Dagblaðið Vísir - DV - 08.08.2014, Page 13

Dagblaðið Vísir - DV - 08.08.2014, Page 13
Helgarblað 8.–11. ágúst 2014 Fréttir 13 „Ég er bara intersex“ n Kitty Anderson var tólf ára þegar hún fékk að vita að hún væri intersex n Tilhugsunin um að fólk kæmist að því var henni óbærileg þola það allt. Nú fær hún sprautur á fjögurra vikna fresti en lyfið er flutt inn fyrir mjög fáa á landinu. Sprauturnar getur hún aðeins feng- ið leystar út í einu apóteki á landinu. Þegar hún þarf á hormónagjöfinni að halda þarf hún að hringja fyrir- fram í apótekið til þess að tryggja að sprauturnar séu til. Hún þarf að panta tíma hjá sérfræðingi til þess að fá lyfseðil, og getur ekki gert það hjá heimilislækni. Þegar apótekið berst í tal breytist tónninn hjá Kitty. Ein- lægnin og þakklætið leynir sér ekki þegar hún tekur sér smástund til þess að segja frá því hvað starfsfólk- ið þar hefur reynst henni vel í gegn- um árin. Hún kallar það hetjurn- ar sínar. „ Apótek Landspítalans við Hringbraut á skildar ómældar þakkir, og starfsfólkið þar. Það hefur reynst mér ótrúlega vel, sem er pínu fyndið að segja,“ segir Kitty og brosir. Kitty er jafnframt þakklát kvensjúkdóma- lækni sínum, sem þrátt fyrir að vera ekki sérfræðingur í hennar grein- ingu, hefur verið hennar „reipi til að halda í, í þessu kerfi,“ segir Kitty. Leitarstöðin veldur kvíða Vegna þess að eistun voru fjarlægð úr Kitty jókst hættan á því að hún fengi brjóstakrabbamein og þegar hún varð tvítug hóf hún að fara árlega í myndatöku á Leitarstöð Krabba- meinsfélagsins vegna þeirrar hættu. Venjulega fara konur ekki í slíkt reglubundið eftirlit fyrr en þær hafa náð 40 ára aldri. Kitty segist þykja rosalega erfitt að fara á Leitarstöð- ina. Hún segir að stöðin valdi henni kvíða. Henni er sérstaklega minnisstætt atvik, sem tekur auðsjáanlega á fyrir hana að rifja upp, en þá mætti starfs- maður í móttöku henni með tillits- leysi og ónærgætni. „Ég fékk ekki einu sinni að tala við hjúkrunar- fræðing án þess að segja nákvæm- lega hvað það væri sem væri að mér til þess að ég þyrfti að fá öðruvísi þjónustu. Á þeim tíma var ég alveg „út“ en það var gagnvart fólki sem ég treysti. Ég var ekkert að tala um þetta á almennum vettvangi. Að þurfa að útskýra af hverju ég þyrfti sérhæfða þjónustu. Og þegar henni fannst ég ekki tala nógu hátt þá var ég beðin um að tala hærra fyrir framan bið- stofu af fólki.“ Hún segir að eftir þetta leiðinlega atvik hafi hún aldrei bara „runnið í gegn“ á Leitarstöðinni. Hún hafi ítrekað þurft að skýra frá grein- ingu sinni og mætt efasemdarfullu starfsfólki vegna aldurs. Truflandi viðbrögð Á fullorðinsárum hefur Kitty mætt heilbrigðisstarfsfólki sem hefur vilj- að beita sér fyrir því að hún hafi hljótt um að hún sé intersex. Þegar Kitty var 29 ára fór hún til gamla hormóna- og efnaskiptasérfræðingsins síns og var jákvæð. Hún lýsti því fyrir honum að henni fyndist þetta ekkert mál, hún talaði um þetta og engum fyndist þetta neitt tiltökumál. Viðbrögð sér- fræðingsins voru henni vonbrigði. „Hann horfði á mig og tjáði mér að það væri frekar óvarlegt að ræða þetta svona.“ Kitty segir að henni hafi brugðið virkilega og að hún skilji enn ekki hvað var óvarlegt. Eftir þetta átti hún erindi til heim- ilislæknis síns og í einni slíkri heim- sókn var læknanemi viðstaddur. Um það leyti sem læknirinn þurfti að fara fram og sækja eitthvað, segir Kitty intersex hafa komið upp í sam- ræðunum. Kitty segist hafa verið já- kvæð og opin og lýst því fyrir neman- um hvað intersex væri. „Hún horfði á mig og sagði mér að ég þyrfti ekki að hugsa um þetta. Þetta væri eitt- hvað sem ég þyrfti ekki að segja nein- um. Þyrfti ekki að vera að hugsa um – ég væri bara alvöru kona.