegan á sínum tíma, enda
kemur sú plata fyrir á fjölmörgum
listum yfir bestu plötur allra tíma.
Platan var því til dæmis ekki tekin
upp með stafrænum búnaði, heldur
var hún tekin upp og hljóðblönduð
á svipuðum „analogue“ búnaði og
fyrstu plöturnar, Isn‘t Anything og
Loveless. Töldu margir tónlistar-
spekúlantar, þegar útkoma m b v
var fyrst tilkynnt í fyrra, að það yrði
nánast ómögulegt að standa undir
þeim væntingum sem óhjákvæmi-
lega fylgdu þessu mikla framhaldi.
Hins vegar fékk platan frábærar við-
tökur bæði frá aðdáendum og gagn-
rýnendum, þó flestir geti verið sam-
mála um að hún nái ekki alveg sömu
hæðum og Loveless. n
Þórður Ingi Jónsson
n Ein áhrifamesta hljómsveit allra tíma klárar loks framhald meistaraverks
Draumar í ómstríðni
Kevin Shields á
tónleikum árið 2009
Hægri höndin hvílir á
tremolo-stönginni á
gítarnum en sú aðferð
Kevins til að spila á hljóð-
færið er eitt af sérkennum
þess einstæða hljóms
sem My Bloody Valentine
er þekkt fyrir.
Fallegar myndir Meðal þess
sem verður áhugavert að sjá
á HönnunarMars er sýningin
Hið langa andartak - The Long
Moment, þar sem sýndar verða
ljósmyndir eftir Söruh Cooper og
Ninu Gorfer.
Nýtt gallerí
Nýtt myndlistargallerí hóf rekstur
að Hverfisgötu 4 á fimmtudaginn
með sýningu á verkum Sigurðar
Árna Sigurðssonar. Galleríið heit-
ir Hverfisgallerí og er samstarfs-
verkefni að hálfu í eigu i8 gallerís
við Tryggvagötu og að hálfu í eigu
fjárfesta tengdra Arev verðbréfa-
fyrirtækis.
Eigendur að i8 eru Sigurður
Gísli Pálmason, Edda Jónsdóttir
og Börkur Arnarson. Þrátt fyrir
hlut i8 mun Hverfisgallerí verða
rekið sem algerlega sjálfstæð fyrir-
tæki og hefur verið samið við
tólf listamenn um að vinna með
galleríinu. Meðal listamanna
eru Guðjón Ketilsson, Sigurður
Árni, Hildur Bjarnadóttir, Harpa
Árnadóttir og Kristinn E. Hrafns-
son. Það er Marteinn Tryggvason
Tausen sem mun reka galleríið.
Vonarstjarna í ís-
lenskri myndlist
Sýningin Brot með verkum Sirru
Sigurðardóttur stendur yfir til 17.
mars næstkomandi. Á sýningunni
sækir hún sér
efnivið í tölu-
legar upplýs-
ingar, vísinda-
kenningar og
rannsóknir
og veltir fyrir
sér upplifun
mannsins af
heiminum.
Sirra hefur tekið þátt í fjölda sýn-
inga bæði bæði hér heima og er-
lendis, meðal annars í Listasafni
Reykjavíkur og Tate Modern í
London. Sirra Sigrún er einn stofn-
enda og eigenda sýningarstaðarins
Kling & Bang í Reykjavík. Þar hefur
hún skipulagt fjölda sýninga og list-
viðburða með þátttöku innlendra
og erlendra listamanna. Sirra er
nokkurs konar vonarstjarna í ís-
lenskri myndlist en í desember
síðastliðnum var hún á meðal 24
alþjóðlegra listamanna sem list-
tímaritið Modern Painters útnefndi
sérstaklega sem listamenn sem vert
er að fylgjast með á komandi árum.