Dagblaðið Vísir - DV - 08.08.2014, Blaðsíða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 08.08.2014, Blaðsíða 14
Helgarblað 8.–11. ágúst 201414 Fréttir LýtaLæknar neita enn að veita uppLýsingar n Málið til athugunar hjá Persónuvernd n Þarf að vera mun meiri áhersla á sálfélagslega líðan kvenna, að mati hjúkrunarfræðinga L ýtalæknar eru sá hópur sem hefur staðfastlega neitað að gefa nokkrar upplýsingar,“ seg­ ir Geir Gunnlaugsson land­ læknir í samtali við DV. Geir segir embættið hafa sent út bréf í byrjun maí til lýtalækna og nokkurra annarra sérfræðinga þar sem ítrekað er enn einu sinni að ákveðnar upplýs­ ingar verði veittar. Hann segir Lækna­ félag Íslands hafa gert athugasemd­ ir við bréfið og sent fyrirspurn til Persónuverndar vegna málsins. Er málið nú til skoðunar þar og íhugar landlæknisembættið jafnframt hvert næsta skref hjá því verður. Geir segir að fyrir utan lýtalækna hafi nokkrir sérfræðingar í hópn­ um, sem höfðu ekki gengið frá sín­ um málum gagnvart embættinu, gert það í kjölfar ítrekunarinnar. Aðspurð­ ur segist Geir ekki vita hvenær megi vænta svars frá Persónuvernd og að svona mál séu seinunnin. „Við höf­ um stefnt að því að gera þetta í eins góðri sátt og mögulegt er,“ segir hann. En kemur þá ekki til greina að svipta menn starfsleyfi, líkt og landlækn­ ir getur gert, lögum samkvæmt? „Ég ætla ekki að gefa út neinar yfirlýs­ ingar um hvað kemur til greina og hvað kemur ekki til greina,“ segir Geir. Hafnar rökum lýtalæknis Hann segir nokkra sérfræðinga í hópnum, auk lýtalækna, segja upp­ lýsingagjöfina varða við lög um persónuvernd. Spurður segir Geir lýtalækna verða að svara því hver rökin séu fyrir því að um sé að ræða viðkvæmari eða öðruvísi gögn en í tengslum við aðrar aðgerðir. „Eigin­ lega verða þeir að svara því. Ég sé engan mun,“ segir hann. Þórdís Kjartansdóttir, þáverandi formaður Félags íslenskra lýtalækna, sagði í samtali við mbl.is í apríl að veiting upplýsinganna stangist á við lög um gagnaöryggi. Landlæknir hafnar þessum rökum. „Ég hafna því. Við höfum sagt að gögnin eru örugg­ lega geymd, eins og öll önnur gögn úr heilbrigðisþjónustunni, þau eru geymd við hæsta öryggisstig,“ segir Geir. Snýst fyrst og fremst um trúnað við sjúklinga Þorbjörn Jónsson, formaður Lækna­ félags Íslands, segist telja eðlilegast að bíða og sjá hvað Persónuvernd hafi um málið að segja, áður en nokkuð verði aðhafst. Að hans sögn fór stjórn Læknafélagsins með mál­ ið til Persónuverndar fyrir hönd fé­ lagsmanna sem til þeirra hafa leitað, en í þeim hópi segir hann vera lækna úr alls fimm sérgreinum, þar á meðal hópur af geðlæknum. „Þessir lækn­ ar, þeir hafa kannski meiri áhyggjur af þessu en ýmsir aðrir læknar,“ segir Þorbjörn í samtali við DV, en upp­ lýsingarnar sem þessir læknar eru krafðir um eru þær sömu og óskað hefur verið eftir frá öðrum læknum og þeir hafa veitt. Hann segir málið snúast fyrst og fremst um trúnað við sjúklinga. „Þetta snýst náttúrlega líka um um­ fangið á upplýsingunum, hvort að þetta sé umfram þær heimildir sem lög og reglur raunverulega heimila,“ segir Þorbjörn. Hann segist vita til þess að einhverjir úr hópnum hafi boðist til þess að afhenda upplýs­ ingar á einhvers konar yfirlitsformi. Halla Fróðadóttir, formaður Fé­ lags íslenskra lýtalækna, vísaði í sam­ tali við DV fyrirspurnum um málið á formann Læknafélags Íslands. Skortur á haldbærum rannsóknum Hin fullkomnu sköp nefnist lokaverk­ efni þeirra Eyglóar Einarsdóttur og Hildar Þóru Sigfúsdóttur í hjúkrunar­ fræði við Háskóla Íslands, en þær Eygló og Hildur Þóra útskrifuðust sem hjúkrunarfræðingar í júní síð­ astliðnum. Er um að ræða heimilda­ samantekt um skapabarmaaðgerðir en skortur á upplýsingum um þær reyndist vera algengur bæði hér á landi og erlendis. „Við rákumst á það í okkar heimildaleit að það er lítið til um þetta efni og helstu punktarnir sem við fengum út úr þessu voru í rauninni þeir að það er skortur á haldbærum rannsóknum um að­ gerðirnar og þær rannsóknir sem hafa