“ Hún seg- ir viðbrögð læknanemans hafa verið truflandi. Óvart beðin um dömubindi Um áratugur er liðinn síðan Kitty fór að tala opinskátt um að hún væri intersex. Það gerðist þegar hún fór sem skiptinemi til Ástralíu en þá ákvað hún að prófa að segja frá þessu. Við það gerðist ekkert slæmt, líkt og hún hafði óttast, og þegar hún sneri aftur heim til Íslands hélt hún áfram að tala um þetta. Hún segir fólki finn- ast þetta vera sjálfsagður hlutur. Ef eitthvað er, þá gleymi það þessu jafn- vel. Kitty segir hlæjandi frá því að vin- konur hennar eigi það til að mynda til að biðja hana óvart um dömubindi, en hún fer ekki á blæðingar og því afar ólíklegt að hún eigi slíkt í sínum fórum. Intersex-börn viti það alltaf Af máli Kitty má greina að hún er fylgjandi því að börn sem eru intersex fái að vita það sem fyrst. „Ég er fylgj- andi því að gefa börnum, og ungling- um sérstaklega, þau tæki og tól sem þau þurfa til þess að geta rætt þetta. Þetta er hins vegar eitthvað sem kem- ur fólki, svona að vissu leyti, voða lítið við. Ég meina, ég hef aldrei séð svona hefðbundinn karlmann og hefðbund- inn kvenmann vera eitthvað sérstak- lega að ræða kynfæri sín eða innri kynfæri sín eða litningasamstæðuna sína eða hormónastarfsemina sína. Þannig að sem sagt, ég er fylgjandi því að börn viti þetta alltaf, ég er fylgj- andi því að það sé búið til umhverfi þar sem þau geti rætt þetta þegar og ef þau vilja. Og það sé aldrei pressa á neinn hátt, hvorki að fela þetta – né segja frá þessu. Þetta bara á að vera þeirra til að taka ákvörðun um þegar þau eru tilbúin til að taka ákvörðun um það, að mínu mati,“ segir Kitty. Lítil frænka með CAIS Þegar hún var 14 ára eignaðist hún litla frænku sem fékk nákvæmlega sömu greiningu og Kitty. Hún var með CAIS og tekin var ákvörðun, þvert á ráðleggingar lækna, um að hún fengi að vita það sjálf frá upp- hafi. „Það hefur aldrei verið neitt mál af því að við leyfðum þessu ekki að verða að neinu máli. Hún hefur ver- ið opin við vini sína og stóð upp tíu ára gömul og hélt kynningu fyrir allan bekkinn sinn,“ segir Kitty og stoltið leynir sér ekki. Við greiningu frænku hennar kom í ljós að stökkbreyting hafði orðið í öðrum X-litningnum hjá ömmu Kitty og hún er því arfberi fyr- ir CAIS. Af sex dætrum hennar erfð- ist stökkbreytta genið til tveggja og móðir Kitty og ein systir hennar eru því arfberar. Löngu hætt að skammast sín Spurð hvað Kitty vilji segja við for- eldra barna sem eru intersex segir hún, án þess að hika, að þeir ættu að finna aðra til þess að ræða þetta við. Hún segir fólkið hjá Intersex Ísland alltaf vera tilbúið til að koma öðrum í samband við sérhæfð stuðningssam- tök. Hún tekur fram að það þurfi ekki að hafa samband undir nafni, til að mynda sé hægt að senda tölvupóst frá nafnlausu tölvupóstfangi. „ Númer eitt, tvö og þrjú að kynnast öðrum og fjögur, fimm og sex – ekki búa til skömm,“ segir Kitty, en sjálf segist hún vera löngu hætt að skammast sín fyrir að vera intersex. „Þetta var skömm af því þetta var eitthvað sem ég mátti ekki segja, eða allavega virki- lega átti ekki að segja. Ég held bara að öll börn þurfi að upplifa það að þau eru fullkomin eins og þau eru og það er mjög mikilvægt fyrir intersex-börn eins og önnur.“ n Staðreyndir um intersex Intersex er regnhlífarhugtak sem nær yfir alla þá einstaklinga sem fæðast utan hinnar hefðbundnu skiptingar í karl- og kvenkyn. Það er bæði notað um fólk sem er útlitslega öðruvísi en „venjulegar“ konur og karlar, aðallega með tilliti til kynfæra, sem og fólk sem er með öðruvísi kynlitningasamsetningu en talið er venjulegt án þess að það sjáist endilega á útliti þess. Þá er um að ræða karla sem ekki eru með XY-litninga og konur sem ekki eru með XX-litninga, heldur fólk með til dæmis XO-litninga, XXX, XXY, XYY og svo framvegis. Intersex-hugtakið er mjög vítt og nær yfir margs konar ólíkar greiningar. Intersex- ástand er greint á tvennan hátt. Stundum sést að útlit ytri kynfæra samsvarar ekki venjulegum kynfærum karla eða kvenna. Hins vegar, og það er mun algengara, kemur intersex-ástand í ljós með kynlitningagreiningu, til dæmis þegar fólk leitar til læknis vegna ófrjósemi. Fólk með óræð ytri kynfæri er því bara hluti af þeim margbreytilega hópi sem er intersex. Talið er að við eina fæðingu af 1.500 til 2.000 sé in ter sex-ástand sjá an legt við fæðingu. Þá er einnig talið að stærri hóp ur beri eng in ytri um merki um in ter sex-ástand við fæðingu og grein ist síðar á lífs leiðinni. M y n d Þ o r M A r V Ig n Ir g u n n A r SS o n „Hann horfði á mig og tjáði mér að það væri frekar óvarlegt að ræða þetta svona

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.