verið gerðar, og sem við skoðuð­ um, eru oft á tíðum einsleitar og úr­ takið lítið. Það eru náttúrlega engar rannsóknir til á Íslandi og það er eiginlega ekki hægt að lýsa umfangi aðgerðanna hér á landi út af því að tíðnitölurnar eru ekki aðgengilegar,“ segir Eygló í samtali við DV. Það er því erfitt að draga áreiðanlegar ályktanir út frá niðurstöðum þeirra rannsókna sem hafa verið gerðar. Helstu ástæð­ ur sem konur tilgreindu fyrir aðgerð voru óánægja með útlit eða líkamleg óþægindi. Þær voru almennt ánægð­ ar með aðgerðina og í þeim fimm rannsóknum þar sem fjallað var um eftirfylgni komu fá vandamál í ljós. Athygli þeirra Eyglóar og Hildar Þóru vakti að hagsmunaaðilar voru hluti rannsóknarhóps í fjórum af ellefu rannsóknum sem þær skoðuðu, sem getur haft áhrif á áreiðanleika niður­ staðna. Lýtalæknar fengið árlegt bréf frá 2007 Í febrúar síðastliðnum óskaði Líneik Anna Sævarsdóttir, þingkona Fram­ sóknarflokks, eftir upplýsingum um þær reglur sem gilda um upplýs­ ingagjöf lýtalækna til landlæknis um lýtaaðgerðir. En frá því hafði þá verið greint að lýtalæknar hefðu um árabil neitað landlækni um upplýsingar Erla Karlsdóttir erlak@dv.is „Þau eru geymd við hæsta öryggis- stig S igríður Dögg Arnardóttir kyn­ fræðingur undirbýr þessa dagana útgáfu bókar sem nefnist Kjaftað um kynlíf við börn og unglinga – Fullorðnir fræða og ræða. Í bókinni verða myndir af kynfærum 50 manns á aldrinum 20 til 60 ára, og er tilgangurinn að sýna fjölbreytileika kynfæra. Í síðustu viku birti Sigríður hluta af mynd­ unum á vefsíðu sinni. „Ég hef mætt ótalmörgum mýtum og fordóm­ um gagnvart kynfærum, sérstaklega píkunni, og mér þykir því mikilvægt og tímabært að fjalla opinskátt og hreinskilnislega um kynfærin,“ seg­ ir Sigríður á heimasíðu sinni. Mikill áhugi var á myndatökunum og mun sú síðasta fara fram í ágúst. Snýst líka um kynlíf Sigríður segir suma hafa tekið þátt í myndatökunum vegna þess að þeir vildu ekki að einhverjir aðrir myndu ganga í gegnum það sama og við­ komandi hefðu sjálfir upplifað í tengslum við útlit kynfæra sinna. Spurð segir Sigríður umræðuna um útlit kynfæra þurfa að snúast meira um sálfélagslegu hliðina. Hún seg­ ir umræðuna vera stóra og að hún snúist líka um kynlíf. „Hvernig við hugsum um kynlíf og hvað við fók­ userum alltaf á kynfærin og jafn­ vel ranga staði á kynfærunum. Það finnst mér líka alltaf svo ótrúlega áhugavert og ég tek alltaf sérstak­ lega fram í fræðslunni að þetta sé ekkert spurning um eitthvert ákveðið notagildi eða útlit eða að einhver hönnun sé betri en önnur þegar kemur að kynfærunum. Það er svo margt annað sem þú þarft að vita heldur en bara að mæta á svæðið með einhver kynfæri. Það skiptir ekki máli hvort það sé typpi eða píka, ef þú í rauninni veist ekki hvernig líkaminn virkar og þú skilur þetta ekki þá verður þetta aldrei eitthvað frábært. Þú færð ekkert bestu fullnæginguna af því að typpið er stærra eða píkan með minni barma eða stærri barma eða snípurinn ofarlega,“ segir Sigríður. Alltaf meira sem hangir á spýtunni Spurð hvort hún telji vera háværari þá umræðu í þjóðfélaginu að leita til læknis frekar en að tala meira um fjölbreytileika kynfæra og efla sjálfstraust fólks. „Þú sérð það al­ veg á geðlyfjanotkun Íslendinga. Við niðurgreiðum geðlyf en við niðurgreiðum ekki sálfræðiþjón­ ustu,“ segir Sigríður og bætir við að Íslendingar séu hliðhollir læknum. „Ég meina, hvað ætlar þú svo að gera eftir aðgerðina? Ertu að fara að bíða eftir því að einhver hrósi því hvað píkan á þér lítur miklu betur út? Það er kannski ekkert það sem þú vilt, þetta er alltaf flóknara. Það er alltaf meira sem hangir á spýt­ unni en í rauninni bara það sem læknirinn getur gert, myndi ég telja,“ segir Sigríður. n Ekki spurning um eitthvert ákveðið útlit „Tímabært að fjalla opinskátt og hreinskilnislega um kynfærin“ Enginn munur Landlæknir segir engan mun á gögn- um um lýtaaðgerð- ir og aðrar aðgerðir. Mynd Sigtryggur Ari
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.